blaðið - 29.11.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2005 blaAÍÖ
Prófkjöri Fatah-
hreyfingarinnar frestað
Vopnaðir menn gerðu usla á kjörstöðum ígœr ogþurfti að loka þeim í kjölfarið. Mikið áfall
fyrir Abbas. Ekki er Ijóst hvenœr prófkjörið ferfram.
Fatah-hreyfingin frestaði prófkjöri
sínu á Gasasvæðinu fyrir þingkosn-
ingarnar í janúar eftir að vopnaðir
menn gerðu usla á kjörstöðum í
gær. Uppákoman þykir vera mikið
áfall fyrir Mahmoud Abbas, forseta
heimastjórnarsvæðanna, sem hefur
reynt að hafa stjórn á Gasasvæðinu
eftir að ísraelsmenn yfirgáfu það í
haust. Prófkjörið verður að öllum
líkindum dæmt ógilt og boðað til
nýs kjörs. Ekki er ljóst hvenær það
mun fara fram.
Nöfn vantaði á kjörskrá
Félagar í Fatah-hreyfingunni stóðu
að aðgerðunum og vildu þeir með
þeim mótmæla því að nöfn þúsunda
kjósenda vantaði á kjörskrá. Þeir
hleyptu meðal annars af skotum
upp i loftið og kveiktu í dekkjum
og kjörkössum fyrir utan kjörstaði.
Loka þurfti nokkrum kjörstöðum
tímabundið vegna uppákomunnar.
Þetta var annar hluti prófkjörs
Fatah-hreyfingarinnar fyrir þing-
kosningarnar sem fram fara í janúar.
Fyrri hlutinn fór fram á Vesturbakk-
anum á föstudag. Marwan Barg-
houti, leiðtogi Palestínumanna sem
situr í fangelsi, hlaut yfirburðakosn-
ingu í þeim hluta prófkjörsins. Barg-
houti hlaut 34.000 atkvæði af um
40.000. Barghouti hlaut margfaldan
lífstiðardóm árið 2004 fyrir aðild að
nokkrum árásum á ísraelska borg-
ara og situr nú í fangelsi í ísrael.
Þetta er i fyrsta sinn sem fram-
bjóðendur Fatah-hreyfingarinnar
eru valdir í prófkjöri en áður hafa
leiðtogar flokksins útnefnt þá. ■
Mannskætt námuslys í Kína
Að minnsta kosti 134 fórust eftir sprengingu í kolanámu í Kína. Aðstandendur saka yfir-
stjórn námunnar um slysið. Hvergi í heiminum er jafnmikið um mannskœð slys í námum
og í Kína.
Að minnsta kosti 134 fórust eftir
sprengingu sem varð í kolanámu í
norðausturhluta Kína á sunnudag.
Síðdegis í gær var enn 15 manna
saknað. Sprengingin varð eftir að
eldur komst í kolaryk í námunni.
Rúmlega 220 námuverkamenn
voru í námunni þegar sprengingin
átti sér stað seint á sunnudag í
Dongfeng-námunni í borginni
Qitaihe í Heilongjiang-héraði. Li
Yizhong, sem er yfirmaður vinnu-
verndarmála í Kína, sendi þegar í
stað fjölmennt björgunarlið á stað-
inn til leitar. Aðstandendur þeirra
sem fórust kenna yfirstjórn nám-
unnar um slysið þar sem hún hafi
ekki aðhafst þó að hún hafi vitað
um brotalamir i öryggismálum.
Hvergi í heiminum er jafnmikið
um mannskæð slys í kolanámum
og í Kína þar sem nánast daglega er
tilkynnt um hrun og sprengingar.
Þúsundir námumanna farast á
ári hverju þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir stjórnvalda til að draga úr
slysum. Slysin eru meðal annars
rakin til lélegs tækjabúnaðar og
ófullnægjandi öryggisreglna. Þá
hefur reynst erfitt að loka hættu-
legum námum þar sem mikil eftir-
spurn er eftir orku í Kína til þess
að halda hinu blómlega efnahags-
lífi landsins gangandi. ■
Björgunarmenn ásamt verkamanni sem
þeir björguðu úr kolanámu í borginni
Qitaihe í Kína.
