blaðið - 31.01.2006, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 biaðið
Kópavogur:
Lóðaúthlutanir gagnrýndar
Lóðaúthlutun á Kópavogstúni f desember var umdeild
blaðið________________
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Viðskipti:
Björgólfur
kaupir í
Bretlandi
„Lóðaúthlutunarkerfið eins ogþað er
í Kópavoginum í dag er handónýtt.
Það er ekki hægt að hafa nein önnur
orð um það,“ segir Guðríður Arnar-
dóttir, sem býður sig fram í í. sæti í
prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópa-
vogi. Guðríður skrifaði harðorða
pistil á heimasíðu sinni þar sem hún
gagnrýnir lóðaúthlutanir í bæjarfé-
laginu og telur þær einkennast af
óréttlæti og ógagnsæi.
Fjöldi kvartana
Á heimasíðu sinni segir Guðríður
bæjarfélagið vera með óréttlátum
og ógagnsæjum reglum vera að af-
henda litlum hópi fólks gríðarleg
verðmæti. Þá segir hún það vera
forgangsatriði að settar verði skýrar
reglurvið úthlutunlóðatil að tryggja
jafnræði. Bendir hún á að á liðnu ári
hafi fjöldi kvartana og kæra borist
bænum sem sýni glögglega kraum-
andi óánægju
bæjarbúa.
Margir reiðir
Að sögn Guðríðar
hefur núverandi
lóðaúthlutunar-
kerfi valdið reiði
meðal margra
Kópavogsbúa.
„Fólki finnst
þettamjögósann-
gjarnt að geta t.d.
ekki fengið sann-
gjörn rök fyrir
því hvers vegna því er ekki úthlutað
lóð frekar en einhverjum öðrum.
Á meðan þessar reglur eru svona
verður óánægja með úthlutanirnar.“
Guðríður segist ekki með gagnrýni
sinni vera að saka menn um klíku-
skap heldur sé hún fyrst og fremst
að kalla eftir umræðu um málefnið
og skýrari reglum. Þrátt fyrir að
flokksfélagar hennar í bæjarstjórn
hafi á tíðum verið ásakaðir um
að misnota lóðaúthlutunarkerfið,
segist hún ekki vera að gagnrýna
þá sérstaklega heldur sé kerfið
einfaldlega handónýtt. „Það er rétt-
lætismál að bærinn sé með gegnsæja
stjórnsýslu og það er víða pottur
brotinn. Þarna þarf að hreinsa til.“B
Guðríður segir
marga Kópavogs-
búa telja núverandi
ióðaúthlutunar-
kerfi vera ósann-
gjarnt.
Björgólfur
Thor Björg-
ólfsson hefur
keypt um 5
milljón bréfa
í breska síma-
fyrirtækinu
Cable & Wire-
less að sögn
breska blaðs-
ins Daily Tele-
graph. Eins
BjörgólfurThor Björg- Og Staðan er
ólfsson núna er hlutur
hans lítill og
óvist hvort að hér sé um lang- eða
skammtímafjárfestingu að ræða.
Þá kemur fram í blaðinu að Cable
& Wireless standi illa á breska síma-
og fjarskiptamarkaðinum. ■
Ríkissjóður:
Erlendar
skuldir lækka
Ríkið greiddi erlendar skuldir niður
um 48 milljarða króna á síðasta ári
og hafa skuldir ríkissjóðs sem hlut-
fall af vergri landframíeiðslu lækkað
um helming á fimm árum sam-
kvæmt frétt frá fjármálaráðuneyt-
inu. Heildarskuldir ríkissjóðs voru
í lok síðasta árs um 196 milljarðar
og þar af námu erlendar skuldir um
85,5 milljörðum. Á síðustu fimm
árum hefur hlutfall erlendra skulda
lækkað frá því að vera 67% af vergri
landsframleiðslu í rúmlega 26%. 1
frétt fjármálaráðuneytisins kemur
einnig fram að gert sé ráð fyrir því
að hlutfall erlendra skulda af heild-
arskuldum ríkissjóðs muni halda
áfram að lækka. ■
Búnaðarþing:
Bændur vilja halda sínu
Hótel Saga og Hótel ísland ekki til sölu
Búnaðarþing hafnaði í gær kauptil-
boði í hótel í eigu samtakanna, Rad-
isson SAS Hótel Saga og Park Inn ts-
land, sem áður nefndist Hótel ísland.
Legið hefur fyrir um hríð að hótelin
væru föl fyrir rétt verð, en Búnaðar-
þing ákvað að falla jafnframt frá því
og halda hótelunum i sinni eigu.
