blaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 41

blaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 41
blaðið FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 AFPHSYING I 41 Snerting Sú aðferð sem notuð er til að leika við kanínurnar í leiknum er tengd þvi sem konur segja að komi þeim til. Þannig skiptir máli hversu ákaft maður strýkur nef eða skott kanínu, hversu oft maður breytir þrýstingi, hraða og slíku. Einnig skiptir máli hversu lengi maður strýkur, kitlar eða blæs á hvern hluta kanínunnar. Einnig er mismunandi hvað kem- ur hverri kanínu til að fljúga og er það miserfitt eftir því sem líður á leikinn. Til dæmis er nóg að kitla í byrjun og hvísla. Eftir smástund hættir þetta þó að virka og nauðsyn- legt verður að þrýsta oft á nefið. Not- ast er við Nintendo DS eins og áður sagði en þá kemur snertiskjárinn að góðum notum sem og hátalari sem er á vélinni. Ekki samfarir Þema hönnunarkeppninnar var kynlíf án þess að útskýra það nánar. Kelley segist hafa einblínt á kynferð- islega ánægju fremur en kynlífið sjálft. „Ég eyddi löngum tíma í að fá hugmynd að leik sem væri skemmti- legur, krefjandi, fyndinn, gagnvirk- ur og ekki eingöngu til að þóknast dómnefndinni. Fæstar hugmynd- irnar stóðust allt þetta þangað til Kanína kennir kynlif Á leikjaráðstefnu í Montreal var haldin hönnunarkeppni þar sem þemað var kynlíf. Sigurvegarinn var Heather Kelley, leikja- hönnuður hjá Ubisoft. Leikurinn hennar kennir konum að fá fullnægingar án þess að vera dónalegur. Leikurinn heitir Lapin og er hægt að spila hann á Nintendo DS handtölv- unni. Samkvæmthönnuðinumkenn- ir hann spilurum á óbeinan hátt tækni sem stuðlar að kynferðislegri ánægju kvenna. „Hann virkar þann- ig að spilarar hjálpa krúttlegum kanínum að fljúga í gegnum fallegt umhverfi," segir Kelley. „Kanínurn- ar eru hliðstæðar kynörvandi svæð- um kvenna. Með því að vera góð/ur við kanínurnar, klappa þeim, kitla nefið, syngja fyrir þær eða hvísla, er hægt að koma þeim á flug í gegnum stórkostlegan ævintýraheim, nokk- urs konar sælustað mætti segja. Á meðan spilarar læra hvað kemur kanínunum til er hann ómeðvitað að læra tækni til að koma konum til, þrátt fyrir að það sé hvorki yfir- lýst markmið leiksins né nokkurn tímann nefnt í honum. Hugmyndin var að leikurinn næði til sem flestra kvenna þannig að það sem maður gerir er nautnafullt og hrynjandinn er keimlíkur kynferðislegri ánægju og fullnægingu, en allt útlit virðist ekkert tengjast kynlífi." ég fékk hugmyndina um Lapis. Við vinnsluna komst ég svo að því að kynlífstengdir leikir þurfa ekki að ganga út á samfarir.“ Kelley telur óliklegt að nokkur sjái sér fært að veita peningum í verkefn- ið svo hægt verði að dreifa eða mark- aðssetja leikinn. Því er ólíklegt að leikurinn líti nokkru sinni dagsins ljós í hillum verslana. Kaninan tekst á loft, fer i sjöunda himinn. Nuddaðu nefið og hún sér flugelda. T / Islenski bachelorinn fi kl m .20 Allt látið flakka Fylgstu með þegar stelpurnar í íslenska bacelornum galopna sig og segja frá öllu sem ekki hefur verið sagt. C Ð Síminn sjóvá bjóða upp á íslenska bachelorinn Smáauglýsingar 510-3737 Auglýsingadeild 510-3744 blaðið^

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.