blaðið - 10.01.2006, Síða 26
30IFÓLK
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2006 blaöiö
SMÁ
borgarinn
TÆKIFÆRIS-
SINNAÐAR
DÆGURFLUGUR
Smáborgarinn á mjög erfitt með að þola
ákveðna stjórnmálamenn. Auðvitað eru
þeir eins misjafnir og þeir eru margir en
meirihluti þeirra virðist þódeila mjög hvim-
leiðu persónueinkenni. Flestir virðast þeir
tækifærissinnaðir glæframenn sem segja
það sem þeir telja tryggja sér mestar vin-
sældir frá viku til viku. Margir stjórnmála-
menn verða því aldrei annað en dægur-
fluga sem fýkur um í vinsældarokinu án
nokkurrarfestu eða framtíðarsýnar.
Smáborgarinn hefur oft velt því fyrir sér
hvernig ungliðastarfi stjórnmálaflokk-
anna er háttað. Smáborgarinn hefur þekkt
margt gott fólk sem hefur haft fyrir því
áhuga að breyta heiminum og gera hann
að betri stað. Þetta fólk hefur svo, eins
og fyrir einhvem misskilning, leiðst inn í
ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna
þar sem það virðist heilaþvegið af ein-
hverju bulli um „real" pólitík og yfirlýsta
flokksstefnu og eftir það kemur vart orð
af viti frá þessu fólki. Smáborgarinn veit
ekki hvað er gert við þessa nýliða í pólitík-
inni en fær oft ægilegar martraðir þessu
tengdar enda hefur hann misst margan
góðan vininn í hendur flokkanna. Þaðan
virðist fólk svo ekki eiga afturkvæmt
nema það tapi sæti á lista. Því miður virð-
ist þetta vesalings fólk þá orðið svo ánetj-
að bullinu að það gengur frekar til liðs við
annan flokk en að byrja nýtt og betra líf.
Svo virðist sem auðveldara sé að ganga úr
öfgafullum sértrúarsöfnuði en miðjumoð-
uðum íslenskum stjórnmálaflokki.
Unga fólkið, sem hefur á undanförnum
árum gengið til liðs við hina ýmsu stjórn-
málaflokka, virðist fá sinn einkennisbún-
ing og reglur um háttalag við inngöngu,
rétt eins og það sé að hefja afplánun. f
sjónvarpinu bregðurfyrirfólki,jafnvel und-
ir þrítugu, sem minnir einna helst á grin-
atriði úr Skaupinu þar sem börn eru fengin
til að leika fullorðið fólk svo vart sér ífingur
standa fram úr ermum. Málfar þessa fólks
virðist hengt upp á þráð svo það hljómar
eins og lesið hafi verið inn á það. Frasarnir
svo innantómir og ægilegir að maður velt-
ir því fyrir sér hvern eigi eiginlega að sann-
færa. Hvenær urðu hugsjónir hallærislegar.
Hvenær varð trúin á að bæta heiminn að
heimóttarlegum barnaskap? Hvenær
varð það eftirsóknarvert og töff að eltast
við flokkslínur, að vera tækifærissinnaður,
fjarstýrður og getulaus, langt fyrir aldur
fram? Smáborgarinn leggur til að ungliða-
hreyfingarstjórnmálaflokkanna verði lagð-
ar niður, hreinlega bannaðar, svo íslensk
æska verði ekki miðaldra, langt fyrir aldur
fram og íslensk þjóð kafni í eigin andleysi.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Birkir J. Jónsson, alþingismaður.
Ertu ekki orðinn leiöur á fríinu?
„Ég var nú bara að koma til Reykjavíkur eftir að hafa verið á yf-
irreið um Norðurland eystra, að heimsækja kjósendur þar. Nú
er ég ásamt mínum félögum í þingflokknum að heimsækja kjós-
endur hér í borginni þannig að það er nóg að gera. Það er hlut-
verk stjórnmálamanna að hlusta á og ræða við sína kjósendur
og við nýtum þennan tíma í það.“
Alþingismenn fóru f jólafri þann 9. desember og snúa afturtil starfa þann 17. janúar næstkomandi.
Kate Beckinsale
neitar framhjáhaldi
Það eru alls kyns kjaftasögur í gangi um að hlutirnir séu ekki alveg að ganga upp hjá
Kate Beckinsale og manni hennar Len Wiseman. En þótt til leikkonunnar hafi sést án
giftingarhrings nýlega neitar hún alfarið öllum sögum. „Það er til dæmis ein slúður-
saga þar sem ég á að hafa drifið mig til Englands til að eiga leynilegan ástarfund með
karlkyns vini mínum,“ segir Kate. „Sannleikurinn er sá að þetta er eiginmaður vin-
konu minnar og þau eru nýbúin að eignast barn. Ég á að hafa notfært mér bjúginn
í ökklum hennar og haldið fram hjá með manninum hennar. Við skellihlógum nú
bara að þessu. Eftir þetta hef ég sent vinkonum mínum bréf þar sem ég grínast með
að mennirnir þeirra séu svo kynþokkafullir." 1 nýlegu tímaritsviðtali segist Kate vera
fullkomlega hamingjusöm með manni sínum. Ástæðan fyrir því að hún hefur sést án
giftingarhringsins að undanförnu sé að hún tók hann af til að vaska upp og gleymdi
að setja hann aftur upp. Það eru stundum saklausar útskýringar á hlutunum.
