blaðið - 12.12.2005, Page 8

blaðið - 12.12.2005, Page 8
81 ERLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2005 blaöiö RAFHLAÐAN ENDIST í 500 MYNDIR SUPGR Lif=e=ti BRTTeRYlltl Ómótstæöilegir eiginleikar nýju EXILIM mynda- vélanna höfða sterkt til þeirra sem vilja taka hágæða stafrænar myndir eða eigin kvik- myndir með hljóði. Hvort sem það er Anti Shake hristivörnin sem skilar meiri skerpu eða hágæða hreyfimyndatakan sem heillar fag- fólkið þá er það víst að EXILIM vélarnar eru leiðandi afl í heimi stafrænna myndavéla. FIMM MEGA PIXEL CASIO www.exilim.com Heimilistæki SÆTÚNI 8 REYKJAVlK • SlMI 569-1500 I UMBOÐSMENN EYRARVEGI 21 SELFOSSI • SlMI 480-3700 I UM LAND ALLT Eldur í olíubirgðastöð Beturfór en á horfðist þegar eldur kom upp í olíubirgðastöð í Hert- fordskíri á Englandi ígœrmorgun. Talið er að um slys hafi verið að rœða. Slökkvilið hefur náð tökum á eldinum en hœtta er á að hann logi ífáeina daga til viðbótar. Þykkur reykjarmökkur steig til lofts eftir að eldur kom upp í olíubirgðastöð á Englandi f gærmorgun. Að minnsta kosti 36 slösuðust, þar af tveir alvarlega, eftir að eldur braust út í Buncefield-olíubirgða- stöðinni í Hertfordskíri á Eng- landi í gær. Lögregla telur að um slys hafi verið að ræða og segir að ekki sé fótur fyrir orðrómi um að flugvél hafi hrapað á stöðina. „Á þessu stigi bendir allt til þess að um slys hafi verið að ræða,“ sagði Frank Whiteley, yfirmaður lögregl- unnar í Hertfordskíri, en bætti við að lögreglan myndi ekki útiloka neitt. „Að svo stöddu lítur út fyrir að við höfum sloppið mun betur en búast hefði mátt við miðað við stærð sprengingarinnar,“ sagði Whiteley. Sprengingin var svo öflug að hún heyrðist í norðvesturhluta London í 40 km fjarlægð frá olíubirgðastöð- inni. Nokkrum klukkustundum eftir að hún átti sér stað var himininn yfir Buncefield enn svartur af reyk. „Þetta er sennilega mesti eldsvoði sem ég hef séð,“ sagði Roy Wilsher, yfirmaður slökkviliðsins í héraðinu. Hann sagði að slökkviliðið hefði náð tökum á eldinum en þrátt fyrir það kynni hann að loga í fáeina daga auk þess sem hætta væri á minniháttar sprengingum. Þykkur reykjarmökkur steig til lofts Fyrsta sprengingin varð laust upp úr klukkan 6 að morgni og tvær til viðbótar urðu um 20 mínútum síðar. Alls logaði í um 20 olíutönkum en í hverjum um sig eru rúmlega 13 milljón lítrar af eldsneyti. Svartur þykkur reykjarmökkur steig til lofts í kjölfar sprenginganna en ekki höfðu orðið neinar truflanir á flugumferð af völdum hans síðdegis í gær. Aftur á móti var vegum í nágrenni stöðvar- innar lokað og hús rýmd. Ennfremur var fólki sem býr i grennd stöðvar- innar ráðlagt að halda sig innandyra og opna hvorki dyr né glugga. Mofaz gengur til liðs við Sharon Shaul Mofaz, varnarmálaráð- herra ísraels, yfirgaf hið hægri sinnaða Líkúdbandalag í gær og gekk til liðs við Kadíma, nýstofn- aðan flokk Ariel Sharon, forsætis- ráðherra. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Líkúdbandalagið sem hefur horft á eftir mörgum þungavigtar- mönnum að undanförnu. Shmuel Dahan, talsmaður Kadíma, greindi frá því að Mofaz ætlaði að ganga til liðs við flokkinn en neit- aði að tjá sig um frásögn ísraelska útvarpsins þess efnis að Mofaz hefði samþykkt að gegna áfram stöðu llwjá Li ■■ mk 2. hæð (Smáralind vAfetrargaröinn ADESSO ALLAN DESEMBER KEAHangikjöt með jafningi, rauðkáli og grænum baunum Karamellugljáð kalkúnabringa með sykurbrúnuðum kartöflum, grænmeti og púrtvínssósu Jólaskinka með sætu rauðkáli og sykurbrúnuðum kartöflum verðaðeins 1.950 opið virka daga 10.00-22.00 laugardaga 10.00-22.00 sunnudaga 11.30-22.00 simi 544 2332 www.adesso.is Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra (sraels, hefur sagt skilið við Líkúdbandalagið og gengið til liðs við Kadima, nýstofnaðan flokk Ariel Sharon, forsætisráðherra. varnarmálaráðherra. Mofaz studdi brotthvarf ísra- elskra landnema og hersveita af Gasasvæðinu sem lauk i september en ágreiningur um þá ákvörðun átti stærstan þátt í klofningi Líkúd- bandalagsins. Mofaz hafði boðið sig fram til leiðtoga Líkúd eftir brott- hvarf Sharon en dregist aftur úr Benjamin Netanyahu, fyrrverandi forsætisráðherra, í skoðanakönn- unum. Leiðtogakjör í bandalaginu fer fram eftir viku. Við seljum bílana www.bilamarkadurinn.is SmlkiMix+í 46 £• ■ZJ+wh* S. 567 1800

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.