blaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 45

blaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 45
blaóið FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 DAGSKRA I 45 Jólamyndin The Chronicles of Narnia Ein af jólamyndunum í ár verður ævintýramyndin The Chronicles of Narnia: The Lion, the Witch & the Wardrobe sem er byggð á sögu eftir C.S. Lewis. Hér er um sígilda barnasögu að ræða og er leikstjóri myndarinnar Andrew Adamson en hann leikstýrði Shrek teiknimyndinni. Myndin verður frumsýnd annan í jólum. Leikarar sem koma við sögu í mynd- inni eru meðal annars Tilda Swin- ton, Rupert Everett, Jim Broadbent, Ray Winstone og Dawn French. Myndin fjallar um umkomulaus börn í seinni heimsstyrjöldinni á Englandi. Til að forða börnunum frá loftárásum þýska flughersins er ákveðið að senda börnin Lucy, Edmund, Susan og Peter til frænda þeirra í sveitinni en þar starfar hann sem vísindamaður og upp- finningamaður. Þegar börnin fara í feluleik á sveitasetrinu komast þau í snertingu við galdraklæði sem gerir þeim kleift að hverfa til ævintýra- landsins Narnía, þar sem góð og ill öfl berjast um völdin. Hér er á ferð- inni ein stærsta fjölskyldumynd ársins. Myndin hefur fengið glimrandi dóma erlendis. Hún er ekki flokkuð undir klisju og stendur vel undir væntingum. Gagnrýnendur segja það virka vel í myndinni að hafa ekki þekkta leikara og Tilda Swin- ton þykir fullkomin í hlutverki hvítu nornarinnar. 1 1 EITTHVAÐ FYRIR... ...nýgrœðinga ■ Stutt spjall: Snorri Sturluson Snorri sér um þáttinn Snorralaug alla virka daga milli 14 og 17 á XFM. Sjónvarpið Nýgræðingar klukkan 20.20 Gamanþátta- röð um lækn- inn J.D. Dorian og ótrúlegar uppákomur sem hann lendir í. Á spítalanum eru sjúk- lingarnir furðulegir, starfsfólkið enn undarlegra og allt getur gerst. Aðalhlutverk leika Zach Braff, Sarah Chalke, Donald Adeosun Fai- son, Ken Jenkins, John C. McGinley og Judy Reyes. . bakarameistara Stöð 2, Eldsnöggt með Jóa Fel, klukkan 20:40 Bakarameistarinn Jói Fel kann þá list betur en margir aðrir að búa til einfalda en girnilega rétti. Hann heldur uppteknum hætti og kitlar bragðlauka sjón- varpsáhorfenda sem aldrei fyrr. { þáttunum býður Jói Fel til sín góðum gestum. ...frekjur Skjár 1, Silvía Nótt, klukkan 22:00 Frægasta frekjudós landsins snýr aftur og heldur áfram að stuða áhorf- endur með sínum óútreiknanlegu uppátækjum og dekurstælum. Hvernig hefuröu þaö í dag? „Ég hef það bara glimrandi fínt." Hvenaer hófstu störf við fjölmiðla? „Haustið '86. Þá sótti ég um að lesa aug- lýsingar á RÚV-Ak. Þeir auglýstu eftir aug- lýsingalesara og þetta hentaði ágætlega með skóla. Ég fór í lestrarprufu og það endaði með því að við vorum fjögur eða fimm sem vorum fengin til að sjá um ung- lingaþáttinn Umaðgera. En fyrsta útvarps- upptakan var þegar ég var fenginn til að lesa fyrireinhvern annan unglingaþátt og gerðist svo frægur að fyrsti maðurinn sem hljóðritaði mig í útvarpi var Björgvin Minningartón- leikar Rafns Jónssonar í minningu manns I kvöld munu vinir, vandamenn og velunnarar Rafns Jónssonar halda tónleika á Grand rokk til að heiðra minningu hans. Hann lést sumarið 2004, en 8. desember er fæðingar- dagur hans. Rafn lést eftir hetjulega baráttu við MND sjúkdóminn sunnudaginn 27. júní á fimmtugasta aldursári. Rabbi, eins og hann var oftast nefndur, kom víða við sögu í íslensku tónlist- arlífi. Hann hóf feril sinn með því að spila á trommur árið 1968 og spilaði á þær allt til ársins 1993 þegar hann lagði kjuðana á hilluna vegna veik- inda sinna. Meðal