blaðið - 12.12.2005, Side 22
30 I ÍÞRÓTTIR
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2005 blaöÍA
ÍRYGGÐU ÞER ASKRIFT
cnsm
B O LT t N N^F’
I SIMA 800 7000. A WWW.ENSKI.IS
EÐA I NÆSTU VERSLUN SIMANS.
Sjáið myndirnar á
www.biiamarkadurinn.is
V *i ^ ■— Si!<t<IYflTI^Tl?OT/<W
Sm&imn+i 46 E *
'** c KA7 i«nn
Knattspyrna:
Heimsmeist-
aramót félags-
liða byrjað
Heimsmeistaramót félagsliða
byrjaði í dag með viðureign
suður-arabíska liðsins AL
lttihad og egypska liðsins AL
Ahly. Það var Mohammed
Noor, fyrirliði AL lttihad, sem
skoraði sigurmark leiksins og
tryggði sínu hði sigur í fyrsta
leik mótsins. Þetta var opnun-
arleikur heimsmeistaramóts
félagshða sem haldið er í Tokyo
í Japan. Leikmenn Liverpool
lögðu af stað til Japans í gær
og eiga sinn fyrsta leik á
fimmtudaginn gegn Sidney
FC frá Ástralíu eða Deportivo
Saprissa frá Kosta Ríka. Tahð er
að keppnin um titilinn verði á
milli Evrópumeistara Liverpool
og Suður Ameríku meistar-
anna, Sao Paulo ffá Brasilíu.
ítalski boltinn
Hér sést Mohammed Noor
fyrirliði AL Ittihad fagnar
marki sínu sem tryggði sigur
í opnunarleik mótsins
Juventus eykur forystu sína
Sjö leikir fóru fram í ítölsku fyrstu
deildinni í fótbolta í gær. Leikmenn
Juventus fengu Cagliari í heimsókn.
Heimamenn tóku öll þrjú stigin í
leiknum með 4-0 sigri. Nedved skor-
aði eitt mark, Trezeguet með tvö
og Vignati gerði sjálfsmark. Með
sigrinum jók Juventus forystu sína í
ítölsku deildinni. Messina tók á móti
Chievo Verona. Heimamenn fóru
með sigur í leiknum, 2-0 og voru
það þeir Napoli og Zampagna sem
skoruðu mörkin. Ascoli tók á móti
Reggina og gerðu liðin eitt mark
hvort. Fini gerði mark heimamanna
en Paredes jafnaði rétt fyrir lok leiks.
Livorno vann Lazio 2-1. Mörk heima-
manna gerðu Ascentis og Lucarelli
en mark gestanna skoraði Pandev.
Roma fékk Palermo í heimsókn og
unnu gestirnir góðan sigur 2-1. Cass-
ano skoraði fyrir Roma en Biava
Totti, leikmaður Roma, er hér í harðir baráttu við leikmenn Palermo
Trezeguet fagnar hér fyrra marki sínu þegar lið hans vann góðan 4-0 sigur.
og Caracciolo fyrir gestina. Parma
gerði 1-1 jafntefli við Sampdoria
á heimavelli. Mark heimamanna
gerði Corradi en Bonozzoli jafnaði
fyrir Sampdoria. Udinese tók á
móti Lecce. Vucinic gerði tvö mörk
fyrir gestina en Natale minnkaði
muninn á síðustu mínútu leiksins
fyrir heimamenn sem töpuðu 2-1.
Stórleikur umferðarinnar er viður-
eign AC Milan og Inter Milan en
leikurinn hófst eftir að Blaðið fór í
prentun.
Enski boltinn
Ég er ekki
grófur leikmaður
Michael Essien, leikmaður Chelsea,
segist ekki vera grófur leikmaður.
Þessi 23 ára leikmaður hefur verið
kærður til UEFA fyrir ljót brot á
Hamann, leikmanni Liverpool, í
leik í meistaradeild Evrópu síðastlið-
inn þriðjudag og gæti átt yfir höfði
sér leikbann. „Eg var ekki að reyna
að meiða Hamann og dómarinn
skyldi það. Þess vegna refsaði hann
mér ekki eins og margir segja að
hann hefði átt að gera.“ Þessi ljóta
tækling fór framhjá dómara leiks-
ins en UEFA hefur áhveðið að taka
þetta mál upp. „Þetta var tilraun til
að ná í boltann, ekki leikmanninn.“
Essien hefur hringt í leikmanninn
og beðið hann afsökunar.
Michael Essien, til vinstri, segist ekki vera
grófur leikmaður
AÐ LEIKSLOKUM
í KVÖLD KL. 21.00
Knattspyrnusérfræðingarnir Willum og Gummi Torfa fara yfir mestu tilþrifin
ásamt mistökunum sem áttu sér stað í leikjum helgarinnar.
Eriksson
styður Ferguson
Þjálfari enska landsliðsins í fót-
bolta, Sven-Goran Eriksson, telur að
Alex Ferguson sé enn sá rétti fyrir
Manchester United. „Þið skuluð
ekki gagnrýna Sir Alex Ferguson
eftir allt sem hann hefur gert fyrir
félagið," sagði Eriksson. Hann hélt
áfram og sagði: „Hann er búinn að
vera frábær ár eftir ár og United er
eitt besta lið heims.“ Eins og kunn-
ugt er féll United út úr meistaradeild
Evrópu síðastliðinn miðvikudag
eftir 2-1 tap gegn Benfica, en ályktað
hefur verið að það kosti félagið 1,5
milljarð íslenskra króna. Þetta er í
fyrsta skipti síðan 1995 sem félagið
spilar ekki í Evrópukeppni eftir
áramót. Tapið gegn Benfica hefur
fengið marga spekingana til að hug-
leiða framtíð stjórans á Old trafford.
Stuðningsmenn United eru margir
hverjir farnir að trúa að það sé best
að skipta um stjóra í brúnni og fá
nýtt og ferskt blóð á Old Trafford.
Ferguson sjálfur lætur eins og allt
sé eins og það á að vera og talar um
að halda áfram að byggja liðið upp.
Sérfræðingar segja að Ferguson fái
að klára þessa leiktíð, en verði lát-
inn fara í vor.