blaðið - 26.01.2006, Page 20
20 I SAMSKIPTI KYNJANNA
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2006 blaöÍA
Karlar eru frá jörðinni,
konur eru trá jörðinni
Var það ekki annars?
43 ára einhleypur Marsbúi óskar eftir samvistum við frækna Venusarmær"
Ekki þarf að svipast lengi um í
stærri bókaverslunum höfuðborgar-
svæðisins til þess að finna uppstill-
ingu tileinkaða hinum ógnarstóra
sjálfshjálparbransa og ekki þarf að
leita lengi þar til að átta sig á því
að stór hluti bókanna sem í boði
eru snýr með einhverjum hætti að
samskiptum kynjanna. Og þær selj-
ast „eins og heitar lummur“, líkt og
einn viðmælandi Blaðsins, bóksali
sem kaus að láta nafns síns ekki
getið, staðfesti: „Ég sel ógrynni
sjálfshjálparbóka í hverri viku
- og oftar en ekki snúa þær að sam-
skiptum kynjanna," sagði bóksalinn.
Og skyldi engan undra; þar eð sam-
skipti kynjanna hafa löngum verið
mannfólkinu höfuðverkur er ekki
skrýtið að ásókn sé í góð ráð um
hvernig best sé að haga þeim.
Margar sjálfshjálparbækur hafa
náð miklum vinsældum og haft
megn áhrif á þjóðfélagið, í það
minnsta orðfæri þess og hugtaka-
notkun (þó ósagt verði látið hvort
að þau áhrif hafi verið til góðs eða
hjálpað einhverjum í raun). Hafa
þar bækur sálfræðidoktorsins og
sambandsráðgjafans Johns Gray
um karlana frá Mars og konurnar
frá Venus verið afar áberandi. Sú
fyrsta og vinsælasta þeirra, „Konur
eru frá Venus, karlar eru frá Mars“,
kom fyrst út fyrir réttum þrettán
árum og náði fljótlega miklum vin-
sældum meðal þeirra sem töldu sig
hafa átt í erfiðleikum með að skilja
hitt kynið fram til þess. Kenning
Grays, sem útlistuð er í bókinni,
gengur í meginatriðum út á að menn
og konur séu svo ólík að upplagi og
inntaki að þau gætu allt eins verið
frá sitthvorri plánetunni. Vandamál
í samskiptum þeirra á milli skapast
samkvæmt þessu þegar gengið er út
frá því að sálræn virkni þeirra sé af
svipuðum meiði og tilfinningalegar
þarfir þeirra séu hinar sömu.
Konur sækjast eftir viðurkenningu
Sem dæmi um þessar mismunandi
tilfinningalegu þarfir, sem Gray
eignar kynjunum, er að samkvæmt
honum eru konur sem kvarta yfir
vandamálum, fyrst og fremst að sækj-
ast eftir viðurkenningu hlustanda
síns á að þau séu til staðar. Karlar
sem kvarta yfir vandamálum eru
hins vegar að biðja um uppástungur
að lausn. Þegar umkvörtunum
kvenna er svarað með lausnum
verða þær pirraðar og finnst eng-
inn hlusta á þær; karlar verða að
sama skapi argir þegar umleitunum
þeirra er svarað með samúð frekar
en ráðleggingum.
Meint eðli kynjanna, að dómi
Gray, kristallast líklega í því hvað
þau leggja gildi í samkvæmt honum
og hvernig þau bregðast við vanda-
málum. Menn leggja áherslu á vald,
dugnað, getu og afrek, en konur
leggja áherslu á ást, samskipti, feg-
urð og sambönd. Af reynslu Gray
að dæma bregðast menn við yfirvof-
andi vandamálum með því að halda
í „hellinn" sinn og kokka upp lausnir,
meðan þau yfirbuga konurnar. Með
því að skilja, viðurkenna og taka
tillit til þess að menn og konur séu
ekki eins - til dæmis með því að
kaupa og lesa bók Grays - getum við
hins vegar yfirstigið öll vandamálin
sem því fylgja.
