blaðið - 29.11.2005, Síða 12

blaðið - 29.11.2005, Síða 12
12 I NEYTENDUR ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2005 blaöiö ESSO hœkkar bensínverð Hverji exu ódýrastir? ! Samanburður á verði 95 oktana benstns Bensínverð stóð í stað á flestum út- sölustöðum á höfuðborgarsvæðinu milli vikna. Það er afar óvenjulegt og í andstöðu við þær tíðu hreyf- ingar og verðlækkanir sem hafa ein- kennt verð á eldsneyti undanfarnar vikur og mánuði. Eitt olíufyrirtækj- anna, ESSO, hækkaði meira að segja verðið á milli vikna um 1 krónu á líter og verður að teljast líklegt að hin stóru olíufélögin fylgi í kjölfarið með svipaðar hækkanir, enda hefð fyrir slíku. Þá var tilkynnt um að dísil- og gasolía hækki á sama tíma um 0,5 kr. hjá þeim. Ástæður hækk- ananna eru sagðar í þetta sinn vera versnandi staða krónunnar gagn- vart erlendum gjaldmiðlum. Aðrir söluaðilar hafa enn ekki tilkynnt um hækkanir og hafa meira að segja óverulegar lækkanir átt sér stað hjá sumum þeirra. Orkan er að venju með lægsta líteraverðið eða 104,40 kr. fyrir líterinn af 95 oktana bens- íni. OB, EGÓ og Atlantsolía eru þó öll skammt undan og selja líterinn 10 aurum dýrari, eða á 104,50 kr. Dýr- astur er hann svo á völdum stöðvum ESSO þar sem líterinn kostar 106,90 kr. Það munar því 2,40 kr. á hæsta og lægsta líteraverði þessa vikuna. á íslensku Til þess að hjálpa neytendum að átta sig almennilega á skammstaf- anabylgjunni sem tröllríður tækni- heimum á upplýsingaöld þá hafa Neytendasamtökin ákveðið að gefa út svokallaðan tækniorðalista á íslensku. í fréttatilkynningu frá þeim kemur fram að samtökin vilji aðstoða félagsmenn sína við val á tækjum og hafi þvi tekið saman og þýtt rúmlega 130 orð eða heiti á tengjum, skráarendingum, snið- mátum og öðrum tæknilegum hlutum sem oft koma fyrir þegar vörum er lýst í bæklingum eða í verslunum. Þar er átt við tæki eins og sjónvörp, stafrænar myndavélar, tökuvélar af ýmsum toga, DVD spil- ara, tölvur, MP3 spilara og margt fleira í þeim dúr. Tækniorðalistinn er einungis aðgengilegur félags- mönnum Neytendasamtakanna inn á lokuðu svæði þeirra á heimasíðu samtakanna. Lykilorð að svæðinu verður að finna á blaðsíðu tvö í Neyt- endablaðinu sem allir félagsmenn fá sent heim til sín. Samkvæmt Neytendasamtök- unum er þörf fyrir svona listatilþess að neytendur geti áttað sig á hvað eitt tæki getur eða getur ekki gert, sýnt eða spilað. Þar sem tækninni fleygir fram á slíkum ógnarhraða þá verður það sem er frábært í dag ekkert endilega jafn stórkostlegt á morgun. Allar skammstafanir sem koma fram í sölulýsingum tækjanna eru því ekki bara torskildar heldur beinlinis ruglandi. Fæstir geta sem dæmi útskýrt hvað AVI, Bluetooth, DTS ES, DVD+R, SACD eða USB 1.0 og XviD þýða. Það er von Neytenda- samtakanna að þessi tækniorðalisti sé upplýsandi um einstök atriði og geti aðstoðað félagsmenn þeirra í gegnum þann frumskóg tengja og tækniheita sem mæta þeim í leit sinni að hinu rétta tæki. Einnig kemur fram í tilkynningu Neytendasamtakanna að hægt sé að nálgast ítarlegar greinar um tækn- ina á bak við fjölmörg tæki sem hafa verið tekin fyrir í gæðakönnunum ICRT og hafa birst á vef samtakanna undir liðnum gæðakannanir, en slíkar greinar eru vanalega ítarlegri en sú umfjöllun sem birtist um gæða- kannanir í Neytendablaðinu sjálfu. t.juliusson@vbl.is Ný allsherjar löggjöftim kemísk efni t mótun Fyrirtœki látin taka meiri ábyrgð á framleiðslu sinni REACH verkefnið komið til ráðherraráðs ESB REACH miðar að því að skipta út skaðlegum efnum fyrir hættuminni til að vernda heilsu manna og umhverfi jarðar. Flotturnáttfatnaður fyrirdömur áöllumaldri Opnunartími mán-fös. 10-18 laugardaga 10-16 Nýbýlavegi 12 200 Kópavogi Sími 554 4433 Þingmenn á Evrópuþinginu hafa verið að reyna að ná samkomulagi um nýja s'amevrópska löggjöf varð- andi hættuleg kemísk efni að undan- förnu