blaðið - 08.12.2005, Síða 24

blaðið - 08.12.2005, Síða 24
24 I MATUR FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 blaðið ONDVEGIS- ELDHÚS ^ RAGGA ÓMARS, MATREIÐSLUMEISTARA Jæja, áfram með jólamatarundirbúninginn! Nú var ég að spá í að fara aðeins yfir meðlætið með jólasteik- inni. Þó að dósameðlæti sé alltaf ágætt þá er alltaf skemmtilegra að græja meðlætið sjálfur og ætla ég að benda á nokkrar hugmyndir. Gamla góða rauðkálið er algjör nauðsyn fyrir flesta og það er ekkert mál að búa það til frá grunni, enn skemmtilegra er að leika sér aðeins og krydda það svolítið upp. Ein aðferðin sem ég nota er að sjóða fersk trönuber með rauðkálinu því það gefur því svona ávaxtakeim sem er snilld. Þegar rauðkál er lagað er það saxað í fína strimla ásamt rauð- lauki og þetta er síðan svitað í heitum potti í smá olíu þar til það fer að mýkjast, en má alls ekki brúnast. Þá er sykrinum, berjunum og vökvanum bætt út í (sjá uppskrift á eftir) og látið sjóða við vægan hita þar til nánast allur vökvi er uppurinn. Þá er nauðsynlegt að smakka til með sykri og sýru þar til rétta jafnvægið er fengið því að rauðkál á að vera súrsætt. Annað meðlæti, sem ég get ekki verið án á jólunum, er eplasalat eða Waldorfsalat eins og það heitir í gastronomykini. En ef menn ætla að kalla það Waldorf- salat þá er það salat með eplateningum, léttsoðnum selleríteningum og valhnetum, dressað upp með chantilly-sósu sem samanstendur af þeyttum rjóma, sykri og sítrónusafa. Það er líka bara hægt að kalla það eplasalat og bæta í það því sem manni langar til. Þegar ég laga eplasalat fyrir mig og mína þá nota ég Waldorfsalat-uppskrift og bæti appelsínubitum, fínt rifnu hvítkáli og smá majónesi við, gasalega gott (læt uppskrift fylgja hér á eftir). Eitt meðlæti í viðbót er nýjung fyrir marga og skemmtileg viðbót við þetta hefðbundna en það er gras- kersmauk. Mér finnst graskersmauk meiriháttar og það er ekkert mál að verða sér úti um grasker því flestir vandaðir stórmarkaðir eru með þetta í grænmetis- borðum sínum og minnsta mál að laga. Mér finnst best að skera það í tvennt og skafa steinkjarnann úr, setja á disk með plastfilmu yfir og setja í örbylgjuofn í u.þ.b. 20 mínútur þar til graskerið er vel mjúkt. Þá er allt skafið úr hýðinu og sett í pott með smá smjöri og kryddað með smá múskati og salti og pipar. Hrært vel í þar til það verður að grófu mauki, skothelt. Rauðkál fyrir 8 manns: 1 haus (u.þ.b. 1 kg) rauðkál (saxað I flna strimla) 2stk rauðlaukur (saxaður I fina strimla) 300 trönuber 3 msksykur 2msk púðursykur 2 dl rauðvínsedik Vrdlportvin Vi dl rauðvín Eplasalat fyrir 8 manns: 2 stkgræn epli (skorin I litla bita) 1 stilkur selleri (skorið í litla bita og soðið I vatni f 3 mínúturog kælt) 1 stk appelsina (skræld og skorin I litla bita) 2 dl hvítkál (fíntrifið I rifjárni) 2 dl þeyttur rjómi 1 dlmajónes 2 msksykur 4 msk sítrónusafi smátt saxaðar valhnetursettar yfir i lokin, ekki blanda saman Kveðja, Raggi KRYDDAÐU TILVERUNA UM JÓLIN MEÐ VÍNUM FRÁ SUDUR ÍTALÍU CASTELLANI Castellani fölskyldan kemur frá Flórens á Ítalíu og hefur haft mikil áhrif í borginni allt frá dögum Dante. Fjölskyldan hefur átt vínekrur og gert vín í yfir 100 ár og hefur í gegnum tíðina öðlast mikla virðingu og skapað sér nafn fyrir gæði og stöðugleika. (dag er Castellani rekið af þeim tveim bræðrum Pier Giorgio og Roberto. Castellani á í dag yfir 250 hektara af landi íToscana og að auki vinna þeir með bændum sem eiga aðra 1000 hektara. Fattoria di Travalda, ÍToscana, er átöppunarverksmiðjan þeirra og þar er geymslurími fyrirtækisins. Á síðustu árum hefur Castellani haslað sér völl um alla Ítalíu og bjóða nú uppá vín frá flestum héröðum landsins. Á (talíu notast víngerðarmenn við yfirgripsmikið gæðaflokkunarkerfi og Castellani er eitt fárra fyrirtækja sem famleiðir vín í öllum flokkum, frá borðvínum til mjög dýrra gæðavína sem eru eingöngu seld á uppboðum. Hér eru tvær tegundir frá Suður ftalíu. Báðar tegundir eru eru skemmtilegar nýjungar í okkar flóru. NERO D AVOLA SIKILEY, CASTELLANI Nero d avola þrúgan. Vínið er dökkt á litin, heitt og mikið með miklu balsamic bragði, ásamt þvi að vera líflegt og langt. Það er sólríkt, heitt og bragðmikið - sannkallað miðjarðarhafsvín. Þetta er vín sem fellur að smekk margra og passar með nánast öllu sem er dökkt. Vínið er lifand og margbreytilegt og getur því gengið með léttum kjötréttum og tapasréttum. Jafnvel mjúkum ostum. Heitt!!! PRIMITIVO DIPUGLI, CASTELLANI Primitivo eða Zinfandel þrúgan er alltaf mikið pipruð og það er engin undantekning hér. Vínið er ávaxtaríkt með áberandi krækiberjum og svo kemur piparinn og sprengir vínið upp. Það er ekki langt en gott jafnvægi er í ávextinum, sem gerir vínið sprelllifand. Þegar kryddað er með svörtum pipar, hvort sem um fisk eða kjöt er að ræða, þá er skilda að hugsa til þessa víns. Piprað!!! Verö á vínum aðeins 1090,- Fæstí öllum helstu vínbúðum. Skál og góða helgi! Kv, Vínandinn Harry Lokkandi Ijúffengan hátíðarilm leggurfrá þessari vönduðu blöndu sérvalinna úrvalskaffibauna. Hátíðarkaffið er í fullkomnu jafnvægi, hefur fágað hunangsmjúkt bragð, mikla fyllingu og eftirkeim af ávöxtum og berjum. Kaffiáhugafólk ætti ekki að láta þetta kaffi fram hjá sér fara. Kaffið er í frábæru jafnvægi, með meðal fyllingu og einstöku eftirbragði. Njótið vel! Kaffihús: Laugavegi 24 Smáralind Verslanir: Kringlunni Smáralind Laugavegi 27 Suðurveri

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.