blaðið - 26.01.2006, Blaðsíða 31
bladiö FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2006
ÍÞRÓTTIR I 31
Styrkleikalistinn í handbolta:
Island í 21. - og 26. sæti
EHF, (Evrópska handknattleikssam-
bandið), hefur gefið út styrkleika-
lista fyrir landslið karla og kvenna.
Listinn er byggður á árangri liða í
Evrópukeppnum síðustu 3 tímabil
og sætafjöldi þjóða er einnig ákvarð-
aður út frá listanum.
í karlaflokki standa okkar menn
sig ágætlega, eru í 21. sæti en það
þýðir að félagsliðin okkar eiga eitt
sæti í meistaradeildinni, eitt í Evr-
ópukeppni bikarhafa og eitt sæti í
Evrópukeppni félagsliða. Þá eigum
við einnig tvö sæti í svokallaðri
áskorendakeppni Evrópu.
í kvennaflokki færist landsliðið
upp um þrjú sæti frá fyrri lista.
Þetta gefur tvö sæti í Evrópukeppni
félagsliða, tvö í áskorendakeppni
Evrópu og eitt sæti í Evrópukeppni
bikarhafa.
Eins og flestir vita hafa íslensk
félagslið þó ekki tekið þátt í öllum
þessum mótum á ári hverju og
hefur það verið vegna mikils kostn-
aðar. Það kemur enginn styrkur til
Islands frá EHF eins og tíðkast til
dæmis í fótboltanum þar sem háar
fjárhæðir koma ár hvert til KSÍ frá
knattspyrnusambandi Evrópu.
Styrkleikalisti handknatt-
leikssambands Evrópu í karla-
flokki lítur eftirfarandi út:
1. Spánn
2. Þýskaland
3. Slóvenía
4. Frakkland
5. Ungverjaland
6. Danmörk
7. Rússland
8. Króatía
9. Svíþjóð
10. Serbía og Svarfjallaland
21. Island
Styrkleikalisti handknattleiks-
sambands Evrópu í kvenna-
flokki lítur eftirfarandi út:
1. Danmörk
2. Ungverjaland
3. Spánn
4. Noregur
5. Rússland
6. Slóvenia
7. Þýskaland
8. Frakkland
9. Rúmenía
10. Makedónía
26. ísland
Míjsavipgerpir
555 1947
www.husco.is
Það er engín ástæða til að tapa á EN
Lenpianl
EM í handbolta er á Lengjunni. Fylltu út seðil á lengjan.is eða á næsta sölustað
og gerðu skemmtilega keppni enn meira spennandi. Nýir leikir daglega.
WWW. L ENGJA N. /S