blaðið - 12.12.2005, Page 6
61 INNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2005 blaöid
Unnur Birna fegurst allra
Reykjavíkurmœrin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir sigraði í keppninni Miss World á laugardag og er hún þriðja
íslenska stúlkan sem hlýtur þennan eftirsótta titil. Hún á viðburðaríkt ár í vœndum þar sem hún mun meðal ann-
arsferðast um heiminn og vinna að mannúðarmálum.
Stúllkurnar sex sem komust f úrslit. Frá vinstri: Ungfrú Kórea, Unnur Birna, ungfrú Frakk-
land, ungfrú Púertó Rfkó, ungfrú Mexíkó og ungfrú Tansania.
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir var
kjörin Ungfrú heimur á laugardag
við glæsilega athöfn í Kína sem sjón-
varpað var frá til milljóna manna
um heim allan. Næsta ár verður við-
burðaríkt í lífi hinnar ungu Reykja-
víkurmeyjar sem meðal annars
kemur til með að ferðast víða um
heim og safna fé í þágu barna sem
eiga um sárt að binda og vekja at-
hygli á mannúðarmálum. Þá má fast-
lega búast við því að Unni Birnu bjóð-
ist fjöldi tilboða um fyrirsætustörf í
kjölfar sigursins. Unnur Birna er
21 árs og hefur meðal annars hefur
unnið í lögreglunni og lagt stund á
mannfræði. Hún hugðist hefja nám
í lögfræði við Háskólann í Reykjavík
í haust en ljóst er að þau áform frest-
ast um sinn.
Unnur Birna er þriðja íslenska
stúlkan sem vinnur þennan eftir-
sótta titil en hinar voru Hólmfríður
Karlsdóttir árið 1985 og Linda Pét-
ursdóttir árið 1988. Þá vann Guðrún
Bjarnadóttir titilinn Miss Interna-
tional árið 1962. Þá má geta þess að
móðir Unnar Birnu, Unnur Stein-
son, tók sjálf þátt í keppninni Miss
World á sínum tíma og segir Unnur
að hún hafi veitt sér mörg gagnleg
ráð fyrir keppnina.
„Ég hélt ekki að ég myndi vinna.
Þetta kom algerlega á óvart,“ sagði
Unnur Birna eftir að úrslitin voru
ljós. Fulltrúi Suður Ameríku, ung-
frú Mexíkó, Dafne Molina Lona,
lenti í öðru sæti en í því þriðja ung-
frú Puerto Rico, Ingrid Marie Ri-
vera Santos. Sigurinn kom mörgum
á óvart því að þrátt fyrir að Unnur
Birna hafi yfirleitt verið ofarlega á
lista í könnunum yfir sigurvegara
hafði ungfrú Filipseyjum, Carlene
Aguillar, öðrum fremur verið spáð
sigri. Unnur Birna sagðist í viðtali
við AFP-fréttastofuna vera sérstak-
lega þakklátt hinum stúlkunum í
keppninni og að hún hefði eignast
marga lífstíðarvini í þeim hópi.
Vekur athygli víða um heim
Fjölmiðlar víða um heim hafa fjallað
um sigur Unnar Birnu Vilhjálms-
dóttur í Miss World fegurðarsam-
keppninni á sunnudaginn. Breska
götublaðið The Sun kallar hana
Is-jómfrúna og Extrablaðið sænska
talar um perlu Norður-Atlantshafs-
ins. Margir minnast sérstaklega á
störf Unnar í lögreglunni og gengur
þýska ritið Fokus svo langt að segja
að hún beri vopn við störf sín sem er
greinilega á misskilningi byggt.
Ungfrú Víetnam færir Unni Birnu hamingjuóskir.
Blaðið
Bæjarlind 14-16
201 Kópavogur
blaóió
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Gjafakörfur matgæðingsins
eilsuhúsið
Skólavöröustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Sendu eina fyrirsögn úr Blaðinu í dag
á holar@vbl.is og þúgætir eignast eintak
af bókinni AMEN, gamansögur af íslenskum
prestum.
Úrval af peysum
OL°
íEAl
RALPH LAUREN
l.aujjjavegi 40 Sími 561 1690
Unnur Birna veifartil áhorfenda eftir
að hafa verið krýnd Ungfrú heimur árið
2005. Hennar bíður nú viðburðaríkt ár
þar sem hún mun meðal annars vinna að
góðgerðamálum.
Jólaaiöf veiðimannsins!
Gefðu gleðilegt sumar í jólagjöf!
Sölustaðir: ESSO stöövarnar - veiðibúöir og víðar
Frl heimsending á netpöntunum - www.veidikortid.is
[€ssdi
Veiðikortið 2006
Kortið gildir sem veiðileyfi
í 23 veiöivötn vitt og breitt
um landiö. Veiðikortið er
fjölskylduvænt og stuölar
að notalegri útiveru.
Ný vötn eru:
- Þingvallavatn fyrir landi
þjóðgarðs
- Ljósavatn
- Hraunsfjöröur
Nánari upplýsingar um önnur
vötn eru á vef Veiðikortsins
www.veidikortid.is
Það kom Unni Birnu gjörsamlega í opna
skjöidu þegar hún sigraði hinn eftirsótta
titil Miss World.