blaðið - 29.11.2005, Blaðsíða 13
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2005
NEYTENDUR I 13
Alþjóðasamband neytenda hefur hvatt WTO til að spyrna við þeim tilslökunum á örygg-
iskröfum sem hafa átt sér stað að undanförnu, m.a. í sambandi við bílaframleiðslu.
Gefum grœnum
vörum grœnt Ijós
Alþjóðasamband neytendasamtaka,
Consumer International (CI), hafa
sagt að Alþjóða viðskiptastofnunin
(WTO) verði að spyrna við þeirri
þróun sem hefur orðið í sumum
aðildarríkja stofnunarinnar, en þar
hafa lög um merkingar á umhverf-
isvænum vörum verið útþynnt og
jafnvel afnumin undir þeim for-
merkjum að slik lög séu viðskipta-
hindranir. Þær merkingar sem um
ræðir tryggja til dæmis rétt neyt-
enda til að fá að vita hvort um vist-
vænar vörur sé að ræða eða ekki
þannig að hann geti lagt sitt að
mörkum til umhverfisins með vesk-
inu og um leið stuðlað að sjálfbærri
þróun og heilsusamlegra líferni. í
yfirlýsingu frá CI kemur fram skýr
áskorun á WTO að „gefa grænum
vörum grænt ljós.“
Eru hrædd um að
neytendur gleymist
CI segir að þetta sé þróunin í
mörgum löndum. Hægt er að taka
fjölmörg nýleg dæmi um þessa
stefnubreytingu. Suður-Kórea hefur
til dæmis véfengt bandarískar merk-
ingar á orkusparandi ísskápum, of
ströngum öryggisráðstöfunum og
öryggiskröfum á bílum og kröfur
sem eru „strangari en nauðsynlegt
þykirum ákveðin kemísk efni.
Suður-Kórea er ekki eitt um að
storka þessum kröfum. Fjölmörg
önnur ríki hafa á síðustu árum mót-
mælt kröftuglega háum öryggis- og
gæðastöðlum sem þau neyðast til að
fylgja auk þess sem vottunarkerfi
fyrir raftæki hafa gert mörgum
þeirra lífið leitt. I yfirlýsingu CI
kemur fram að þetta sé þróun sem
verði að stöðva. Takmarkanir á
notkun ákveðinna þungamálma má
ekki að þeirra mati gleymast vegna
samningaviðræðna um samdrátt og
jafnvel algera eyðingu á viðskipta-
hindrunum milli landa. Samtökin
hafa af því miklar áhyggjur að ýmis
lykilmálefni sem snerta heilsu og
umhverfi manna séu að verða
útundan í þessum samningsvið-
ræðum. Þau leggja því áherslu á að
WTO tryggi fyrst rétt neytenda áður
en réttur til frjálsari viðskiptahátta
verði ræddur frekar.
Umferðar-
öryggisgjald
tvöfaldast?
I breytingartillögum við umferð-
arlög sem nú liggja fyrir Alþingi
íslendinga er lagt til að umferðar-
öryggisgjald verði hækkað um heil
100%, úr 200 krónum í 400 krónur.
Gjaldið á að renna óskipt til Umferð-
arstofu. Tilgangur hækkunarinnar
á að vera sá að tryggja fjármagn til
þess að standa straum af útgjöldum
vegna umferðaröryggisáætlunar.
Þetta kemur í kjölfar þess að Al-
þingi samþykkti síðastliðið vor sam-
gönguáætlun fyrir tímabilið 2005-
2008 en umferðaröryggisáætlun var
þá í fyrsta sinn hluti af slíkri áætlun.
Stefnt er að því að Umferðarstofa
muni taka þátt í öllum verkefnum
umferðaröryggisáætlunar sem falla
undir lögboðið hlutverk hennar. Þá
mun Umferðarstofa einnig hafa um-
sjón með framkvæmd og skýrslu-
gerð vegna áætlunarinnar.
Verður varið í aukna fræðslu
Umferðaröryggisgjaldinu er ætlað
að standa straum af kostnaði vegna
fjármögnunar áætlunarinnar. Sam-
kvæmt heimasíðu Félags íslenskra
bifreiðaeigenda (FÍB) er stefnt að
því að verja 368 milljónum króna
til umferðaröryggisfræðslu og
áróðurs af ýmsum toga á næstu
fjórum árum. Þessum fjármunum
verður meðal annars varið til þess
að efla umferðaröryggisfræðslu í
leik- og grunnskólum. Einnig verður
varið fé til fræðslu ökumanna í þjón-
ustu hinna ýmsu fyrirtækja auk
þess sem á að greiða fyrir gerð kynn-
ingarefnis fyrir erlenda ferðamenn
og búa til fræðsluefni um notkun ör-
yggisbelta. Eins og staðan er í dag þá
skilar umferðaröryggisgjaldið um
35 milljónum króna í kassann árlega.
Ljóst er að slíkt er ekki fullnægjandi
til þess að standast þá kostnaðar
áætlun sem hefur verið reiknuð út
fyrir verkefnið. Tvöföldun gjaldsins
gefur hins vegar af sér um 70 millj-
ónir króna árlega, eða 280 milljónir
króna á þeim fjórum árum sem verk-
efnið á að standa yfir. Það dugar þó
samt sem áður ekki til að standa
straum af öllum kostnaðinum og
þvi ljóst að verkefnin verða einnig
fjármögnuð að einhverju leyti af
öðrum liðum af vegaáætlun.
tjuliusson@vbl.is
www.toyota.is
Betri notaðir Corolla í toppformi.
Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - strangt skoðunarfcrli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð.
Toyota
Nýbýlavegi 4
KÓPAVOGUR
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
AKUREYRI
Sími: 460-4300
Toyotasalurinn
Njarðarbraut 19
REYKJANESBÆR
Sími: 421-4888
Toyotasalurinn
Fossnesi 14
SELFOSS
Sími: 480-8000
Betri notaðir Corolla Sedan eru bestu kaupin í nóvember og eru langt mikið dekraðir og undir stöðugu eftirliti. Ef þú vilt úthaldsmikinn bíl á
frá því að vera útkeyrðir. Sem fyrrverandi bílaleigubílar hafa þeir verið hagstæðu verði fyrir veturinn þá er Corolla Sedan bíllinn fyrir þig.
^GIItnlr
* m.v. 10% útborgun og 75 mánaða bílasamning hjá Glitni. Gildir aðeins út nóvember.
BETRI NOTAÐIR BÍLAR TOYOTA
Corolla Sedan á kostakjörum.