blaðið - 26.01.2006, Side 38
38IFÓLK
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2006 blaöið
borgarínn
SKÆKJUR
Smáborgarinn hefur fylgst með umræðum
um réttindi samkynhneigðra. Hressileg
umræða, ígrunduð og skynsamleg. Hann
var lengi vel óviss um hvað hún snér-
ist nákvæmlega, en flóð fréttaskýr-
inga og yfirlýsinga hefur fært hann nær
upplýsingu. Hún horfir svona við: Yfirvöld
hafa unnið að því að bæta réttarstöðu
samkynhneigðra og átti sú vinna m.a. að
raungervast í frumvarpi sem mun veita
þeim aukin réttindi til þess að lifa eins og
þær manneskjur sem þeir telja sig vera.
Sjálfsagt. Samkynhneigt par er eiginlega
alveg eins og gagnkynhneigt, plús/mínus
einhverjir Y-litningar. Samstaða var um
frumvarpið, allt þar til þingkona bætti við
breytingartillögu þess efnis aðformönnum
trúfélaga verði kleift að gefa saman tvo ein-
staklinga af sama kyni hafi þeir áhuga á. NB:
Hafiþeiráhuga á.
Einhverjum líst illa á þetta. Þar á meðal
biskupi fslands, sem þeysti fram hjóna-
bandinu til varnar Nú ber að athuga hverju
biskup berst gegn. Frumvarpið felur ekki
í sér að þjóðkirkjunni verði gert að gefa
einhvern saman frekar en hún vill. Það fel-
ur hinsvegar í sér að öðrum trúfélögum er
veittur sá réttur, sem þau geta svo nýtt sér.
Efþau vilja.
Svo fór að þegar biskup var spurður af
hverju þjóðkirkjan undi því ekki að Ásatrúar-
félagið fengi að gefa saman Palla og Bubba
fékkst skiljanleg skýring; það myndi setja
þrýsting á kirkjuna sem hún er ekki tilbúin
að takast á við. Það er I sjálfu sér skilj-
anlegt og í sjálfu sér er einnig skiljanlegt
að sum trúfélög standi gegn því að samkyn-
hneigðir séu gefnir saman. Það stríðir gegn
trú þeirra á því hvernig heimurinn er og virk-
ar. En ertrú hvers manns ekki hans einkamál,
felur hún ekki í sér persónulegt samband
hans við guðlega veru að eigin vali? Þannig
er það alla vega í mótmælendatrú, sem er
ríkistrú fslendinga.
Röksemdafærslur sumra trúfélaga
stinga Smáborgara í augað eins og bjálki,
þær fela í sér að lagabókstafur okkar, siða-
reglur og heimssýn eigi að sækja beint til
trúarrita og þær reglur eigi að ganga yfir
þorra þjóðar. Um leið og við hættum að fara
eftir einhverju af því sem boðað er í Biblí-
unni (t.d.j, svo sem að grýta skækjur, borða
ekki svínakjöt o.s.frv., þá erum við búin að
skera úr um að mannleg skynsemi sé
æðri trúarritum í því að ákvarða siðareglur
okkar og athæfi.
Svo á að heita að við búum í upplýstu sam-
félagi. Svo á að heita að löggjafinn sé ekki
háður guðlegri forsjón (ólíkt því sem gerist í
ríkjum bókstafstrúaðra múslíma). Því ættu
lög okkar og siðareglur ekki að taka mið af
kröfum einstakra trúfélaga, nema að svo
miklu leyti sem meðlimir þeirra eru samfé-
lagsþegnar. Þannig virkar lýðræðið.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Sigurður Sveinsson, handboltakempa
Eigum viö séns?
„„Auðvitað eigum við séns. Annars værum við ekki að standa í þessu. Ef við
vinnum leikinn í dag þá gætum við þess vegna spilað um verðlaunasæti. Það
er ekkert flóknara en það. Það er lykilatriði að byrja vel og mér sýnist þetta
verða ofboðslega jafnt og spennandi mót. Það verður mórallinn og leikgleð-
in sem mun ráða úrslitum.“
EM í handbolta hefst í dag í Sviss. (slendingar keppa í dag við Serba og Svartfellinga.
Bim/FMI
Allt í himnalagi
Poppstjarnan Madonna hefur bitið harkalega frá sér þegar slúðurblaðamenn hafa
spurt hana út í orðróm um að fimm ára hjónabandi þeirra Guy Ritchie sé á síðustu
metrunum. Söng- og leikkonan hætti við tónleika á Nrj tónlistarverðlaununum í Can-
nes í Frakklandi síðastliðinn laugardag og hefur því verið hent fram að or-
sökin sé vandræði heima fyrir. Götublaðið New York Daily News hélt
því fram í vikunni að hjónin hefðu skilið að borði og sæng en haldi því
leyndu. Umboðsmaður Madonnu, Liz Rosenberg, heldur því þó statt og
stöðugt fram að sambandið sé traustara en nokkru sinni fyrr og benti
því til stuðnings á að Ritchie og börnin hafi í síðustu viku kíkt á töku-
stað til Madonnu þar sem hún tók upp myndband fyrir nýjasta lagið sitt.
,Eftir minni bestu vitund er allt í himnalagi hjá parinu,“ sagði hún.
