blaðið - 26.01.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 26.01.2006, Blaðsíða 30
30 I ÍPRÖTTIR FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2006 blaöiö EM í Sviss: Einn lakasti hópur sem við höfum átt lengi - segir Þorbergur Aðalsteinsson fyrrum landsliðsþjálfari BlaÖiÖ/Frikki Úrslitakeppni Evrópumóts landsliða í hand- knattleik hefst í dag í Sviss. Við íslendingar erum að sjálfsögðu meðal þátttökuliða en það heyrir nánast til undantekninga ef við erum ekki með í úrslitakeppni Evrópumóts- ins og eða heimsmeistaramótsins. Það hefur verið nokkuð í umræðunni að undanförnu að íslenski landsliðshópur- inn sé sá sterkasti sem við höfum átt lengi. Þorbergur Aðalsteinsson fyrrum landsliðs- þjálfari fslands er þó ekki sammála því en Þorbergur ætlar að vera okkur á Blaðinu til halds og trausts á meðan EM stendur yfir. En hvernig leggst leikurinn gegn Serbíu og Svartfjallalandi í Þorberg? „Ég er ekki bjartsýnn á leikinn í dag gegn Serbum. Þetta er gríðarlega sterkt lið sem við mætum í dag. Það sem þarf að ganga upp í leiknum er að markvarslan verði að vera meira en 20 boltar varðir og að hraðaupp- hlaupin gangi upp. Ég tel að við þurfum að skora að minnsta kosti 30 mörk í þessum leik til að eiga möguleika á sigri. Fráköst og sá styrkur sem við höfum í Alexander og Guð- jóni Val verður að nýtast sem skyldi," sagði Þorbergur. Serbar og Svartfellingar leika ávallt 3-2-1 vörn og oftar en ekki undanfarin ár hefur okkar mönnum gengið mjög vel með þá vörn. Hvað segir Þorbergur um það? „Jú, líklega spila þeir 3-2-1 vörn. Ég hef á til- finningunni að þetta geti orðið okkur mjög þungur róður ef þeir komast í vörn. Okkur hefur þó oft gengið ágætlega gegn slíkri vörn en ég tel að lið okkar í dag sé með lak- ari landsliðshópum sem við höfum átt lengi. Strákarnir fá þessa keppni og sú næsta gæti verið öðruvísi. Þá gætum við blómstrað. Það er of mikið af burðarásum í liðinu sem eru að stíga sin fyrstu alvöru skref i svona stórri keppni“. En hvað með þessa 5-1 vörn okkar? „Ég vonast til að vörnin gangi upp. Það er algjört lykilatriði til að ná fram góðum úr- slitum. Éf þessi stig nást í dag, þá getur það orðið lykillinn að góðu framhaldi hjá okkar mönnum," sagði Þorbergur Aðalsteinsson sérfræðingur Blaðsins i handbolta um fyrsta leik íslands gegn Serbíu og Svartfjallalandi á Evrópumeistaramótinu í dag. Leikurinn hefst klukkan 17 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á RÚV. 1 m &■■» J yþpSgSjW*; allt að iiVWi lUinlB mmr Helms. 1* Upphringinúmer: 512-6000 1000 krónurHrimfeHvM 3,0* ■ 181 Australia Australia mobile Canada Canada mobilo Denmark Denmark trobile Germany Germany mobile Norv/ay Norway mobile Poland Poland mobile Thailand Thaiiand mobile UK UK mobile USA USA mobile 33mln , 310 min. 310 min. 270 min. 30 mm. 270 min. 30min. 270 min. 32 min. 230 min. 30 min. 100 mrn. 100 min. 270 min. 33mín. 270 min. 270 min -—.