hljómsveita sem Rabbi lék með og stofnaði eru Náð, Ýr, Grafík, Bítlavinafélgið og Sálin hans Jóns míns. Á tónleikunum, sem verða óraf- magnaðir, munu koma fram Ragnar Sólberg og Egill Örn, synir Rafns, ásamt hljómsveitinni Sign, Rúnar Þórisson mun ásamt Kalla (áður í Without Grafiti) og Láru leika lög af nýútkomnum geisladiski Rúnars Ósögð orð og ekkert meir. Einnig flytur Lára nokkur lög af væntan- legum sólódisk sínum sem kemur út á næsta ári og Heiðar Krist- jánsson, sem liefur starfað undir nafn- inu The Viking Gi- ant Show, treður upp. Tónleikarnir hefjast Jólatllboö: kr, 39,900,- Fjölskyldugjöfin í ár Hágæða 8,5” DVD spilari í bilinn Fjöldi aukahluta fáanlegir M.H.M. ehf. ■ Auðbrekka 24 ■ 200 Kópavogur Sími 564 6600 ■ Fax 564 6611 ■ www.mhm.is Sendum í póstkröfu um land allt heitinn Júníusson, sem meðal annars fann upp Mix-drykkinn! Snorralaug hefur svo verið í nokkra mánuði á XFM en var þaráðurá Rás 2.” Var það æskudraumur þinn að starfa í útvarpi? „Já, en æskudraumur án þess að stefnan væri beinlínis sett á það. Svo langaði mann bara að verða þetta klassíska, strætóbílstjóri, slökkviliðsmaðurog lögga. Svo er ég af sjómannsættum og það var því líka alveg inni í myndinni." Er útvarpsmennska öðruvísi en þú hafðir ímyndað þér? „Nei, ekki svo. Ég hafði reyndar bæði komið örlítið nálægt upptökum og afrekað það að koma fram í bandarísku útvarpi með óskalagaþátt. Ég bjó í New York og á þeim tíma voru nokkrir skólar þar að sjá um þátt og þegar kom að okkar skóla var (slendingurinn fenginn til að sjá um þetta. Ég vissi nokkurn veginn að hverju ég gekk á sínum tíma, en það sem hefur komið á óvart með starfið eru allar breytingarnar. Bæði er tæknihliðin orðin flóknari og starfið umfangsmeira. Á tæplega 20 árum sem útvarp á (slandi hefur verið„frjálst" hafa hlutir gerst sem Bandaríkjamenn gerðu á 50-70 árum. Fjöl- miðlaumhverfið er líka að breytast svo mikið með öllu því sem kallast raunveru- leikaþættir og það allt saman. Þetta er ekki lengur svona formfast og geirneglt, þetta er opnara." Gætirðu lýst dæm igerð um degi í lífi Snorra Sturlusonar? „Það er nú misjafnt hvenær ég vakna á morgnana, en ég er yfirleitt orðinn virkuruppúrníu. Mérfinnstafskaplega gott að fá einhverjar upplýsingar í hausinn áðurenégferaf stað, hvort sem það erúrblöðunum, Netinu eða sjón- varpinu. Helstu fréttir og hvað hefur verið að gerast í NBA- boltanum um nóttina og svona. Svo er þetta þessi klassíski vinnudagurfram til 5-6 sem á þó til að teygjast aðeins. Svo er bara dúllerí á kvöldin." Hvað er uppáhaldstími dagsins? Ég er reyndar alveg ferlegur næturbröltari. Morgnarnir eru ágætir en ég á oft erfitt með að berja mig niður á kvöldin, það er eitthvert brölt-„element‘ í gangi. Þetta er svipað og með það að vakna daginn eftirfylleríið og segja:„Nei, nú er ég hættur þessu," og eins ákveður maður svona 6 sinnum í viku að fara fyrr að sofa." Hver myndir þú vilja að væri lokaspurning- in í þessu stutta spjalli? „Ég myndi vilja að loka- spurningin væri:„Hver erskemmtilegasti dagursumarsins?" og svarið er auðvit- að„Fiskidagurinn á Dalvík"." , ••• SANNKÖLLUÐ ••• JOLASVEIFLA JÓLAGJAFIR SEM ENGINN KYLFINGUR SLÆR Á MÓTI ORYX GOLFSETT VANDAÐ GOLFSETT MEÐ 4-SW, DRIVER (400 CC), ÞRJÚTRÉ, HÁLFVITA, PÚTTER OG BURÐARPOKA VERÐ: 24.900,- VERÐ ÁÐUR : 35.700,- FARA GOLFSKÓR OG GOLFHANSKI FYLGJA FRlTT MEÐ ROYALCLUB FYRIR ÞA SEM VILJA LÉTTA OG STERKA BURÐARPOKA. POKINN ER VEL FÓÐRAÐUR MEÐ MJÚKUM AXLARÓLUM VERÐ: 5.880,- VERÐ AÐUR : 9.800,- 1 2 J2

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.