Geta konur þá ekki bakkað í stæði
Líkt og áður sagði hafði bók Grays
talsverð áhrif á samfélagið og til
skamms tíma var ekki þverfótað
í fjölmiðlum fyrir umfjöllun um
hana og ráðum úr henni. Sýningin
Hellisbúinn, sem sett var upp í Loft-
kastalanum á síðasta áratug, byggði
t.d. mikið á þankagangi Grays um
ósamrýmanleika mismunandi eðlis
kynjanna, en í henni eyddi gaman-
leikarinn Bjarni Haukur löngum
stundum í að klóra sér í hausnum
með kylfunni sinni og kvarta yfir
því að hann skildi ekki konur. Fjöldi
svipaðra bóka með svipað þema
fylgdi, bækur með titla á borð við
,Af hverju menn gráta ekki og konur
geta ekki bakkað í stæði.“ Ætla
mætti að í kjölfar allra þessara upp-
ljóstrana um eðli kynjanna hefðu
samskipti þeirra bæst til muna, en
eitthvað virðumst við eiga eftir
ólært, því ekkert lát virðist á sölu og
útgáfu svipaðra bókmennta.
Kenningar Grays hafa verið gagn-
rýndar talsvert síðan hann setti þær
fram; þykja bera vott um afturhvarf
til úreldrar eðlishyggju og festa í
sessi úr sér gengnar staðalímyndir.
Gray hefur verið átalinn fyrir að vísa
ekki í neinar rannsóknir máli sínu
til stuðnings, heldur byggja það á
eigin reynslu og „tilfinningu' - og í
raun er til fjöldi viðurkenndra rann-
sókna sem benda til hins gagnstæða;
að eðlismunur milli kynjanna sé
vart greinanlegur. Jafnvel doktors-
gráða Grays hefur verið véfengd, en
skólinn sem hann hlaut hana frá var
þá aðeins tveggja ára og hefur siðan
verið lagður niður.
Alitaf pláss til að bæta sig
Meðal þeirra sem véfengja kenn-
ingar Grays um ósamrýmanleika
kynjanna er Dr. Janet Hyde hjá Wis-
consinháskóla í BNA, en í kjölfar yf-
irferðar sinnar á fjölda rannsókna,
sem hafa verið framkvæmdar síð-
ustu 20 árin, komst hún að þeirri
niðurstöðu að konur og karlar séu
í nær engu frábrugðin hvað varðar
persónuleika, vitsmunahæfileika,
samskipta- og leiðtogahæfni. Hyde
fann vissulega einhvern mun á kynj-
unum, þeir stærstu vörðuðu árásar-
girni, hæfileika til þess að kasta
langt, sjálfsfróunartengda hegðun
og viðhorf til skyndikynna. Flest
persónueinkenni voru hins vegar
eins milli kynjanna og munur á
milli stafaði samkvæmt þessu af
ólíkum væntingum samfélagsins til
þeirra, væntingum sem m.a. skapast
fyrir tilstilli bóka á borð við „Menn
kunna ekki að elda og konur gráta
allt of mikið“.
Af þessu má ráða að popp-sálfræði
og sjálfshjálparbækur geta jafnvel
haft skaðleg áhrif. En margar hafa
sjálfsagt margt til síns máls, enda
miða flestar þeirra að því að miðla
uppsafnaðri reynslu mannkyns til
þeirra sem þurfa leiðsagnar með. En
skyldu ráðin sem í þeim eru gefin
hjálpa einhverjum, eða veita þau
bara stundarfróun? Áðurnefndur
bóksali var efins: „Áhugaverðast
við þessa miklu sölu á sjálfshjálpar-
bókum er að mér virðist sem sama
fólkið kaupi þessar bækur aftur og
aftur; ég er farinn að kannast við
marga „fastagesti“ í sjálfshjálparhill-
unni. Ég get nær fullyrt að sá sem á
annað borð kaupir sér sjálfshjálpar-
bók á fleiri en eina. Nú mætti álykta
sem svo að bækurnar virkuðu ekki
sem skyldi, i ljósi þess að dyggir les-
endur þeirra þurfa sífellt að fjárfesta
í nýjum með reglulegu millibili. En
það er svo sem alltaf pláss til þess að
bæta sig.“
haukur@bladid. net
STEINGEIT
22. desember til 20. janúar
Það er eitthvað við persónuleika
þessa fólks sem minnir á þunglyndi.
Það er alvarlegt og þenkjandi en um
leið ber það með sér að vera traust.
Venjulega eru raddir steingeitar-
fólksins jafnar og þægilegar. En
þrátt fyrir það kunna einstaklingar
í þessu merki svo sannarlega að
ýta frá sér. Steingeitarfólkið heldur
sínu striki og getur oft á tíðum verið
ótrúlega eigingjarnt. Það fetar sig
jafnt og þétt upp metorðastigann og
fer ekki troðnar slóðir. Steingeitin
vill hafa fast land undir fótum og
hún hættir sér ekki á efstu sylluna,
hvað sem hana langar til þess, nema
að vera viss um að syllan standist
þunga hennar. Hún dáist að þeim
sem á undan henni eru á meðan
hún sjálf fetar sig hinn örugga slóða.
