blaðið - 17.01.2006, Blaðsíða 24
32 I MENNING
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2006 Maöiö
Æfingar
hafnar á
Maríubjöllunni
Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi
Akureyrar á Maríubjöllunni eftir
Vassily Sigarev. Leiksýningin verður
fyrsta uppsetningin í nýju leikrými
Leikfélags Akureyrar, sem enn
hefur ekki hlotið nafn. Frumsýning
verður 17. febrúar.
Maríubjallan gerist á einu kvöldi.
Dima er 19 ára. Hann býr í blokk við
hliðina á kirkjugarðinum, þaðan
sem hann stelur legsteinum og selur.
Á morgun byrjar hann herþjón-
ustu en í kvöld heldur hann vinum
sínum kveðjupartý. Þangað koma
vinir hans, Slavik og Arkasha, auk
stúlknanna Leru og Yulka.
Vassily Sigarev er talinn eitt
fremsta leikskáld nýrrar kynslóðar
í Evrópu og hefur hlotið fjölda verð-
launa á síðastliðnum misserum,
bæði í heimalandi sínu, Rússlandi
sem og öðrum löndum.
Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson
en hann var tilnefndur til menn-
ingarverðlauna DV í fyrra fyrir
leikstjórn og gagnrýnandi Morgun-
blaðsins útnefndi hann „mann árs-
ins í íslensku leikhúsi”. Hann setti
upp leikritið Frelsi í Þjóðleikhúsinu
í haust. Þýðandi er Árni Bergmann,
leikmynd og búninga hannar Halla
Gunnarsdóttir. Hallur Ingólfsson
semur tónlist og hljóðmynd verks-
ins og lýsing er í höndum Björns
Bergsteins Guðmundssonar. Leik-
arar eru Álfrún Helga örnólfs-
dóttir, Esther Thalía Casey, Guðjón
Davið Karlsson, Guðjón Þorsteinn
Pálmarsson, Jóhannes Haukur
Jóhannesson og Þráinn Karlsson.
Frumsýning á Maríubjöllunni
verður 17. febrúar og hefst forsala 1.
febrúar. ■
109 SU POKU talnaþrautir
Lausn síðustu gátu Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
niu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
5 1 8 6 4
4
9 6 2
6 9 4 2 3
1 5 6 7
5 3 1 4 6
8 9 7
1
8 1 3 6 9
8 1 2 6 4 9 3 5 7
7 6 5 8 1 3 9 4 2
9 4 3 7 5 2 1 8 6
3 7 4 2 6 1 8 9 5
2 9 1 4 8 5 7 6 3
5 8 6 9 3 7 2 1 4
4 2 8 1 7 6 5 3 9
6 3 7 5 9 8 4 2 1
1 5 9 3 2 4 6 7 8
Kristján Jóhann Jónsson.
Greinar um
œvintýraskálclið
Grímur. Árið 1896 skrifaði Jón Þor-
kelsson grein þar sem hann sagði
að Danir megi þakka Grími fyrir að
hafa kennt þeim að lesa H.C. And-
ersen, höfund sem þeir hafi fram
að því afgreitt sem fábjána. Þetta
báru Danir til baka. Sannleikurinn
er sá, og um það skrifa ég í þessari
grein, að Grímur skilgreindi Ander-
sen sem höfund og sagði hann vera
mann með barnslega skáldgáfu sem
brytist í gegnum allt og væri til alls
líklegur. Grímur og Andersen áttu
það sameiginlegt að báðir trúðu á
barnið og Guð og snillinginn."
Kristján Jóhann hefur lengi unnið
að rannsóknum á lífi og störfum
Grims Thomsens og skrifaði á sínum
tíma bókina Kall tímans um skáldið.
„Grein Gríms um Andersen er hluti
af rannsóknum mínum. í greininni
segir Grímur að ljóð Andersens
séu ekki nógu góð, hann haldi ekki
ljóðrænni stemmningu þótt hann
dragi stundum upp fallegar myndir.
Hann hafi heldur ekki þá skapgerð
sem dugi best í leikrit og sögur hans
séu sæmilegar. En Grímur er harður
á því að í ævintýrunum komi snill-
ingurinn fram og segir eitthvað á
þá leið að ævintýrin séu fyrir allar
þjóðir sem geti lesið þau og alla ald-
urshópa. Þau sprengi ramma bók-
menntafræðinnar og séu verulega
mögnuð list. Þetta þótti Andersen
sérlega mikilvægt og gladdist mjög
þvi hann vildi ekki bara fá viður-
kenningu, heldur fá viðurkenningu
á því að hann væri snillingur.“ ■
Fyrir síðustu jól gaf Mál og menning
út litla og einkar fallega bók, Skáld-
legur barnshugur, en þar er að
finna greinar um danska ævintýra-
skáldið H.C. Andersen, en í fyrra
voru 200 ár liðin frá fæðingu hans.
Texti bókarinnar er bæði á íslensku
og dönsku. Vigdís Finnbogadóttir
skrifar formála bókarinnar og Einar
Már Guðmundsson eftirmála. í bók-
inni birtist í fyrsta skipti á islensku
ritdómur Gríms Thomsen um rit-
safn Andersens. Kristján Jóhann
Jónsson, bókmenntafræðingur þýðir
ritdóminn og skrifar grein sem
nefnist Með dauða kráku, drullu og
stakan tréskó.
„Greinin fjallar um H.C. Andersen
og ritdóm Gríms Thomsens,“ segir
Kristján Jóhann. „Titillinn er sóttur
í ævintýrið um hans Klaufa sem
reið af stað með þetta veganesti:
dauða kráku, drullu og stakan tré-
skó og fékk kóngsríkið. Að sumu
leyti álpaðist H.C. Andersen með
svipaðan útbúnað af stað frá Óðins-
véum til að verða einn af frægustu
rithöfundum Evrópu fyrr og síðar. I
greininni er einnig fjallað um það
að Grímur varð manna fyrstur til að
skrifa viðamikla bókmenntagrein-
ingu á ritferli Andersen í tengslum
við fyrstu heildarútgáfuna á
verkum hans. Andersen lýsti því
yfir í ævisögu sinni að aldrei hefði
nokkur maður skrifað um sig af jafn
miklu viti, þekkingu og velvilja og
99..........................................
Sannleikurinn er sá, og um það skrifa ég í þessari
grein, að Grímur skilgreindi Andersen sem höfund
og sagði hann vera mann með barnslega skáldgáfu
sem brytist í gegnum allt og væri til alls líklegur."
WMWWMMWMMMWMMMMMMmMMMMMMMMMMMMMMMMk
_ __ MM
r
BFGoodrich
M M M M M
DEKKJA
LAGERINN
einfaldlega betril
Skeifurmi 5 og Viðarhöfða 6 í Reykjavík • Smiðjuvegi 6 í Kópavogi • Melabraut 24 í Hafnarfirði • Iðavöllum 8 í Keflavik • Njarðarnesi 1 á Akureyri • Miðási 23 á Egilsstöðum • Vikurbraut 4 á Höfn og Gagnheiði 13 á Selfossi