——+ Upphringinúmer: 512-6000 2000 krónur Helm&H-elsl Australia 630 min Australia mobile 70min. Canada 630 mm. H Canada mobila 630 min. pri Denmark 550 min. 1 Dcnmark mobile 63min. í: Germany 550 min. ; Germany inobrie 63 mm. Norway 550 min.' Norway mobiie 67 min í Poland 470 min. Poland mobile 62 min. j'i Thailand 220 min. r'f- Thailond mobilc 220 min. fo UK 550 min UK mobile 69 min. W USA 550 min. p USA mobile 550 mm. I Tnow on.y ax&nx tttho woiW. H gerir er fyrirlramgreitt símakort heirnasímanum út um allan um hmtlsl n slmnreiknlng inginúmeriö 612-6000. sirn-. san-zaoo, www EM í Sviss í sjónvarpinu: Sjónvarpið sýnir alla leiki Islands í beinni útsendingu og alls verða leikirnir á bilinu 20-24 sem sýndir verða frá mótinu. Mikil og góð þjónusta á 11 dögum. Að auki verður upphitun fyrir hvern leik Islands í keppninni. Fjörið byrjar í dag og dag- skráin hjá RÚV ffá EM í hand- bolta lítur annars svona út: Fimmtudagur 26. janúar 14.40 EM í handbolta Bein útsending frá leik Þjóöverja og Spánverja. 16.20 EM-stofan Hitað upp fyrir næsta leik á EM í handbolta. 16.55 EMíhandbolta Bein útsending frá leik Serba/Svartfell- inga og (slendinga. 23.10 EM í handbolta Sýndur verður leikur Dana og Ungverja sem fram fór í dag. Föstudagur 27. janúar 15.25 EM í handbolta Upptaka frá leik Serba/Svartfellinga og íslendinga. e. 16.55 EM í handbolta Bein útsending frá leik Ungverja og Serba/Svartfellinga. 18.30 EM-stofan 19.00 Fréttayfirlit 19.10 EM (handbolta Bein útsending frá leik (slendinga og Dana. Laugardagur 28. janúar 11.15 EMíhandbolta Endursýndur verður leikur (slendinga og Dana frá því í gær. 15.10 EM í handbolta Bein útsending frá leik Spánverja og Frakka. Formúla í Sunnudagur 29. janúar 13.45 EM í handbolta Bein útsending frá leik Slóvena og Pól- verja í A-riðli. 16.30 EM-stofan 16.55 EMI handbolta Bein útsending frá leik Ungverja og fslendinga. 17.45 EM í handbolta Ungverjaland-fsland, seinni hálfleikur. 21.55 Helgarsportið 22.20 EM í handbolta Sýndur verður leikur Dana og Serba/ Svartfellinga. 23.40 EMfhandbolta Endursýndur leikur fslendinga og Ungverja. Mánudagur 30. janúar 14.00 EM f handbolta Endursýndur verður lelkur Dana og Serba/Svartfellinga. Þriðjudagur 31. janúar 14.45 EMfhandbolta Leikur f milliriðli. 1630 EM-stofan 16.55 EM í handbolta Leikur f milliriðli. 17.45 EMfhandbolta Leikur f milliriðli, seinni hálfleikur. 00.05 EMfhandbolta Sýndur verður leikur f milliriðli. Efíslenska landsliðíð á leik f milliriðli kl. 19.15 verður hann sýndur beint Mlðvikudagur 1. febrúar 14.45 EM í handbolta Leikur f milliriðli. 1630 EM-stofan Hitað upp fyrir næsta leik á EM (hand- bolta. 16.55 EM í handbolta Leikur í milliriðli. 23.20 EMfhandbolta Leikur í milliriðli. Ef fslenska landsliðið á leik í milllriðli kl. 19.15 verður hann sýndur beint, Fimmtudagur 2. febrúar 14.45 EMíhandbolta Leikur í milliriðli. 16.30 EM-stofan 16.55 EMfhandbolta Leikur f milliriðli. 23.55 EMíhandbolta Leikur i milliriðii. Ef íslenska landsliðið á leik f milliriðli kl. 19.15 verður hann sýndur beint. Föstudagur 3. febrúar 13.20 EMíhandbolta Sýndur verður valinn leikur úr milliriðl- um. 14.50 EMÍhandbolta Sýndur verður valinn leikur úr milliriðl- um. 16.20 EMíhandbolta Sýndur verður vallnn lelkur úr milliriðl- um. Laugardagur 4. febrúar 10.40 EM [ handbolta Bein útsending frá leiknum um ffmmta sætið. 