blaðið - 12.12.2005, Síða 16
16 I VIÐTAL
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2005 blafiið
Söngkona í aldarfjórðung
Velgengnin sambland afheppni, hœfileikum og mikilli vinnu
<&S&r
Sigriður Beinteinsdóttir er
ein ástsælasta söngkona þjóð-
arinnnar. Hún sló í gegn með
HLH flokknum fyrir rúmum 20
árum og söng lengi með Stjórn-
inni. Sigga hefur náð næstbesta
árangri Islendinga í Eurovision-
keppninni þegar hún lenti í fjórða
sæti árið 1990 með lagið Eitt lag
enn sem hún söng ásamt Grétari
Örvarssyni.
Þrátt fyrir að hafa verið í brans-
anum í 25 ár er Sigga enn að gefa
út tónlist og er með mörg járn í
eldinum
„Það er brjálað að gera á öllum
vígstöðvum,“ segir Sigga. „Ég er að
kynna nýja diskinn minn Allt eða
ekkert sem er safndiskur og kemur
út í tilefni 25 ára afmælis míns í
söngbransanum. Diskarnir eru tveir
og þar má finna brot af því besta af
söngferli mínum og spannar lög frá
þeim tíma sem ég söng með HLH
flokknum og fram til dagsins í dag.
Á öðrum disknum eru róleg lög en
hinn er fjörugari og hressari. Ég hef
því miður ekki komist í tónleikaferð
til að fylgja diskunum eftir en ég
hef hugsað mér að fara hringinn í
kringum landið í febrúar og mars og
verð þá líklega með fjögrura manna
hljómsveit með mér. Mér finnst kom-
inn tími til að sinna landsbyggðinni
því þar er jú líka fólk sem kaupir tón-
listina mína.“
Sigga segir diskinn seljast vel en
hún er líka ánægð með þá diska sem
íslenskir tónlitarmenn eru að gefa
út fyrir jólin. „Það er mikið af góðu
efni að koma út en af þvi að mark-
aðurinn er lítill er alltaf eitthvað
sem verður undir og fær ekki næga
athygli. Mér finnst Garðar Cortes
yngri koma sterkur inn og hann er
greinilega að springa út sem söngv-
ari. Þá er Ragnheiður Gröndal að
gera góða hluti og Guðrún Gunnars
og Friðrik Ómar hafa svo sannar-
lega komið á óvart.“ Þess má geta
að Guðrún og Friðrik eru að syngja
gömul lög á disk og eru í þriðja sæti
yfir söluhæstu diskana um þessar
mundir.
Starfrækir söngskóla í Noregi
í dag leggur Sigga land undir fót
þegar hún fer til Noregs þar sem hún
starfrækir söngskóla sem er svip-
aður þeim sem hún starfrækti hér
á landi fyrir ári. „Ég hef starfrækt
þennan skóla í tvö ár en systir mín
sem býr í Noregi sér um daglegan
rekstur og markaðssetningu skólans.
Hvert námskeið endar á því að að
krakkarnir syngja inn á disk og ég
er að fara að fylgjast með því núna.
Það starfa sjö norskir söngkennarar
í skólanum en nemendur skólans
eru frá 12 ára aldri. Markhópurinn
í söngskólann er unglingsaldurinn
og hægt er að velja um mismunandi
lengdir söngnámskeiða “ Norðmenn
hafa tekið söngskólanum vel, svo vel
að nú í haust var opnað nýtt útibú
skólans í miðborg Oslóar en hitt
útibúið er í Asker og Bærum sem
er rétt við Osló. Sigga hætti rekstri
söngskólans hér heima í upphafi árs
og hefur ekki tekið ákvörðun um
framhaldið.
Góð stemmning í ís-
lenskri stjörnuleit
Eins og margir vita er Sigga einn
fjörgurra dómara í íslensku stjörnu-
leitinni (idolinu) en þetta er í þriðja
skipti sem íslensk idol-stjarna
verður valin. „fslenska stjörnuleitin
gengur vel og við erum með sterka
söngvara í úrslitum. Ég tel að þetta
sé sterkasti 35 manna hópurinn
sem við höfum fengið frá upphafi
keppninnar. Þetta eru mjög efni-
legir krakkar sem eflaust eiga eftir
að ná langt í framtíðinni. Stemmn-
99..........................................
Björgvin Halldórsson heyrði mig syngja í upptöku-
veri þegar hann var í HLH flokknum. Hann hringdi
síðan í mig og bað mig í framhaldi af því að syngja
með HLH flokknum og þar með fór boltinn að rúlla.
Það er auðvitað guðsjöf að geta sungið en það er
mikil vinna að halda sér á floti í þessum bransa."
ingin hjá okkur dómurunum er
líka mjög góð.“ í haust bættust Páll
Óskar Hjálmtýsson og Einar Bárða-
son við dómarahópinn. Segir Sigga
þá vera góða viðbót og að þeir séu
mjög hressir. „Mér finnst léttara
yfirbragð yfir stjörnuleitinni nú en
áður. Dómararnir fá meira svigrúm
til að gaspra og fyrir vikið verður
þátturinn skemmtilegri. Simmi og
Jói standa svo auðvitað alltaf fýrir
sínu með hnittnum athugasemdum
og sprelli. Það er heiður að fá að vera
einn af dómurunum í þessari keppni
en ég tek bara eitt tímabil í einu og
hef ekkert ákveðið með framhaldið.
Þættirnir eru teknir upp í törnum
og þá eru dagarnir mjög langir.