Að sögn Haraldar Benediktssonar,
formanns Bændasamtaka íslands,
var kauptilboðið fellt eftir skamma
umræðu. Trúnaður ríkti um tilboðs-
gjafann og kauptilboðið og sagði
Haraldur í samtali við Blaðið eftir
fundinn, að sá trúnaður héldist
fyrst tilboðið var fellt. ■
Hótel Saga verður ekki seld
Blalid/FMi
Sjávarútvegur:
Ekkert svigrúm til
launabreytinga
Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva (SF),
segir sjávarútvegsfyrirtæki hafa lítið
svigrúm til launabrey tinga og vill að
staðið sé við gerða kjarasamninga.
Stöndum við okkar samninga
Fram kom í fréttum í gær að
Starfsgreinasambandið vilji mögu-
lega láta reyna á endurskoðunar-
ákvæði launasamninga í kjölfar
þess að sveitarfélögin ákváðu um
síðustu helgi að hækka laun þeirra
lægst launuðustu um tólf til þrettán
prósent. Arnar Sigurmundsson,
formaður SF, segir samtökin vera
með gildandi kjarasamning sem
nýbúið sé að endurnýja. „Það er
ekkert svigrúm til launabreytinga
í sjávarútvegi og það get ég fullyrt
og allra síst í fiskvinnslunni." Arnar
telur að Starfsgreinasambandið sé
með yfirlýsingu sinni fyrst og fremst
að vekja athygli á launahækkunum
á samninga sem eru í gildi. Hann á
ekki von á því að þetta muni hafa
áhrif á þá saminga sem SF hefur
við sitt launafólk. „Við stöndum
fyllilega við kjarasamningana og
eigum mikið meira en nóg með það.
Ég á ekki von á því að þetta verði til
umræðu hjá okkur.“ ■
Viðskipti:
Greiðir 3,3
milljarða í arð
Landsbanki Islands mun greiða
hluthöfum sínum rúma 3,3 millj-
arða króna í arð ef tillaga sem lögð
verður fyrir aðalfund félagsins 4.
febrúar næstkomandi verður sam-
þykkt. Hagnaður síðasta árs nam
eins og kunnugt er rúmum 24,7
milljörðum króna eftir skatta og
nemur arðgreiðslan því um 13% af
hagnaði. Því sem eftir stendur af
hagnaði síðasta árs, eða rúmum 21
milljarði verður ráðstafað til hækk-
unar á eigin fé bankans samkvæmt
tillögunni sem send var Kauphöll
íslands í gær. ■
ísandsbanki:
Spá 2,5%
verðbólgu
Vísitala neysluverðs mun hækka
um 0,1% milli janúar og febrúar og
verðbólga mælast 4,3% í janúarmán-
uði ef spá íslandsbanka gengur eftir.
I Morgunkorni bankans í gær segir
að útsölur muni hafa áhrif til lækk-
unar vísitölunnar í mánuðinum, en
á móti þeim komi hækkandi elds-
neytis- og matvælaverð. Þá muni
kostnaður vegna viðhalds og við-
gerða á húsnæði einnig vega upp á
móti áhrifum útsala. Samkvæmt
spánni mun verðbólga því áfram
mælast yfir efri þolmörkum i mark-
miði Seðlabankans, sem er 4% og
langt yfir 2,5% verðbólgumarkmiði
bankans. Þetta yrði þá 22 mánuður-
inn í röð sem verðbólga reynist um-
fram markmiðinu. ■
undirfataverslun
fyrir allar konur
Frábærverð
oggæði.
Persónuleg
þjónusta.
7M
ceUoioMi
LfuunsC
Ynja
Hamraborg7, Kópavogi
Sími544 4088
www.ynja.is
Útsalan enn í fullum gangi.
(3 Helðskírt (3 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað
Rlgnlng,lltllsháttar //' Rigning 9 } Súld íj: Snjókoma
JJ Slydda Snjóél
Amsterdam 04
Barcelona 12
Berlin 01
Chícago -03
Frankfurt 01
Hamborg 04
Helsinki -05
Kaupmannahöfn 03
London 04
Madrid 10
Mallorka 13
Montreal 0
NewYork 07
Orlando 14
Osló 06
París 03
Stokkhólmur 05
Þórshöfn 07
Vin 0
Algarve 12
Dublin 04
Glasgow 04
///
//'
///
5°
///
///
///
8°
// /
///
///
8°
0
Cf 3C
é
♦o
// /
///
///
///
///
///
7° "Ö
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
///
///
///
h
Á morgun
'//
///
8°
0
8°
'//
6° ///
7°