12.55 EM-stofan 13.10 EMíhand- bolta Bein útsending frá fyrri undanúrslita- leiknum. 14.45 EM-stofan 15.50 EM í handbolta Bein útsending frá seinni undanúrslita- leiknum. Sunnudagur 5. febrúar 12.30 EMíhandbolta Bein útsending frá leiknum um þriðja sætlð. 14.00 EM-stofan 14.50 EM f handbolta Bein útsending frá úrslitaleiknum. Honda með frumsýningu pnh-Nm Honda bílaverksmiðjan frumsýndi í gær nýjan 2006 Formúlu 1 bíl sinn í Barcelona á Spáni. Ökumenn liðsins eru Jenson Button og Rubens Barrichello sem kom frá Ferrari. Þetta mun vera í fyrsta skipti síðan 1968 sem Honda rekur eigið keppnislið, en fyrirtækið keypti BAR liðið í fyrra. Ökumenn liðsins æfðu í gær í Barcelona og Ant- hony Davidson þróunarökumaður liðsins ók einnig af kappi. Honda ætlar sér að vera í topp- baráttunni í ár eftir fremur magurt ár í fyrra. „Við stefnum á sigra í einstökum mótum með tvo af bestu ökumönnum heims okkur til halds og trausts. Við mættum á fyrstu æfingu með tvo nýja bíla, fyrir Button og Barrichello, sem sýnir styrk okkar og vilja að sýna ökumönnum okkar virð- ingu,“ sagði Nick Fry framkvæmdastjóri Honda Fi liðsins á frumsýningunni í gær. Venjulega mæta keppnislið aðeins með einn bíl á frumsýningu. Tæknistjóri Honda hðsins er Geoffrey Wills. „Við höfum lagt milda áherslu á góða yfirbyggingu og að sníða nýja bílinn að V8 vélinni nýju. Öll lið skipta úr Vio vélum í V8 og tæknideildin f Japan hefur smíða góða og öfluga vél. Hún hefur verið í prufubekkjum síðan i nóvember og hefur reynst vel,“ sagði Wills í gær. Spennandi verkefni fyrir Barrichello Margra augu munu beinast að Rubens Barrich- ello í mótum ársins eftir að hann ákvað að færa sig um set frá Ferrari til Honda hðsins. Hann var glaðbeittur á frumsýningu Honda Fi bílsins í dag og sama má segja um Jenson Button. Button barðist grimmt fyrir því að vera áfram hjá BAR og er sagður hafa keypt sig undan samningi frá Williams fyrir 30 miljónir dohara. „Þetta eru spennandi tímar fyrir mig. I fyrsta skipti í sex ár þar sem ég stend ekki við Ferrari! Honda á mikla sögu að baki í kappakstri og ég verð hluti af þeirri sögu hér eftir. Ég get ekki beðið eftir því að takast á við þetta spennandi verkefni", sagði Barricheho á frumsýningunni í dag. Honda hefur mikla trú á Button og telur að mikil samkeppni verði mihi hans og Barricheho á árinu. Button hefur keppt í yfir 100 mótum og aldrei unnið mót, en Barrichello vann marga sigra með Ferrari. „Ég er mjög stoltur að vera hluti af keppnisliði Honda. Ég hef trú á því að við náum langt á árinu. Ég hef lagt mikla áherslu á gott líkamlegt ásigkomulag í vetur til að takast á við langt og strangt keppnistímabil. Á meðan hafa tæknideildir í Japan og Englandi smíðað úr- vals ökutæki, sagði Button. Anthony Davidson er þróunarökumaður liðs- ins og gegnir mikilvægu hlutverki því Honda má aka á föstudagsæfingum keppnisliða með aukabíl. Fjögur efstu liðin í mótinu i fyrra mega það ekki og því gæti þetta komið Honda til góða. Davidson er mjög snjall og var oft með besta tíma á fóstudagsæfingum árið 2004, en í fyrra hafði BAR Honda liðið ekld leyfi til æfinga á fóstudögum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.