Suma daga byrjum við klukkan sjö
á morgnana og erum að fram yfir
miðnætti. Þetta er samt skemmtileg
vinna og félagsskapurinn er góður.“
Idolið er þó ekki það eina sem
Sigga tekur sér fyrir hendur þessa
dagana en hún hefur verið að syngja
í Smáralind undanfarnar helgar og
mun halda því áfram fram að jólum.
„Þetta er hluti af Jólalandi og er
skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Það er búið að leggja mikla vinnu
í þetta og það hefur verið troðfullt
fram að þessu. Á þessari sýningu
syng ég eingöngu jólalög."
Borðar skötu og dansar
í kringum jólatéð
„Ég er mikið jólabarn og mér finnst
aðventan og jólin mjög skemmti-
legur tími. Eg er byrjuð að skreyta
heima hjá mér en hef ekki haft
tíma til að klára það vegna mikillar
vinnu.
Það var alltaf siður í fjölskyldunni
að amma mín, sem einnig er alnafna
mín, hélt jólaboð á aðfangadagskvöld
þar sem drukkið var kakó, borðaðar
kökur og dansað í kringum jóla-
tréð. Núna er amma orðin 92 ára en
heldur samt ennþá jólaboð þótt und-
anfarin ár hafi jólaboðið verið fært
yfir á jóladag. Þá kemur fjölskyldan
saman, þiggur veitingar og dansar í
kringum jólatréð. Fjölskyldan hefur
stækkað og við erum líklega á milli
50-60 manns sem erum í boðinu.
Þrátt fyrir að ég sé komin á fullorð-
insár held ég þeirri hefð að dansa í
kringum jólatréð.“
Sigga heldur sjálf jólaboð á að-
fangadagskvöld og býður upp á ham-
borgarhrygg. „Ég hef aldrei verið
mikið fyrir rjúpur svo hamborgar-
hryggurinn varð fyrir valinu. Ég er
ekkert farin að spá í hvað ég vilji í
jólagjöf en mér finnst samvera með
fjölskyldunni skipta miklu máli um
hátíðarnar."
Sigga er alin upp við að snædd
var skata á Þorláksmessu en pabbi
hennar er ættaður að vestan og
þaðan er hefðin komin. „Á Þorláks-
messu fer ég til pabba og mömmu
og borða skötu en ég er að syngja í
Smáralindinni þennan dag og hef
því ekki tima til að elda hana sjálf.“
Golfari með bíiadellu
Sigga segist vera í sambúð en vill
annars lítið tala um sitt einkalíf og
segist alltaf hafa aðskilið einkalífið
frá vinnunni. Sigga segist stundum
verða fyrir ónæði fólks þegar hún
fari út að skemmta sér en það sé yf-
irleitt fólk sem sé búið að fá sér vel í
glas. Hún segist þó ekki vera mikið
úti á lífinu en sæki meira í önnur og
heilbrigðari áhugamál.
„Ég er farin að spila golf og finnst
BlaÖiÖ/SteinarHugi
það mjög gaman. Þetta er góð leið til
að hreinsa hugann og hlaða batter-
íin. Annars er ég mikil bíladellukell-
ing og er nýbúin að gera samning
við B&L. Ég var að fá nýjan Range
Rover sport sem er minni gerðin af
Range Rover og er mjög flottur bíll.“
Þrátt fyrir að eiga hálfgerðan fjalla-
bíl segist Sigga ekki fara mikið á
fjöll en segist stundum keyra austur
fyrir fjall.
Atvinnusöngvari frá 1987
Sigga segist hafa lifað af söngnun í
18 ár. Hún segir vinnuna felast í því
að búa til verkefni, fá hugmyndir
og selja þær, búa til plötur og halda
tónleika. „Þegar maður er í þessum
bransa má segja að maður sé alltaf
í vinnunni en oftast á ég frí á mánu-
dögum. Þessa dagana er ég að vinna
verkefni fýrir Nóa Siríus. Af tilefni
85 ára afmælis þeirra fylgir geisla-
diskur konfektkössunum frá þeim.
Ég sá um að velja lögin á þennan
disk en syng einnig lag sem Þor-
valdur Bjarni samdi. Þá er ég líka
að vinna að verkefni fyrir Islands-
banka.“ Sigga segir að ísland sé lítill
markaður og því ekki hægt að lifa
eingöngu af plötusölu. Þess vegna er
hún með mörg járn í eldinum.
„Ég hugsa ég verði ekki að syngja
um þessi áramót en til margra ára
spilaði ég með Stjórninni á gamlárs-
kvöld og nýárskvöld. Stjórnin hélt
tónleika á NASA síðastliðið laugar-
dagskvöld sem verða líklega síðustu
tónleikar hljómsveitarinnar í bili,“
segir Sigga.
„Ég hef alltaf verið bjartsýn og
jákvæð og finnst það skipta miklu
máli, þvi þá ganga hlutirnir betur.
Það er auðvitað guðsgjöf að geta
sungið en það er líka mikil vinna að
halda sér á floti i þessum bransa og
fá nýjar hugmyndir. Hluti af þessu
öllu saman er líka heppni en það var
fyrir algera tilviljun að Björgvin Hall-
dórsson heyrði mig syngja í upptöku-
veri þegar hann var í HLH flokkun.
Hann hringdi síðan i mig og bað
mig að syngja með hljómsveitinni
og þá fór boltinn að rúlla.“
hugrun@vbl.is
KRINGLUNNI
Sími: 568 6440 I busahold@busahold.is
Stálpottasett á góðu verði
Brúðhjónalistar og gjafakort
búsáhöld