blaðið

Ulloq

blaðið - 26.01.2006, Qupperneq 26

blaðið - 26.01.2006, Qupperneq 26
26 I ÝM2SLEGT FIMMÍUDAGÍNN 26. JANÚAR 2006 blaöiö Börn eiga það til að horfa mikið á sjónvarp, jafnvel fyrir áeggjan foreldra sinna, enda finnst varla betri barnapía. Það er svo sem gott og blessað en nýlegar rannsóknir sýna að of mikið sjónvarpsáhorf getur leitt til offitu sem og árásargirni, en þó fer það eftir innihaldi sjónvarpsefnisins. Sérfræðingar ráðleggja að börn skuli ekki horfa á meira sjónvarp en sem nemur 1-2 klukkustundum á dag. Það er því gott að fylgjast með sjónvarpsnotkun barna og jafnvel að grípa til þess ráðs að takmarka sjónvarpsnotkunina. Auk þess er nauðsynlegt að börn hafi nægan frítíma til að sinna öðru en sjónvarps- og tölvunotkun. Það að stunda íþróttir og leika við vini er mikilvægur hluti þess að þróa heilbrigða sál og líkama. Hér eru nokkrar hagnýtar leiðir til að fá sem mest út úr sjónvarpsnotkun barnanna. Hægterað nota sjónvarpið til að útskýra erfiðar aðstæður og til að tjá tilfinningar þínar um erfið málefni, svo sem kynlíf, ást, eiturlyf, áfengi reykingar og svo framvegis. sem barnið hefur rétt á. Segðu barninu að það sé einungis leyfilegt að horfa á sjónvarp eftir að búið er að læra heima og vinna húsverkin. Gerið tilraunir með að banna sjónvarp algjörlega á virkum dögum. Það er nógu erfitt að finna tíma fyrir fjölskylduna á milli skóla, íþrótta og vina, hvað þó þegar sjónvarpið er líka talið með. Takið upp þætti á virkum dögum eða geymið ,sjónvarpstímann“ fram að helgum og þá gefst meiri tíma til að eyða með fjölskyldunni á virkum dögum. Settu gott fordæmi og minnkaðu þína eigin sjónvarpsnotkun. Skoðaðu sjónvarpsdagskránna og leitaðu að þáttum sem fjölskyldan getur horft á saman, þroskandi þætti sem innihalda ekkert ofbeldi. Veldu þætti sem ýta undir áhuga og vilja til að læra. Horfðu á þætti áður en börnin horfa á þá. Vertu viss um að þér finnist þættirnir við hæfi áður en börnin fá að horfa á þá. Búðu til sjónvarpsdagskrá fyrir fjölskylduna. Finndu eitthvað áhugavert sem öll fjölskyldan samþykkir að horfa á og hengdu dagskránna einhvers staðar þar sem allir sjá. Slökktu á sjónvarpinu um leið og tiltekinn þáttur er búinn í stað þess að flakka á milli stöðva þar til barnið finnur eitthvað annað til að horfa á. Horfðu á sjónvarpið með barninu. Ef þú getur ekki horft á allan þáttinn þá skaltu að minnsta kosti horfa á fyrstu mínúturnar til að átta þig á innihaldi þáttarins. Eftir það skaltu líta á þáttinn reglulega til að vera viss um að innihaldið sé við hæfi barnsins. Talaðu við barnið um hvað það sér í sjónvarpinu og deildu með því þínum skoðunum og gildum. Ef eitthvað birtist á skjánum sem þú ert ekki hrifin af þá skaltu spyrja barnið gagnrýnna spurnmga um efnið, eins og t.d. hvort að það sé rétt sem maðurinn gerði? Átti hann að gera eitthvað annað? Hvað heldurðu að þú hefðir gert í þessari aðstöðu og svo framvegis. Ef þú verður var við fordóma þá er gott að nota tækifærið til að útskýra að það eigi að koma vel fram við alla. Hægt er að nota sjónvarpið til að útskýra erfiðar aðstæður og til að tjá tilfinningar þínar um erfið málefni, svo sem kynlíf, ást, eiturlyf, áfengi reykingar og svo framvegis. Kenndu barninu að efast um og læra af því sem það sér í sjónvarpinu. Finndu eitthvað skemmtilegt að gera í stað þess að horfa Fylltu sjónvarpsherbergið af alls kyns afþreyingu til að hvetja barnið til að gera annað en horfa á sónvarpið. Sem dæmi má nefna alls kyns spil, bækur, púsl, leikföng og svo framvegis. Ekki hafa sjónvarp í barnaherbergjum Slökkvið á sjónvarpinu á meðan máltíðum stendur. Látið sem sjónvarpið sé forréttindi sem barnið þarf að vinna sér inn, en ekki eitthvað Bannið barninu að horfa á sjónvarp á meðan það gerir heimalærdóminn. Þorrahlaöborð frá 20. janúar 2006 Okkar vinsæla Þorrahlaðborð með súrum, heitum o§ kölduin réttuin ásamt úrvali fiskrétta. Verð aðeins á sjónvarpið. Stingdu upp á einhverjum leik sem þið getið leikið saman, farið út í göngutúr, hlustið á tónlist og dansið, lesið eða sinnið áhugamáli ykkur. Möguleikarnir eru óendanlegir þannig að slökkvið endilega á skjánum og njótið þess gæðatíma sem þið hafið með börnum ykkar. svanhvit@bladid.net Bjóðum uppá stóra og smáa sali, Koníaksstofu og Isbar, kaldasti barinn í bænum. Tilvalið fyrir: fundi, árshátíðir, fermingar, móttökur, starfsmannapartý eða aðra fagnaði Vesturgata 2 -101 Reykjavík • Sími 552 3030 • www.kaffireykjavik.is Netfang: kaffireykjavik@kaffireykjavik.is Minnkið sjónvarpsáhorf á jákvœðan hátt: Sjónvarpsáhorf eru forréttindi ekki réttur

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.