Cruise klippir nakta Holmes
Ástaratriði þeirra Katie Holmes og Aaron Eckhart, sem sýndi þau nakin í kvikmynd-
inni Thank You For Smoking, hefur verið klippt út úr myndinni. Þeir sem þekkja til
málsins segja að skipanir um að atriðið skyldi út hafi komið frá unnusta Holmes, Tom
Cruise. Hann á að hafa notað áhrif sín sem stórstjarna til að passa að hans heittelsk-
aða sæist ekki fáklædd á hvíta tjaldinu.
Orðrómur hafði farið af stað um að ansi heita ástarsenu væri að finna í Thank
You For Smoking og því kom á óvart þegar hún sást hvergi þegar myndin var sýnd
á Sundance kvikmyndahátíðinni í Utah. Atriðið var hins vegar að finna þegar
myndin var sýnd á Toronto kvikmyndahátíðinni í fyrra. Leikstjóri myndarinnar,
Jason Reitman, gantaðist í fréttamönnum þegar þeir spurðu út í skortinn á holdi í
myndinni og sagði tæknina hafa verið að stríða kvikmyndagerðamönnunum. „Ef
þið viljið sjá kynlífsatriði með Katie Holmes verðið þið bara að leigja The Gift,“
bætti hann við. Holmes, sem ber barn Cruise undir belti, lék ber að ofan í einu
atriði þeirrar myndar.
Shakira í
fasteignaviðskiptum
Búist er við því að Shakira, þokkafulla söngkonan frá Kólumbíu, græði
litlar 150 milljónir króna fyrir hús sitt við Miami Beach í Flórída sem hún
setti á sölu nýlega. Shakira, sem gefur allar sínar plötur út á spænsku og
ensku, hyggst selja 600 fermetra heimili sitt fyrir rúmar 350 milljónir kró-
na á næstunni. Þetta er enginn kofi en þar eru fimm svefnherbergi, sex
baðherbergi og sundlaug. Strandhúsið stendur við Biscayne flóann og er
útsýnið víst stórkostlegt, auk þess sem þar er einkabryggja fyrir snekkjur.
Ástæðan fyrir því að Shakira vill selja er að henni þykir húsnæðið helst
tillítið.
FRJÁLST
blaöiö
ókeypis til
heimila og fyrirtækja
a"a,irkaía5ablaði6=
HEYRST HEFUR...
m
Islenskir íþóttamenn eru
einhverjir óheppnustu
ferðalangar sem sögur fara af.
Þannig má ganga að því sem
vísu að í hvert skipti sem þeir
fara til útlanda þá lenda þeir
í vandræðum - töskur týn-
ast og seinkun verður á flugi
sem leiðir auðvitað til þess
að menn koma örþreyttir
til keppni. Við höfum lesið
þúsund svona fréttir. Ferð
íslenska landsliðsins í hand-
bolta á Evrópumeistaramót-
ið í Sviss
er engin
undan-
tekning.
Þannig
birtist
flenni-
s t ó r
mynd af hetjunum okkar í
Morgunblaðinu í gær þar
sem þær voru strandaglópar
á ónefndum flugvelli úti í
heimi. Sama sagan og í öll
hin skiptin sem þeir hafa
farið út. Það þarf því ekki að
koma á óvart ef þeir skyldu
nú tapa fyrsta leiknum, ör-
þreyttir eftir erfitt ferðalag.
Landsbanki
Vegir hlutabréfabraskara
eru órannsakanlegir.
Þannig mælti greiningar-
deild Landsbankans með
tví í fyrradag að fólk seldi í
slandsbanka og tilgreindi
tankinn ýmsar ástæður
máli sínu til stuðnings. Gott
og vel, bankarnir ham hækk-
að mikið í verði og því er
eflaust skynsamlegt að fara
að hægja á sér. Nema hvað...
í næstu frétt var sagt frá því
að Landsbankinn hefði auk-
ið hlut sinn í íslandsbanka
um nánast helming og ætti
nú rúmlega 5% í honum.
Kannski eru Kínamúrarnir
milli einstakra deilda svona
háir í Landsbankanum, en
annars verður maður bara að
segja eins og stúlkan í Spaug-
stofunni: “Eg ekki skilja.”
Kvikmyndahúsagestir
tóku eftir því um helg-
ina að verið var að auglýsa
nýja íslenska kvikmynd.
Myndin heitir Blóðbönd
en framleiðandi hennar er
Snorri Þórisson. Hún er
framleidd af hinum íslenska
Pegasus í samvinnu við
danskt og þýskt fyrirtæki og
verður frumsýnd 24. febrúar
næstkomandi.
Skjár 1 hef-
ur sýning-
ar á þættinum
Geim Tíví í
kvöld. Saga
þessa þáttar er
annars merki-
leg. Hann byrjaði á PoppTíví
og fór síðan yfir á Sirkus áð-
ur en Skjár 1 landaði honum.
Sömu umsjónarmennirnir
hafa fylgt þættinu í gegnum
sjónvarpsflóruna og er varla
dæmi um annan þátt sem hef-
ur verið á þremur sjónvarps-
stöðvum. Geri aðrir betur.
Hvað er þetta orðið mikið... með vaski?