og sendu tillögur sínar nýverið á næsta stig ákvörðunartökuferlis- ins. Ýmsir hagsmunaaðilar komu að gerð lagabálksins, meðal annars úr iðnaðargeiranum og frá verkalýðsfé- lögum. Mikil átök hafa átt sér stað milli aðila úr iðnaði og samtaka sem leggja áherslu á heilsu- og umhverf- isvernd enda gífurlegir hagsmunir í húfi fyrir alla þar sem togast á áframhaldandi rekstrargrundvöllur heilu iðnaðanna annars vegar og áhrif kemískra efna á heilsu og um- hverfi hins vegar. Verkefnavinnan gengur undir heitinu REACH og er yfirlýst markmið hennar og eft- irfylgjandi löggjöf að auka ábyrgð fyrirtækja á gjörðum sínum og mengunum. Þau eiga að taka á sig auknar ábyrgðir í sambandi við að rannsaka og veita upplýsingar um áhrif þeirra efna sem þau framleiða, nota og markaðssetja. Frekari hömlur á efnaiðnað nauðsynlegar Mýmörg samtök fögnuðu þessari umræðu í síðustu viku. Þau lýstu yfir ánægju með að Evrópuþingið skuli hafa stigið svona stórt skref í átt að því að draga úr og vonandi ein- hvern tímann útrýma hættulegum kemískum efnum með því að reyna að finna staðgengla þeirra í örugg- ari og hreinni efnum. Gagnrýnin hefur aukist mikið á síðastliðnum árum eftir því sem áhrif eiturefna, bæði á heilsu fólks sem og umhverfi, hafa orðið sýnilegri. Nýleg rann- sókn á þremur kynslóðum kvenna í Danmörku sýndu til dæmis svart á hvítu að ekki er vanþörf á að setja efnaiðnaði frekari skorður. Niður- stöður hennar sýndu að í blóði 12 ára gamallar stúlku væri hægt að mæla 22 kemísk efni. 43 ára gömul móðir hennar mældist með 21 efni í sínu blóði og 66 ára gömul amma hennar með 33 efni, meðal annars hið ban- eitraða skordýraeitur DDT sem getur valdið ófrjósemi hjá bæði körlum og konum auk þess sem að vísinda- menn hafa greint orsakasamband milli DDT og brjóstakrabbameins. Allt of margar undanþágur Evrópuþingið samþykkti eins og áður segir ályktun sem á að skuld- binda fyrirtæki í efnaiðnaði til að skipta út hættulegum kemískum efnum fyrir öruggari valkosti þegar slíkir eru fyrir hendi. Með því sendi það skýr skilaboð til ráðherra rik- isstjórna aðildarríkja Evrópusam- bandsins sem munu taka næstu ákvarðanir um umfang og stefnu REACH. Ljóst þykir að þeir verða einnig undir miklum þrýstingi frá umhverfisverndarsamtökum og hagsmunasamtökum um heilsu- vernd til að afturkalla þær þúsundir undantekninga sem Evrópuþingið veitti. Sú undanþága nær ekki ein- vörðungu til notkunar heldur þurfa mörg fyrirtækjanna heldur ekki að veita nauðsynlegar upplýsingar um skaðsemi efna sinna gegn heilsu fólks né hvaða viðeigandi öryggis- ráðstafanir notendur efnanna gera til að koma í veg fyrir að efnin skaði almenning og umhverfi. Andstæð- ingar þessa segja að undanþágurnar geri það kerfisbundið ómögulegt að skipta gömlu eitruðu efnunum út fyrir ný og öruggari efni, sem eigi einmitt að vera megintilgangurinn með REACH. I dag liggja ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar um áhrif 90% þeirra efna sem notuð eru í iðnaði á umhverfi og heilsu. Um- hverfis- og heilsuverndarsamtök hafa því gagnrýnt að REACH hafi verið útvötnuð of mikið og muni ekki skila tilætluðum árangri nema að öll efni verði rannsökuð, skrásett og flokkuð þar sem að markmið lagasetningarinnar, að geta greint og fjarlægt hættulegustu efnin, ná- ist ekki öðruvísi. Ráðherraráð Evrópusambandsins getur hert lagafrumvarpið umtals- vert ef nægjanlegur stuðningur við slíkt skapast þar og því herja and- stæðingar þess á ráðið af fullum hug um þessar mundir til að tryggja sínum sjónarmiðum brautargengi. 1 sameiginlegri yfirlýsingu þeirra segir að REACH sé einstakt tæki- færi til að vernda konur, karlmenn, börn og umhverfið frá hættu- legum efnum og að því ætti ekki að fórna fyrir skammtímasjónar- mið og gróðrahagsmuni stórtækra efnaframleiðenda. t.juliusson@vbl.is

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.