blaðið

Ulloq

blaðið - 08.12.2005, Qupperneq 26

blaðið - 08.12.2005, Qupperneq 26
26 I MATUR FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 blaöið Fiskur umjólin Veik aí kjötáti á aðfangadag Margir eni farnir að skipuleggja jólamatinn og eflaust er kalkúnn, hamborgarhryggur og rjúpur þar efsta á lista. Hjá grænmetisætum virðist hnetusteikin vera vinsæl en Steinunn Kristinsdóttir hjá Maður lifandi ætlar að hafa skötusel og humar í matinn á aðfangadag. Steinunn er grænmetisæta en segist samt sem áður borða hvítt kjöt ein- staka sinnum. „Ég borða fisk en hef varla borðað kjöt síðan ég var sextán ára. Þó reyni ég að fá mér kjúkling 2- 3 sinnum í mánuði til að fá próteinið. Ég hugsa mikið um samsetningu mataræðisins og veit því hve próteinið er mikilvægt.“ Ástæða þess að Stein- unn borðar ekki kjöt segir hún vera að henni hafi aldrei liðið vel af kjöti. .Sérstaklega ekki af jólakjötinu. Ég var bara alltaf veik á aðfangadagskvöld eftir svínakjötið og þá bara hætti ég í kjötinu. Þetta er allt annað líf í dag.“ Steinunni finnst sjálf ekki skrýtið að borða kjöt en viðurkennir þó að fjöl- skyldunni finnist þetta jafnvel skrýtið Treður sínum venjum ekki upp á neinn Steinunn segist aldrei sakna kjöts og á hennar heimili er aldrei keypt kjöt nema þá íyrir börnin. Hún breytir til á aðfangadag og reynir að hafa ekki alltaf það sama. „Ég hef verið með kal- kún um jólin þegar ég var að minnka kjötneysluna. En núna ætla ég að vera ‘fiss&f KRINGLUNNI Slmi: 568 6440 I busahold@busahold.is Stálpottasett á góðu verði Brúðhjónalistar og gjafakort búsáhöld með skötusel og humar í matinn á aðfangadag.“ Aðspurð hvort fjöl- skyldan borði þá fisk með henni segir Steinunn að hún reyni nú ekki að troða sínum matarvenjum upp á neinn. „Ég hef þess vegna tvíréttað. En ef fólk vill borða með mér þá er það velkomið. En i ár ætla ég bara að hafa skötuselinn og humar. Mér finnst þessi máltíð eiginlega fínni en margar jólamáltíðir. Maður borðar skötusel og humar miklu sjaldnar en reykt svínakjöt." Hnetusteikin æðisleg Steinunn segist bara fá sér meðlæti í jólaboðunum þar sem allajafna er mikið úrval af kjöti. „Ég er mjög ánægð með það. Ég þarf ekki að fá mér kjöt og þannig held ég að það sé um flesta. Það er ekki þannig að maður Engifer/rauðbeð- ur í appelsínusósu 3 stk. soðnar rauðbeður af- hýddar og skornar í flotta grófa bita 250 ml appelsínusafi settur í pott og hitaður 4 tsk. af kuzu (fæst í Maður lifandi og er sósuþykkni) Smá salt og pipar Rifinn engifer (2 cm). Saf- inn síðan kreistur saman við vökvann Steinselja til skrauts Kuzuið er leyst upp í smá vatni. Þessi vökvi er síðan hrærður saman við appels- ínusafann, hrærið stöðugt i þar til safinn þykknar. Þá má setja hann saman við rauðbeð- urnar og með smátt saxaðri steinselju. ætlist til að fólk sé með eitthvað handa manni.“ Hér að neðan er uppskrift að hnetusteik og rauðbeðum í appelsínu- sósu sem eru unnar af Helgu Mogen- sen hjá Maður lifandi og Steinunn mælir hiklaust með hnetusteikinni. „Mér finnst hún æðisleg. Það er ekki langt síðan ég smakkaði hana en hún er algjör snilld. Kartöflumús úr sætum kartöflum passar ótrúlega vel við hnetusteikina. Ég ætla einmitt að hafa hana með fisknum á aðfanga- dag og auk þess ætla ég að hafa rauð- beður í appelsínusósu. Núna er hægt að kaupa hnetusteik í Maður lifandi þannig að jólamáltíðin einfaldast töluvert.