blaðið - 17.01.2006, Blaðsíða 17
HEILSA I 25 .
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2006
99..................
Sumar nýbakaðar
mæður eru ekki
einungis þjakaðar
afþreytu, kvíða og
vonleysi heldur geta
þær líka sýnt lítinn
áhuga á barninu og
jafnvel farið að fyrirlíta
barnið fyrir að stela
sjálfstæði þeirra. Þar
afleiðandi fá þær líka
samviskubit yfir að
hugsa á þennan hátt.
Umrœða um fœðingarþunglyndi eykst
Alvarlegt vandamál
sem hrjáir
margar mœður
Brooke Shields fékk alvarlegt fæðingarþungiyndi eftir fæðingu dóttur sinnar. „Ég þoldi
ekki að heyra Rowan gráta og ég óttaðist (hvert skipti sem maðurinn minn kom með
hana til mín."
Umræðan um fæðingarþunglyndi
hefur aukist mikið undanfarið,
sennilega í kjölfar opinnar um-
ræðu leikkonunnar Brooke Shi-
elds um fæðingarþunglyndi, sem
og gagnrýni Tom Cruise á lyfja-
notkun hennar. Fæðingarþung-
lyndi og þunglyndi á meðgöngu
geta reynst alvarlegt vandamál
sem mikilvægt er að bregðast við.
inguna. Þær tilfinningar magnast
einungis vegna þeirrar eftirvænt-
ingar annarra að allar mæður séu
himinlifandi og stöðugt hamingju-
samar eftir fæðingu barna þeirra.
Þunglyndi á meðgöngu er einnig
vandamál sem konur verða að vera
vakandi fyrir og mikilvægt er að láta
vita af líðan sinni hjá mæðravernd.
Ef kona er niðurdreginn eftir barns-
burð í meira en tvær vikur þá ætti
hún að hafa samband við heimilis-
lækninn sinn.
Brooke gaf út bók um reynslu sína
af fæðingarþunglyndi þar sem hún
segir meðal annars: „Eg þoldi ekki
að heyra Rowan gráta og ég óttaðist
í hvert skipti sem maðurinn minn
kom með hana til mín.“ Þessi orð
lýsa í hnotskurn hvernig konum
með fæðingarþunglyndi líður en
sannast sagna þora þær sjaldnast
að tala um það því þeim finnst
það skammarlegt. Konur með fæð-
ingarþunglyndi upplifa sig oftar en
ekki algerlega úr samhengi við þær
ímyndir sem þær höfðu áður gert
sér um móðurhlutverkið.
Alvarlegt vandamál
Þessi sterka þunglyndistilfinning
sem gripur sumar konur eftir barns-
fæðingar er ótrúlega algeng tilfinn-
ing. Auk þessa venjulega stress sem
ný móðir upplifir þá finnur hún líka
fyrir miklum hormónabreytingum.
Sumar nýbakaðar mæður eru ekki
einungis þjakaðar af þreytu, kvíða
og vonleysi heldur geta þær líka sýnt
lítinn áhuga á barninu og jafnvel
farið að fyrirlíta barnið fyrir að stela
sjálfstæði þeirra. Þar af leiðandi fá
þær líka samviskubit yfir að hugsa
á þennan hátt. Tilfinningalegi sárs-
aukinn er svo mikill í tilfelli sumra
mæðra að þær íhuga sjálfsmorð.
Margar mæður niður-
dregnar eftir fæðingu
Þrátt fyrir að minnihluti mæðra
upplifi fæðingarþunglyndi þá er
stór hluti þeirra sem verður niður-
dreginn í einhvern tíma eftir fæð-
F RJÁLSl r
blaóió