blaðið - 17.01.2006, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2006 blaðiö
Óeirðir í Strassborg
Evrópskir hafnarverkamenn mótmæltu áœtlunum um hreytt rekstrarform á hafnarstarf-
semi. Verkfall olli töfum á starfsemi í mikilvœgum höfnum í álfunni.
Lögregla í Strassborg í Frakklandi
þurfti að beita táragasi og vatns-
þrýstibyssum til að dreifa þús-
undum hafnarverkamanna sem
stóðu að mótmælaaðgerðum við
höfuðstöðvar Evrópuþingsins í gær.
Mótmælendurnir köstuðu púður-
kerlingum og steinum að þinghús-
inu og brutu nokkrar rúður í því.
Hafnarverkamennirnir, sem komu
frá ýmsum löndum Evrópusam-
bandsins vildu með þessu mótmæla
umdeildum áætlunum um einka-
væðingu á hafnarstarfsemi í Evrópu.
Til stendur að ræða áætlanirnar á
Evrópuþinginu í dag og á morgun
verður gengið til atkvæða um þær.
f mörgum ríkjum Evrópu lögðu
hafnarverkamenn niður vinnu og
ollu þar með töfum á starfsemi í
mikilvægum höfnum, allt frá Grikk-
landi til Svíþjóðar.
Meðal annars fór hafnarstarfsemi
úr skorðum i Rotterdam í Hollandi,
Antwerpen í Belgíu og Le Havre í
Frakklandi en allar gegna þær stóru
og mikilvægu hlutverki í skipasigl-
ingum í álfunni. í Belgíu var fyrir-
skipað allsherjarverkfall. Skipum
var leyft að leggjast að bryggju en
engin uppskipun fór fram. ■
Hafnarverkamenn frá ýmsum löndum
Evrópusambandsins grýta byggingu
Evrópuþingsins f Strassborg f gær.
Sirleaf sver
embættiseið
Ellen Johnson Sirleaf skráði nafn
sitt í sögubækurnar í gær þegar hún
sór embættiseið sem forseti Líberíu.
Hún er fyrsta konan sem kosin er
þjóðhöfðingi í Afríku.
Þúsundir Líberíumanna voru
viðstaddir athöfnina, auk fjölda
erlendra metorðamanna, þar á
meðal Laura Bush, forsetafrú Banda-
ríkjanna, og Condoleezza Rice, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna.
Sirleaf hefur heitið að sameina
þjóðina sem er enn í sárum eftir
átök sem stóðu í um aldarfjórðung
og fá erlend samtök og einstaklinga
til að styðja við bakið á uppbygging-
arstarfi í landinu. Kofi Annan, aðal-
ritari Sameinuðu þjóðanna, óskaði
Sirleaf til hamingju og sagði að hún
hefði sögulegt umboð til að leiða
þjóðina í átt til varanlegs friðar og
stöðugleika í framtíðinni. ■
Fastafulltrúar öryggisráðsins funda um íran
Prýst á Rússa og Kínverja
Vladimir Pútín, forseti Rússlands,
sagði í gær að stjórnvöld í Iran hefðu
ekki útilokað þann möguleika að
auðgun þess úrans sem þeir þyrftu á
að halda færi fram í Rússlandi. Með
því móti væri hægt að tryggja að
þeir geti ekki nýtt sér kjarnorkuáætl-
unina til vopnaframleiðslu. Auðgun
úrans getur bæði nýst til fram-
leiðslu á kjarnorkueldsneyti fyrir
kjarnakljúfa og til hráefnisgerðar
fyrir kjarnaodda. Tillaga Rússa
nýtur stuðnings Bandaríkjamanna
og ríkja í Evrópu
Bandaríkjamenn, Frakkar og
Bretar hafa sóst eftir stuðningi
Rússa og Kínverja við aðgerðir sem
ætlað er að halda aftur af kjarnorku-
áætlun Irana. Viðræður þjóða, sem
eiga fast sæti í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna, auk Þjóðverja hófust
í gær í London.
Rússar, sem hingað til hafa stutt
írana, vöruðu við því í síðustu viku
að stjórnvöld í landinu ættu á hættu
að missa þann stuðning ef þau halda
áfram rannsóknum á kjarnorkuelds-
neyti sem hófust á ný í síðustu viku.