“ svanhvit@vbl.is Btaðið/Frikki Steinunn Kristinsdóttir: „Ég varð alltaf veik á aðfangadags- kvöid eftir svínakjötið og þá hætti ég í kjötinu. Hnetusteik Olía í pott 2 stk. laukur, smátt skorinn 2 stk. kúrbítur 200 gr muldar heslihnetur 200 gr möndlur xoo-200 gr haframjöl (grófir hafrar) bindur saman steikina 2 msk turmerik Vi dós af góðri tómatsósu eða tómatkrafti Salt og pipar eftir þörfum 2 dósir af tómat Kryddin eru sett saman við olíuna ásamt lauknum og leyft að malla þar til að laukurinn er orðinn mjúkur. Þá er kúrbíturinn settur saman við og haldið áfram að steikja. Nú koma hneturnar saman við og haframjölið. Helmingurinn af hnet- unum eru muldar og helmingurinn gróft hakkaður. Hræra deigið vel saman, jafnvel þarf að bæta við olíu þannig að deigið sé blautt en haldist vel saman. Núna er gott að setja tómatsósuna saman við en hérna má kannski bæta við haframjöli. Best er að baka steikina í kökuformi. Nauðsynlegt er að setja smjör- pappír ofan í formið og deiginu er síðan þjappað vel ofan í. Bakað í ofni við 160 gráður í 45 mínútur eða þar til að kominn er fal- legur brúnn litur að ofan. Dr. Nicolas Catena stofnandi og eigandi Catena Zapata hefur verið kallaður konungur víngerðarmanna Argentínu affagtímaritum um matog vín. Það skiptir engu hvar gripið er niður. Winespectator, Decanter, Advocat, Robert ParkerJr, Jancis Robinson, Frank OZ, Steingrímur Sigurgeirsson og Þorri Hringsson, allt eru þetta blöð og blaðamenn í fremstu röð sem skrifa um vín. Bodega Catena Zapata hefur einnig unnið til flestra þeirra viðurkenninga sem íslenskir víngagnrýnendur gefa. Vín dagsins, vikunnar, mánaðarins og ársins. Allir eru á einu máli um það að Catena Zapata sem framleðir vínin sem um er fjallað í þessari grein er sá vínframleiðandi sem koma skal vínum frá Argentínu þangað sem nágrannar þeirra hinu megin við Andesfjöllin eru á. Toppinn á vinsældarlista vfna. Gæðalega séð hefur Catena Zapata náð takmarkinu, það er engin spurning. Argentína er heldur betur búinn að stimpla sig inn á alþjóðavísu og spá menn því að á komandi árum verði Argentína þar sem Chile er í dag hvað gæði og magn varðará útfluttu víni. Þessi frábæra þjóð hefur allt sem til þarf við framleiðslu góðra vlna. Tækni, þekkingu, framúrskarandi ræktunarsvæði og heimsklassa víngerðarmenn og konur. Argentína er í dag fimmta stærsta vínframleiðsluland heims og Catena Zapata einn stærsti útflytjandi vína. Þeir sem ekki hafa kynnt sér vín frá þessu frábæra landi ættuð að gera það sem fyrst og byrja hjá einum afþeim bestu, Dr Nicolas Catena sem framleiðir Argento, Alamos og Catena. Þið verðið ekkisvikin afþvl. Argento Malbec Djúpur dökkfjólublár litur. Mjög opið í nefi með kaffi, dökku súkkulaði og eikarangan. Kraftmikið vín með miklu þroskuðu berjabragði. Eftirbragðið er langt og þétt með sætum tón. Verö áöur 1.190 kr Verö nú 990. kr Alamos Malbec Þroskað vln, hleypir upp plómunum og brómberjunum. Kröftugir tónar af mokka og kryddi eru einnig áberandi. Rist kemur fram en þó I hófi svo að ávöxturinn fær að njóta sin tilfulls. Glæsilegt vln, hreinn og beinn stíll Malbeceinsoghannáað vera. Verð f Vfnbúðum 1.290 kr. Catena Malbec Fyrsta súper-premium Malbec vlnið sem kynnt er til sögunnar frá Argentínu Catena Malbec er það vin sem ávallt er notaö til viömiöunar um mjög góð kaup á argentfnskum vinum. Dökkur fjólublár liturinn gefur forsmekkin um það sem koma skal. Vfnið angar af ferskum blómum og bragöið er flauelsmjúkt. Ríkur ferskur ávöxturinn lifir að eilifu I munni hvers manns sem dreypir á Catena Malbec. Verð f Vfnbúðum 1.590 kr. Alamos Cabernet Sauvignon Sýnirfram á mikla möguleika fyrir þessa klasslsku þrúgu, f háum hæöum vinhéraðsins Mendoza. Með djúpum rúbin rauðan lit, býður vfnið upp á ákafa angan af rauðum berjum I bland meö tröllatré og myntu. Bragðið er rfkulegt af þroskuðum, bragömiklum rifsberjum og plómu ávexti með léttum tón af cedrus viö, krydd og svörtum pipar. Eftirbragðið er i góðu jafnvægi, flauelsmjúkt. Verð f Vfnbúðum 1.290 kr.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.