blaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 41
blaðið FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005
AFPHSYING I 41
Snerting
Sú aðferð sem notuð er til að leika
við kanínurnar í leiknum er tengd
þvi sem konur segja að komi þeim
til. Þannig skiptir máli hversu ákaft
maður strýkur nef eða skott kanínu,
hversu oft maður breytir þrýstingi,
hraða og slíku. Einnig skiptir máli
hversu lengi maður strýkur, kitlar
eða blæs á hvern hluta kanínunnar.
Einnig er mismunandi hvað kem-
ur hverri kanínu til að fljúga og er
það miserfitt eftir því sem líður á
leikinn. Til dæmis er nóg að kitla
í byrjun og hvísla. Eftir smástund
hættir þetta þó að virka og nauðsyn-
legt verður að þrýsta oft á nefið. Not-
ast er við Nintendo DS eins og áður
sagði en þá kemur snertiskjárinn að
góðum notum sem og hátalari sem
er á vélinni.
Ekki samfarir
Þema hönnunarkeppninnar var
kynlíf án þess að útskýra það nánar.
Kelley segist hafa einblínt á kynferð-
islega ánægju fremur en kynlífið
sjálft. „Ég eyddi löngum tíma í að fá
hugmynd að leik sem væri skemmti-
legur, krefjandi, fyndinn, gagnvirk-
ur og ekki eingöngu til að þóknast
dómnefndinni. Fæstar hugmynd-
irnar stóðust allt þetta þangað til
Kanína kennir kynlif
Á leikjaráðstefnu í Montreal var haldin hönnunarkeppni þar
sem þemað var kynlíf. Sigurvegarinn var Heather Kelley, leikja-
hönnuður hjá Ubisoft. Leikurinn hennar kennir konum að fá
fullnægingar án þess að vera dónalegur.
Leikurinn heitir Lapin og er hægt að
spila hann á Nintendo DS handtölv-
unni. Samkvæmthönnuðinumkenn-
ir hann spilurum á óbeinan hátt
tækni sem stuðlar að kynferðislegri
ánægju kvenna. „Hann virkar þann-
ig að spilarar hjálpa krúttlegum
kanínum að fljúga í gegnum fallegt
umhverfi," segir Kelley. „Kanínurn-
ar eru hliðstæðar kynörvandi svæð-
um kvenna. Með því að vera góð/ur
við kanínurnar, klappa þeim, kitla
nefið, syngja fyrir þær eða hvísla, er
hægt að koma þeim á flug í gegnum
stórkostlegan ævintýraheim, nokk-
urs konar sælustað mætti segja. Á
meðan spilarar læra hvað kemur
kanínunum til er hann ómeðvitað
að læra tækni til að koma konum
til, þrátt fyrir að það sé hvorki yfir-
lýst markmið leiksins né nokkurn
tímann nefnt í honum. Hugmyndin
var að leikurinn næði til sem flestra
kvenna þannig að það sem maður
gerir er nautnafullt og hrynjandinn
er keimlíkur kynferðislegri ánægju
og fullnægingu, en allt útlit virðist
ekkert tengjast kynlífi."
ég fékk hugmyndina um Lapis. Við
vinnsluna komst ég svo að því að
kynlífstengdir leikir þurfa ekki að
ganga út á samfarir.“
Kelley telur óliklegt að nokkur sjái
sér fært að veita peningum í verkefn-
ið svo hægt verði að dreifa eða mark-
aðssetja leikinn. Því er ólíklegt að
leikurinn líti nokkru sinni dagsins
ljós í hillum verslana.
Kaninan tekst á loft, fer i sjöunda himinn. Nuddaðu nefið og hún sér flugelda.
T
/ Islenski bachelorinn fi kl m .20
Allt látið flakka Fylgstu með þegar stelpurnar í íslenska bacelornum galopna sig og segja frá öllu sem ekki hefur verið sagt. C Ð
Síminn sjóvá
bjóða upp á íslenska bachelorinn
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
blaðið^