Kosningar til héraðs-
þings í Tsjetsjeníu:
Flokkur hlið-
hollur Rúss-
um sigraði
Flokkur Ramzan Kadyrovs, sem
er hhðhollur rússneskum stjórn-
völdum, vann sigur í kosningum
til héraðsþings í Tsjetsjeníu á
sunnudag. Flokkurinn hlaut
60% atkvæða samkvæmt fyrstu
tölum en á eftir honum var
Kommúnistaflokkurinn með
um 12%. Rússnesk stjórnvöld
sögðu að kosningarnar mörk-
uðu tímamót í því að koma
hfinu í Tsjetsjeníu aftur í eðlilegt
horf þar sem rússneskar her-
sveitir og bandamenn þeirra
verða fyrir stöðugum árásum
aðskilnaðarsinna. Stjórnmála-
skýrendur óttast aftur á móti
margir hverjir að hin nýja hér-
aðsstjórn verði aðeins leppstjórn
rússneskra yfirvalda. Alþjóðlegt
eft irht með kosningunum var
lítið sem ekkert og mannrétt-
indasamtök hafa ennfremur
gagnrýnt þær á þeim forsendum
að ógerningur sé að halda
frjálsar og réttlátar kosningar á
meðan ástandið í héraðinu sé
jafneldfimt og raun ber vitni.
Missa hugsan-
lega atkvæðisrétt
Bandaríkin hafa beðið Evrópu-
sambandið um meiri tfina til að
svara frásögnum fjölmiðla um að
bandaríska leyniþjónustan (CIA)
hafi starff ækt leynileg fangelsi i
sumum ríkjum Evrópu og flutt
grunaða hryðjuverkamenn
á milli landa. Franco Frattini,
sem fer með dómsmál og innri
málefiii Evrópusambandsins,
lýsti því yfir í gær að ef eitthvert
hinna 25 aðildarríkja sambands-
ins yrði uppvíst að því að hafa
leyff CIA að reka sftk fangelsi á
sínu landssvæði mætti það eiga
von á hörðum refsiaðgerðum.
Það mætti jafnvel búast við því
að það gæti misst timabundið at-
kvæðisrétt sinn iruian sambands-
ins. Evrópuráðið hefur látið hefja
rannsókn á málinu en CIA hefiír
neitað að tjá sig um rannsóknina.
Dunilin gerir þér kleift að töfra fram glæsilega servíettuskreytingu
í takt við tilefnið. Fjölbreytt litaúrval auðveldar þér að ná fram
þeirri stemningu sem þú leitar eftir.
í verslunum liggur frammi bæklingur frá
Duni þar sem finna má fjölmargar hugmyndir
að servíettubrotum og borðskreytingum.
Erlendra hjálparstarfsmanna saknað í írak:
Afdrif fjórmenn-
inganna óljós
Erindrekar vestrænna ríkja reyndu
í gær að grennslast fyrir um örlög
bandarískra, breskra og kanadískra
hjálparstarfsmanna sem talið er að
hafi verið rænt í Bagdad. Engar vfs-
bendingar hafa komið fram um hver
hafi rænt þeim eða af hverju.
Jack Straw, utanríkisráðherra Bret-
lands, lagði á það áherslu að breska
ríkisstjórnin myndi ekki greiða lausn-
argjald ef farið yrði fram á það. „Við
vinnum á þeim grundvelli að hér sé
um mannrán að ræða en höfum ekki
fengið staðfestingu á því,“ sagði Straw
að loknum fundi hans og Hoshiyar
Zebari, utanríkisráðherra Iraks, um
málið. Straw bætti því jafnframt við
að Zebari hefði heitið liðsinni írösku
ríkisstjórnarinnar í málinu.
Bretinn sem saknað er heitir Nor-
man Kembler, 74 ára hjálparstarfs-
maður frá London sem vann fyrir
hjálparsamtök í Irak. Ennfremur er
tveggja Kanadamanna saknað og
eins bandarísks ríkisborgara. Talið
er að fjórmenningarnir hafi verið
numdir á brott í róstusömu hverfi í
vesturhluta Bagdad á laugardag. ■
Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands,
segir að breska ríkisstjórnin muni ekki
greiða lausnargjald fyrir breskan mann
sem talið er að hafi verið rænt í Bagdad.