blaðið - 17.01.2006, Qupperneq 12
12 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2006 blaöiö
Karzai vill að vestur-
veldin verði um kyrrt
Forseti Afganistans hvetur vestrœnar þjóðir til að vera um kyrrt í
landinu því annars sé hœtta á að hryðjuverkamenn láti til sín taka
á ný. Sjálfsmorðsárásum hefurfjölgað að undanförnu.
fbúar f borginni Kandahar virða fyrir sér gíg sem myndaðist eftir að ráðist var gegn bíla-
lest kanadfskra friðargæsluliða f gær.
Hugo Chavez, hinn umdeildi forseti
Venesúela, á í deiium við kaþólsku
Chavez heimtar
skýringar
Hugo Chavez, forseti Venesúela,
hefur farið fram á að kardináli í
kaþólsku kirkjunni skýri út hvað
hann átti við þegar hann sagði að
ríkið stefndi í átt til einræðis. Hann
sagði að í hegðun kikjunnar fælist
storkun og fór fram á afsökun
á ummælunum sem hann telur
móðgandi. Chaves sagði ennfremur
að kaþólska kirkjan stæði að
samsæri sem ætlað væri að skaða
ríkisstjórn hans. Enn sem komið
er hafa leiðtogar kirkjunnar ekki
brugðist við ásökunum forsetans.
Chavez hefur þegar fundað
með kardínalanum, en er ekki
ánægður með þær skýringar sem
fulltrúi Vatikansins hefúr gefið.
Mæltist hann til þess að kirkjan
ætti að halda sig við andlegt starf
en láta stjórnmál alfarið eiga sig.
Áður hefur slegið í brýnu mifli
Chavez og fulltrúa kirkjunnar vegna
umbótaaðgerða ríkisstjórnarinnar í
félags- og efnahagsmálum í landinu.
Hamid Karzai, forseti Afganistans,
hefur hvatt þjóðir heims til að snúa
ekki baki við landinu á næstunni.
Það kynni að leiða til þess að landið
yrði á nýjan leik notað sem mið-
stöð hryðjuverkaárása á Evrópu og
Bandaríkin.
„Við eigum í sameiginlegri baráttu
gegn hryðjuverkum, okkar sjálfra
vegna og alþjóðasamfélagsins. Ef
þið verjist ekki hér munuð þið þurfa
að gera það á heimavelli, í höfuð-
borgum í Evrópu og Ameríkú', sagði
Karzai á fundi með fréttamönnum.
Karzai lét þessi orð falla degi eftir
að háttsettur kanadískur erindreki
og tveir afganskir borgarar féllu í
sjálfsmorðsárás í borginni Kanda-
har, sem eitt sinn var höfuðvígi Tali-
bana í suðurhluta landsins.
Sjálfsmorðsárásum fiölgar
Á undanförnum fjórum mánuðum
hafa verið gerðar um 25 sjálfsmorðs-
árásir í Afganistan, sem er töluvert
meira en áður tíðkaðist. Á síðasta ári
féllu fleiri í árásum vígamanna en
nokkurt annað ár síðan 2001 þegar
bandamenn réðust inn í landið.
Ofbeldið að undanförnu hefur
grafið undan hinni hægu lýðræðis-
þróun í landinu og aukið ótta fólks
við að gerðar verði svipaðar árásir
og í Irak.
„Það mun taka okkur mörg ár að
geta varið okkur sjálf, fætt okkur og
unnið að framþróun samfélagsins,"
sagði Karzai.
Hann sagði að engu að síður
hefði náðst mikilvægur árangur í
stjórnmálaþróun í landinu, þar á
meðal forsetakosningarnar 2004
sem mörkuðu tímamót, sem og þing-
kosningar í september. Jafnframt
varaði hann við því að þessi árangur
kynni að hvetja vígamenn til frekari
árása. „Af þeim sökum ætti árangur
í Afganistan ekki að leiða til minni
athygli heldur meiri,“ sagði Karzai.
LAUNAGREIÐENDUR,
HLUTAFÉLÖG,
FJÁRMÁLASTOFNANIR ...
