blaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 17
blaðið FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005
VÍSINDI I 17
Titanic sökk hraðar en
áður var haldið
Fundur tveggja stóra hluta úr hinu sögufrœga stórfleyi Titanic semfundust nýverið á hafsbotni
benda til þess að lúxusskipið hafi sokkið mun hraðar en talið var áður.
Hlutarnir úr skipsskrokknum sem
fundust voru afar mikilvægir í
samsetningu skipsins og mynduðu
saman þann hluta af botni skips-
ins sem vantaði á það þegar Titanic
fannst fyrst árið 1985, en skipskrokk-
urinn sjálfur var uppgötvaður af
könnuðinum Robert Ballard á
13.000 feta dýpi um 380 mílur suð-
austur af Nýfundnalandi. Roger
Long, flotaarkitekt sem rannsakaði
brotin, segir að allt bendi til þess að
botn skipsskrokksins hafi losnað en
stafn og skutur þess sokkið í fram-
haldi af því. Skuturinn, sem var enn
flothæfur og krökkur af fólki þegar
botninn losnaði af, er talinn hafa
steypst niður á botn norður Atlants-
hafsins um það bil 5 mínútum á eftir
undirhluta Titanic.
Eldri rannsóknir höfðu komist
að þeirri niðurstöðu að skipið hefði
brotnað í tvo aðalhluta, stafn og skut,
sem var einmitt aðferðarfræðin sem
miðað var við þegar ferðalag Titanic
á hafsbotninn var endurskapað í
Óskarsverðlaunamynd James Cam-
eron frá árinu 1997.
Átti að vera ósökkvanlegt
David Brown, sagnfræðingur sem
hefur rannsakað Titanic gaumgæfi-
lega, sagði fyrr í vikunni að hann
hefði alltaf talið að það hefði tekið
skutinn um 20 mínútur að sökkva
niður í hyldýpið í stað þeirra fimm
mínútna sem nú er haldið fram að
það hafi tekið. „Það kom í ljós að Tit-
anic var miskunnarsamt. Þetta tók
styttri tíma,“ sagði Brown á blaða-
mannafundi fyrr í vikunni.
Titanic var á sínum tíma sagt
ósökkvanlegt fley. Það sigldi hins
vegar á ísjaka þann 14. apríl árið
1912 þegar það var í jómfrúarferð
sinni yfir Atlantshafið. Um 1.500
farþegar sem voru um borð létust í
kjölfarið. Nýju hlutarnir sem fund-
ust úr skipinu fundust um þriðjung
úr mílu frá þeim stað sem skutur
flaksins hafði fundist fyrir tuttugu
árum í leiðangri sem var farinn í
ágúst síðastliðnum á vegum sjón-
varpsstöðvarinnar History Channel.
Heimildarmynd um fundinn verður
frumsýnd á sjónvarpsstöðinni þann
26. febrúar næstkomandi.
t.juliusson@vbl.is
Titanic kostaði á sínum tíma um 1.500 manns lifið þegar skipið sökk eftir árekstur við
ísjaka.
Aus Liebe zum Automobil
Verð áður 1,990:000 kr.
Tilboðsverð 1.870.000 kr.
187.000 kr. útborgun og 24.690 kr. afborgun á mánuði *
Verð áður 2,490:000 kr.
Tilboðsverð 2.340.000 kr.
234.000 kr. útborgun og 30.890 kr. afborgun á mánuði *
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf„ Akureyri, sfml 481 6020 • HEKLA, Borgamesi, alml 437 2100 • HEKLA, IsaflrOi, slml 456 4666
HEKLA, Reyöarfiröi, siml 470 5100 • HEKLA, Reykjanesbœ, slml 420 5000 • HEKLA, Selfossl, síml 482 1416
HEKLA, Laugavegi 174, slml 590 5000
www.hekla.ls, heklaOhekla.is