Kínverjar segja aftur á móti að það
kunni að „flækja málið“ ef það fer
fyrir öryggisráðið og vísuðu þar
með í hótun Irana um að koma í
veg fyrir skyndieftirlit Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunarinnar.
Erfitt að fá Kínverja á sitt band
Ríkin vonast til að ná samkomulagi á
fundinum fyrir neyðarfund Alþjóða
kjarnorkumálastofnunarinnar sem
Vesturveldin vilja halda í næsta mán-
uði. Margir telja að Rússar hallist í
auknum mæli að stefnu Evrópuríkj-
anna og Bandaríkjanna en ólíklegra
er talið að Kinverjar fallist á slíkar
aðgerðir. ■
Vladimir Pútín
Áhugaverður fundur í verslun
Líflands að Lynghálsi 3
Hvað ber að varast þegar hrossin eru tekin á hús?
Fimmtudaginn 19. janúar efnum við til fræðslufundar um málið í verslun okkar að
Lynghálsi 3, kl 18 -19.
Framsögu hafa Sigurbjörn Bárðarson hinn reyndi knapi og hestamaður
og Helgi Sigurðsson dýralæknir við Dýraspítalan n í Víðidal, sem báðir hafa reynslu
og þekkingu á málefninu.
Látið sjá ykkur og takið þátt í umræðu um
málefni er varðar heilsu kláranna okkar. '
Bestu kveðjur. LIFLAND
Starfsólk Líflands
Janúartilboð á skeifum
Frábær tilboð af Kerckhaert og Helluskeifum
CAFI ADESSO
2. hæð í Smáralind v/Vetrargarðinn
SALAT
hollt og gott (
hádeginu
komdu og smakkaðu!
opið virka daga 10.00-19.00
laugardaga 10.00-18.00
sunnudaga 11.30-18.00
simi 544 2332
www.adesso.is
Sharon opnar
augun
Ariel Sharon, forsætisráðherra Isra-
els, opnaði augun tvisvar sinnum í
gær en ekki er Ijóst hvort það sé til
marks um bata eða aðeins ósjálfráð
viðbrögð. Forsætisráðherrann opn-
aði augun eftir að fjölskylda hans
lék upptöku með rödd barnabarns-
ins hans. Aðsfoðarmaður Sharons
sagði að hanh hefði haldið aug-
unum opnumfí tvær til þrjár mín-
útur í senn. Sharon hefur legið í dái
síðan hann fékk heilablóðfall fyrr í
mánuðinum
Kadima, flokkur Sharons, skip-
aði í gær Ehud Olmert starfandi for-
mann flokksins. Olmert, sem gegnt
hefur starfi forsætisráðherra í fjar-
veru Sharons, mun leiða Kadima í
þingkosningunum í mars. ■
Lést úr fugla-
flensu
Bráðabirgðaniðurstöður hafa stað-
fest að tyrknesk stúlka sem lést á
sunnudag varsmituð af hinu mann-
skæða H5Ni-afbrigði fuglaflensu.
Fyrstu rannsóknir á stúlkunni
bentu til þess að hún hefði ekki
verið haldin H5N1, en eftir að veiran
greindist í yngri bróður hennar
voru rannsóknirnar endurteknar.
Heilbrigðisyfirvöld greindu frá
þessu í gær. Þar með er tala þeirra
sem greinst hafa með veiruna í land-
inu komin upp í 20.1 öllum tilfellum
virðist fólk hafa smitast eftir að hafa
komist í snertingu við smitaða fugla
en engin ummerki hafa fundist um
smit á milli manna sem Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin óttast. ■
sky news
-» .v
OREIMD
men&motors
Viltu sjá fullt af frílim sjónvarpsrásum
beint um gervihnött?
Þá höfum við búnaðinn.
Verð frá 16.900,- stgr.
• Smart Rapido FTA móttakari,
• 65 cm stáldiskur
• 0,3dB stafrænn nemi.
Auðbrekka3 - Kópavogur
sími: 564 1660
ÍTtn HORROH
V W W W W Chtmcí
QQES
gj QM
nna
ONE
una
TWO
BQHworlo QQH ne ws u
Leiöandi í
loftnetskerfum
mögnurum
tenglum
loftnetum
gervihnattadiskum
móttökurum
örbylgjunemum
loftnetsköplum
www.oreind.is