blaðið - 29.11.2005, Blaðsíða 20

blaðið - 29.11.2005, Blaðsíða 20
28 I MENNING ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2005 blaöiö Best að lesa smásögur með smákökum Sigurgeir Orri Sigurgeirsson. „Ég hef tekiö eftir því að best er aö lesa smásögur meö smákökum, þessi bók er engin undantekning." ,Þetta er safn af sögum sem skrifaðar hafa verið í gegnum árin og spanna má segja allan minn rithöfundar- feril. Yngstu sögurnar eru nýjar, en þær elstu eru frá því ég fékk þá flugu i höfuðið að ég gæti hugsan- lega orðið heimsfrægur rithöfundur. Allir vita hvernig það fór, því enginn veit hver ég er,“ segir Sigurgeir Orri Sigurgeirsson sem hefur sent frá sér smásagnasafnið Dagbók ástföngnu sunddrottningarinnar. „Ég hef tekið eftir því að best er að lesa smásögur með smákökum, þessi bók er engin undantekning. Sumar sögurnar eru spennusögur og aðrar eru gaman- sögur. Margar eru með óvæntum endi eða leiða ákveðna hugmynd til lykta með snúningi á aðstæðum eða framvindu. Ég hef setið lengi við að skrifa þessar sögur, en ómögulegt er að segja hve lengi.“ Hefurðu áðurfengist við skáldskap? „Ég hef lengi daðrað við skáld- skapargyðjuna. Það eru tuttugu ár í ár, síðan fyrsta sagan birtist á prenti eftir mig. Hin síðari ár hef ég snúið mér æ meira að kvikmynda- handritum og kvikmyndagerð. 1 des- ember verður frumsýnd stuttmynd eftir mig sem byggir á einni sögunni í bókinni, Hádegi. Fyrir nokkrum árum sendi ég frá mér skáldsöguna Út um þúfur sem mér að óvörum sló í gegn meðal eldri borgara. Þetta gerðist þrátt fyrir að sagan hafi sérstaklega verið skrifuð fyrir ungt fólk. Dagbók ástföngnu sunddrottningarinnar á trúlega eftir að slá í gegn meðal barna, þó sögurnar séu hugsaðar fyrir lesendur frá 16 til 105 ára.“ Þú rekur Bókaútgáfuna Bókafélagið. Segðu mér frá útgáfunni og hvaða bcekur eru vœntanlegar. „Bókafélagið er ört vaxandi forlag. 1 fyrra var ein bók á út- gáfulistanum, í ár eru þær fjórar. Fyrir utan mína bók erum við með þriðja og síðasta bindi ævisögu Hall- dórs Kiljans Laxness, Laxness eftir Hannes Hólmstein Gissurarson. Þriðja bindið fjallar m.a. um Gerplu, Nóbels- verðlaunin, kalda stríðið, uppgjörið við kommúnismann og póst-nóbel skáldsögurnar. Gríðar- lega fróðleg og skemmtileg bók með fjölmörgum áhugaverðum flötum á Halldóri og óvæntum tíðindum. Svo erum við með mjög merkilega bók sem heitir íslenska menntakonan verður til, eftir Valborgu Sigurðar- dóttur, fyrrverandi skólastjóra Fóst- urskóla íslands. Valborg rekur sögu menntunar kvenna á lslandi, bar- áttu kvenna fyrir að ganga mennta- veginn sem íöngum var þyrnum stráð. Það hljómar ótrúlega í dag, en fyrir um hundrað árum þurfti samþykki Danakonungs fyrir því að hleypa stúlku í Menntaskólann i Reykjavík. Fjórða bókin er íslensk þýðing á frægri bók Hernandos Desoto, Leyndardómar fjármagns- ins. Hún er gefin út í samvinnu við Rannsóknarstofnun um samfélags og efnahagsmál RSE. Desoto veltir fyrir sér spurningunni hvers vegna kapítalisminn hefur gengið upp á Vesturlöndum en brugðist hvar- BloWFrikkl vetna annars staðar.