Lánadrottnar kaupa
hús Courtney Love
Fyrirtæki frá Kaliforníu, sem sér um húsnæðislán, keypti hús Courtney Lo-
ve í Washington þegar hún gat ekki staðið í skilum. Hinn rokkaði vandræða-
seggur keypti 102 ára húsið, sem er í útjaðri Capiton Forest í Littlerock, árið
1997 fyrir systur Kurt Cobain, Kim, en hún flutti út fyrir nokkrum vikum. Lo-
ve hætti að borga afborganir af húsinu í desember 2003 og skuldar rúm 200
þúsund pund í óborguð lán og lögfræðikostnað.
Sérstök helgi hjá
Á meðan við áttum rólega helgi við að ganga frá jólaskrauti og dúlla okkur var Pink
og maður hennar sko ekkert að dúlla sér. Þau voru að ganga niður sandi drifnar
strendur í átt að altarinu. Pink, sem heitir réttu nafni Alecia Moore, og unnusti hennar
skrifuðu undir giftingarvottorðið á Kosta Ríka um helgina. Samkvæmt tímaritinu Pe-
ople komu yfir hundrað gestir, meðal annars Lisa-Marie Presley. „Við elskum ströndina
svo við vorum handviss um að við vildum líka gifta okkur þar,“ sagði hin 26 ára gamla
rokkstjarna. Pink bað motorkross-kappaksturshetjunnar á síðasta ári með
því að halda uppi spjaldi sem stóð á: „Viltu giftast mér?“ í einni keppninni.
Þau hittust fyrst árið 2001 á X-leikunum í Las Vegas og er þetta fyrsta brúð-
kaup þeirra beggja.
ókeypis til heimila og fyrirtækja
blaöiö_
Móðir náttúra gerir ekkert út í loftið. Þú
ert sjálfsagt frábær í fjallaklifri.
HEYRST HEFUR...
Sá orðrómur hefur verið á
kreiki að Bjarni Ármanns-
son sé á útleið hjá Islandsbanka
eftir að
Straum-
ur-Burð-
a r á s
s e 1 d i
21% hlut
í bank-
a n u m .
Bent hef-
ur verið
á að litl-
ir kærleikar séu með honum og
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, sem
er í kaupendahópnum í gegn-
um FL-Group. Á hinn bóginn
hefur Bjarni notið stuðnings
frá öðrum kaupendum, t.d. Ein-
ari Sveinssyni. Við spyrjum að
leikslokum.
Teitur Þórðarson, þjálfari
KR, slær ekki slöku við í
æfingum fyrir íslandsmótið og
lætur hann sína menn æfa átta
sinnum í viku, þannig að það
er ekkert ge~~
eftiríVestur-
bænum, eft-
ir nokkur
mögur ár.
Þá hefur
það vakið
verðskuld-
aða athygli að
Gunnlaugur Jóns- son,
sem er nýkominn frá ÍA, verð-
ur með fyrirliðabandið í sum-
ar, en hinn gamalreyndi mark-
vörður, Kristján Finnbogason,
hefur borið það undanfarin ár
með sóma. Engum sögum fer
af viðbrögðum Kristjáns.
Pað er enginn friður. Það
fékk 300 þúsundasti Is-
lendingurinn, sem fæddist í
gærmorgun, heldur betur að
finna fyrir. Fjölmiðlar kröfð-
ust þess að fá að
taka mynd
af stolt-
um for-
eldrum
með nýfætt
barn sitt og
fjölmörg fyr-
irtæki kaupa s é r
góða auglýsingu með því að
koma færandi hendi. Og ekki
batnar það - í dag hafa Halldór
Ásgrímsson, forsætisráðherra,
og Hallgrímur Snorrason, hag-
stofustjóri, boðað komu sína.
Spurning hvort að einhverjir
frambjóðendur flokkanna fara
ekki birtast á í Landsspítalan-
um.
Sagan segir að Gunnar Birgis-
son, bæjarstjóri í Kópavogi,
hafi gripið til handafls þegar
leikskólum
í bænum
var lokað
vegna upp-
sagna fyrir
stuttu síð-
an. Þannig
hafi hann
gripið til
þess ráðs
að ráða
nokkra starfsmenn hins gamla
fyrirtækis hans, Klæðningar,
til að manna leikskólana og
þá hafi börn embættismanna
bæjarins líka verið kölluð til.
Þetta mun hins vegar hafa
farið öfugt ofan í starfsmenn
leikskólanna, sem voru jú að
mótmæla lágum launum. En
það er seint hægt að segja að
Gunnar deyi ráðalaus - það er
jú gott að búa í Kópavogi.