Steingeitin sækist eftir velgengni
og hún elskar falleg föt og falleg
húsgögn. Hún er stif á því að hafa
allt á heimilinu í stíl. Þetta fólk er
laust við forvitni um annað fólk og
lætur sig litlu skipta sögur af náung-
anum. Þetta eru frekar feimnar sálir
sem hafa nóg um að hugsa og þurfa
ekki að leita afþreyingar í sýndar-
veruleika. Algengt er að steingeitur,
sem eru í yfirmannastöðum, stjórni
meira á bak við tjöldin en að þær
komi fram og segi sitt álit umbúða-
laust. Steingeitin er þrjósk en notar
sjaldnast þá eiginleika nema henni
sé mikið niðri fyrir.
KARLMAÐUR í STEINGEIT
Hann reisir gjarnan um sig varnar-
vegg. Hann er feiminn en mjög met-
orðagjarn. Innst inni þráir hann
gullhamra og vill mjög gjarnan
láta dást að sér. Satúrnus hlekkjar
marga þessa menn og þeim er hætt
við að koma frekjulega fram og geta
illa tjáð tilfinningar sínar. Hjarta
hans er hlýtt og stundum kann að
vera að þér finnist brandarar hans
barnalegir. Margir menn í steingeit-
inni láta eins og þeir geti lifað án
hrósyrða, en það er ekki rétt. Þessir
menn eru snillingar í að plata sjálfa
sig. Láttu hann ekki villa um fyrir
þér líka.
Steingeitarmaðurinn er ákaflega
trygglyndur en sé hann særður
blæðir lengi úr sárum hans. Hann
getur átt það til að sletta dálítið úr
klaufunum á meðan hann er ekki
í föstu sambandi, en láttu þér ekki
detta í huga að reyna að veiða upp
úr honum sögur frá skemmtanalífi
hans áður en þið kynntust. I fáum
orðum sagt blómstra þessir menn
seint, en um miðjan aldur má segja
að þeir séu í fullum blóma. Þeir láta
sér afar annt um heimili sitt, konu
og börn þó starfsframinn sé alltaf í
fyrirrúmi.
KVENMAÐUR í STEINGEIT
Það kann vel að vera að ykkur þyki
steingeitarkonan þóttafull í fram-
komu. Þessar konur fara sjaldnast
troðnar slóðir í klæðaburði, snyrt-
ingu eða hárgreiðslu. Þær eru oft
áberandi, stundum gamaldags eða
glannalega nýtískulegar. En það er
nokkuð víst að steingeitarkonan er
alltaf fín hverju sem hún klæðist.
Hún fer ekki troðnar slóðir í því sem
hún tekur sér fyrir hendur.
Flestum konum í þessu merki
gengur vel að halda hjónabandinu
saman. Það gæti verið vegna þess
að þær setja öryggið ofar öllu öðru
og því lítil hætta á að þær leiðist
út í ævintýri sem gæti eyðilagt
öryggi þeirra og barnanna. Hún er
góð móðir þó svo að henni þykir
margt skemmtilegra en að snúast í
kringum angana litlu. En hún bætir
það upp með að tryggja þeim öryggi
og góða umönnun. Þessar konur
eru margar á fljúgandi siglingu upp
metorðastigann og telja sér trú um
að það sé best fyrir ásvini þeirra að
þær nái langt i starfsframa, helst
lengra en maðurinn. Þessar konur
eru fastar fyrir eins og klettur og
geta leynt því hvað þær eyða mikilli
orku í að temja sitt erfiða skap. Ef
ÞEKKT FÓLK í STEINGEITINNI
Helena Rubinstein
Jóhanna af Örk
Martin Luther King
Albert Schweizer
Matthías Jóhannessen
Davíð Sch.Thorsteinsson.
einhverjum verður það á að móðga
þær má eins reikna með því að það
kosti marga daga ef ekki vikur og
mánuði að ná fullum sáttum.
Áhrifastjörnur þessa merkis eru;
Satúrnus, Mars og Venus.
Happadagur: laugardagur og
föstudagur.
Happalitir: blátt og dökkrautt.
Heillasteinar: granat og safír.
Happatölur eru oftast: 8 og 9.