“ Ætlarðu að halda áfram að skrifa „Ég hef mikið yndi af ritstörfum. Það var mjög skemmtilegt að skrifa Dagbók ástföngnu sunddrottningar- innar og ég vona að lesendur hennar skemmti sér jafn vel, ef ekki betur, en ég gerði.“ Þórhallur Heimisson er meðal höfunda sem lesa upp úr verkum sínum á útgáfugleði Sölku. Útgáfugleði Sölku ^ Miðvikudagskvöldið 30. nóv. munu höfundar og þýðendur Sölku lesa upp úr nýjum verkum sínum. Há- tíðin verður haldin í Þjóðleikhús- kjallaranum og hefst kl. 20.00. Meðal þeirra sem stíga á stokk eru Ingibjörg Hjartardóttir, Guðlaugur Arason, Þóra Jónsdóttir, Kristian Guttesen, Hildur Hákonardóttir og Þórhallur Heimisson. Auk þess mun Þórunn Clausen, leikkona, flytja eintal hinnar tra- gísku brúðar úr leikriti Benónýs Æg- issonar, Drauganetið. Kynnir verður Hlín Agnarsdóttir og það eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Adventu- og jólatónlist í Norræna húsinu Hallveig Rúnarsdóttir, sópran, Berglind María Tómasdóttir, flautu- leikari, og Árni Heimir Ingólfsson, píanóleikari, koma fram á háskóla- tónleikum í Norræna húsinu, mið- vikudaginn 30. nóvember kl. 12.15. Á efnisskránni verður eingöngu að- ventu- og jólatónlist. Meðal ánnars verða frumfluttar útsetningar eftir þrjár íslenskar konur á gömlum íslenskum jólasálmum: Með gleði- raust og helgum hljóm (Þóra Mar- teinsdóttir), Immanúel oss í nátt (Hildigunnur Rúnarsdóttir) og Jesú Guðs son eingetinn (Anna S. Þor- valdsdóttir). Auk þess verða fluttir tveir jólasöngvar eftir Richard Trunk og þrjú sönglög tengd jólum úr Spænska söngvasafninu eftir Hugo Wolf. Þá flytur tríóið Þrjá jóla- söngva fyrir sópran, flautu og píanó eftir Frank Martin. Á fimmtudagskvöld flytur Hall- veig síðan kantötuna Jauchzet Gott in Allen Landen nr. 51 eftir Johann Sebastian Bach með Sinfóníu- hljómsveit Islands undir stjórn bar- rokk-sérfræðingsins Harry Bicket. Þetta er frumraun Hallveigar með Sinfóníuhljómsveitinni. Hallveig Rúnarsdóttir sópran. Nýtt hefti TMM Nýtt hefti Tímarits Máls og menningar er komið út og þar er að finna áhugavert efni að venju. Meðal efnis er bréf sem færeyski rithöfundurinn William Heinesen skrifaði landa sínum Mikines frá Reykjavík árið 1954 þar sem hann kveður upp palladóma um íslenska myndlistarmenn. Ljóð eru eftir Sigurð Pálsson, Óskar Árna Óskarsson, Hauk Ingvarsson, Steinunni P. Hafstað og Véstein Lúðvíksson. Þá á Bragi Ólafsson smásögu í heftinu. Itarlegt viðtal er við Sjón, Ingibjörg Haralds- dóttir segir frá leið sinni til ljóðagerðar og Guðmundur Ándri Thorsson skrifar um föður sinn Thor Vilhjálmsson í tilefni af áttræðisafmæli hans. Tvær greinar eru um Megas og Baldur Hafstað skrifar um ritstuld og meðferð heimilda. Tólf umsagnir um SiT ifÁSS SiljaAðal- steinsdóttir er ritstjóri Tímarits Máls og menningar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.