Hafið þið
SKILAÐ TIL SKATTSINS
... uppIýsincjLim um laun,
verktakagreidslur, hlutafé,
lán, bífreiðahlunnindi
o.fl. á árinu 2005 ...
Síðasti skiladagur:
rafræn skil - 6. febrúar
PAPPIRSSKIL - 26. janúar
Skilist til skattstjóra viðkomandi umdæmis
ALLT UM
rafræn skil
á rsk.is/vefskil
Sjá nánar auglýsingu f Stjórnartíðindum um skil á upplýsingum á árinu 2006
MIKILVÆGT
ER AÐ
UPPLÝSINGAR
BERIST
TÍMANLEGA
VEGNA
FORSKRÁNINGAR
Á FRAMTÖL
■
Átak gegn
mansali
Lögregla í Hollandi hefur hvatt
viðskiptavini vændiskvenna til að
greina frá grunsemdum um að
vændiskonur séu þvingaðar til að
selja sig. Þúsundir vændiskvenna
starfa á eigin vegum í Hollandi, en
óvíða er löggjöf um slíka starfsemi
jafnfrjálslynd og þar í landi. Á
hverju ári eru þó um 3500 konum
smyglað til landsins til að vinna
í vændishúsum eða í ólöglegum
fylgdarþj ónustufy rirtækj um.
Vændi var lögleitt í landinu árið
2000, en þrátt fyrir það vinnur
flöldi vændiskvenna enn ólöglega
og margar gegn vilja sínum.
Eignarnámi
á ræktarlandi
mótmælt
Kinverjar hafa lokað af þorp í
Guangdong-héraði í suðurhluta
landsins í kjölfar mótmælaaðgerða
íbúa sem staðið hafa í fáeina daga.
Þúsundir íbúa hafa mótmælt
áformum yfirvalda í héraðinu um
eignarnám á jörðum bænda. Fréttir
hafa borist af átökum á milli lög-
reglu og mótmælenda, en tölum ber
ekki saman um fjölda mótmælenda.
Átök brutust fyrst út í Sanjiao á
laugardagskvöld vegna langvinnrar
reiði íbúa, sem sætta sig ekki við
ófullnægjandi bætur fyrir land sem
yfirvöld hafa tekið eignarnámi af
þeim og hyggjast nýta undir iðn-
aðarstarfsemi og selja til fjárfesta.
13 ára stúlka lést og um 60
manns slösuðust þegar óeirða-
lögregla lét til skarar skríða
gegn mótmælendum. I síðasta
mánuði létu þrír lífið og nokkrir
særðust eftir að lögregla hleypti
af skotum á hóp mótmælenda í
öðrum hluta Guangdong-héraðs.
„Þorpsbúar munu halda áfram
að mótmæla þangað til að málið
er leyst. Ræktarland er bændum
mikilvægt. Þeir þurfa á landi sínu að
halda,“ sagði íbúi í þorpinu Sanjiao
í viðtali við AFP-fréttastofuna.
Rubik-kubburinn hefur valdið mörgum
manninum heilabrotum í gegnum tíðina.
Leysti Rubik-
kubb á nýju
heimsmeti
Leyan Lo, tvítugur háskólanemi
í Kaliforníu, setti heimsmet um
helgina þegar honum tókst að leysa
Rubik-kubb á aðeins 11,13 sek-
úndum. Metið setti hann í sérstakri
keppni sem Rubik-kubbs klúbbur
háskólans stóð að. Fyrra met, 11,75
sekúndur, setti Frakkinn Jean Pons
á opna hollenska Rubik-kubbs
mótinu í fyrra. Þrátt fyrir að hafa
sett heimsmet tókst Lo ekki að
vinna mótið þar sem niðurstöður
voru reiknaðar út frá meðaltali
þriggja tilrauna. Fyrsta sætið hlaut
undrabarnið Shotaro Makisumi
sem fékk meðaltalið 14,91 sekúnda.
Þrátt fyrir að vera aðeins 15 ára
gamall eru fáir taldir standa honum
á sporði þegar kemur að því að leysa
Rubik-kubb á sem stystum tíma.