blaðið - 26.01.2006, Blaðsíða 32

blaðið - 26.01.2006, Blaðsíða 32
32 I MENNING FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2006 bla6ÍA Líkamshlutar - sjálfsmyndir Næstkomandi föstudag kl. 17 verður opnuð í Listasafni Reykja- víkur - Hafnarhúsi sýning á verkum hins snjalla ljósmyndara john Coplans, en um er að ræða sjálfsmyndir af líkamshlutum. John Coplans (1920 - 2003) kom víða við á löngum ferli sínum. Hann var einn af stofnendum tímaritsins Artforum og sýningarstjóri og safn- stjóri viða í Bandaríkjunum áður en hann helgaði sig ljósmyndun, þá sex- tugur að aldri. Ljósmyndir Coplans fylgja sögu líkama listamannsins í tvo áratugi frá 1980 og fram í andlát hans. Myndir hans sýna líkamann í pörtum sem brotakennt landslag og vekja áleitnar spurningar um margræða merkingu likamans og ásýndar hans. Eða svo vitnað sé í orð Coplans: „Rétt eins og við sækjum skapandi orku okkar til líkamans þá getum við ekki umflúið merkingar- lausan dauða hans. Allur sá skap- andi máttur sem líkaminn færir okkur verður ekki skilinn nema í ljósi hrörnunar hans og dauða.” Listfræðingurinn og vinur Coplans, Howard Yezerski verður með leiðsögn um sýninguna sunnu- daginn 29. janúar kl. 15. Game tíví fim kl.19.30 Tölvuleikjaþáttur íslands er mættur til leiks á SKJÁE/NUM! © Glæpur og ástir Hjá Máh og menningu er komin út í kilju Leviatan. Morð- ingi um borð, eítir Boris Akímin í þýðingu Árna Bergmann. „Leviatan" er risastórt far- þegaskip sem heldur í jómfrú- arferð sína frá Englandi til Indlands árið 1878. Á sigling- unni er loft lævi blandið um borð því meðal farþeganna leynist morðingi sem framið hafði „glæp aldarinnar“ í París skömmu áður. Franski lögregluforinginn Guache vinnur að lausn málsins en hann á sér keppinaut í öðrum farþega, hinum snjalla Rússa, Fandorin.Ýmsir samferðamenn þeirra liggja undir grun um að hafa óhreint mjöl í poka- horninu enda eru þar á meðal nokkrir býsna kynlegir kvistir. Leviatan er margslungin og spennandi saga effir Boris Akúnin sem nýtur mikilla vinsælda fyrir sakamálasögur sínar víða um lönd. Þetta er fimmta bókin um Fandorin rík- isráð sem kemur út á íslensku en þær fyrri eru Ríkisráðið, Krýningarhátíðin, Vetrardrottn- ingin og Tyrknesk refskák. HRP.KI HLEYI^ltóóMAR f»» fnpit tttmtfft fc<i».>*lnf»iinii Mál og menning hefur einnig sent ffá sér í kilju eina frægustu ástarsögu heimsbókmenntanna, Hroki og hleypidómar effir Jane Austen í þýðingu Silju Að- alsteins- dóttur. „Það er kunnara enfrá þurfi að segja að pipar- sveinn í góðum efnum hlýtur að vanta eiginkonu," segir í frægum upphafsorðum þessarar bókar. Þegar ungur og vel stæður karlmaður flytur í héraðið fara sveitungarnir um leið að orða hann við stúlku - falleg- ustu heimasætuna í sveitinni. Sú saga hefði fljótlega endað vel ef vinur hans, auðugur piparsveinn úr öðru héraði, hefði ekki farið að skipta sér af þessum ráðagerðum. I hroka sínum þykir honum stúlkan ekki af nógu góðum ættum fyrir vin sinn og vekur með því heiffarlega hleypidóma systur hennar sem verður honum verðugur andstæðingur. Hroki og hleypidómar effir bresku skáldkonuna Jane Austen kom fyrst út árið 1813 og er ein frægasta ástarsaga allra tíma. Hún er auk þess allt í senn; fjörug, fyndin og ögrandi. Höfundur leiðir persónur sínar út á dansgólf sögunnar þar sem þær stíga sín þokkafullu spor, frá einum dansfélaga til annars, hring effir hring, sem smám saman þrengist utan um söguhetjurnar. Silja Aðalsteinsdóttir þýddi og skrifar eftirmála um Jane Austen og umhverfi sögunnar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.