blaðið - 18.02.2006, Síða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006 í blaöiö
blaóiö=
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Fékk 14 ára
fangelsi
mbl.is | Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær Sigurð Frey
Kristmundsson í 14 ára og 6
mánaða fangelsi fyrir manndráp,
þjófnað og umferðarlagabrot.
Manndrápið átti sér stað á
Hverfisgötunni í ágúst á síðasta
ári. Sigurður játaði að hafa orðið
manninum að bana en neitaði
að um ásetningsverk hafi verið
að ræða. f dómsniðurstöðu
Hérðasdóms Reykjavíkur segir
að Sigurður hafi auk þess verið
dæmdur fyrir þjófnað og fimm
umferðarlagabrot. Á árunum
2004 og 2005 ók Sigurður m.a.
án ökuréttinda undir áhrifum
áfengis og fíkniefna. Sigurður
var dæmdur til sviptingar öku-
réttar í eitt ár og til að greiða
rúmar 5.3 milljónir í skaðabætur.
Engin sjúkra-
flugvél í Eyjum
f vikunni gerðist það þrívegis að
sjúklingar frá Vestmannaeyjum
þurftu að bíða eftir sjúkraflugi
frá Reykjavík. Á eyjar.net
kemur fram að Landsflug sem
sér um þjónustuna hafi ekki
verið með flugvél á staðnum
síðan fyrir viku. f eitt skiptið
þurfti að senda sjúkfing til
rannsókna í Reykjavík og
þegar óskað var effir vél kom í
ljós að hún var stödd í Reykja-
vík. Gunnar Kr Gunnarsson
framkvæmdastjóri Heifbrigði-
stofnunar Vestmannaeyja segir
að rætt hafi verið við heifbrigð-
isráðuneytið vegna málsins.
Þörf á sveigjanlegri þjónustu
Sigurður Björnsson segirheima- og hjúkrunarþjónustu fyrir fatlaða um margt gamaldags.
„Heimahjúkrun fyrir fatfaða er að
ýmsu leyti gamaldags og miðar að
þörfum aldraðra en fatlaðir þurfa
meiri sveigjanfeika í þjónutu,“ segir
Sigurður Björnsson sem á sæti í nefnd
um stefnumótun heimaþjónustu og
starfsmaður hjá Sjálfsbjörg. Sigurður
er með meðfæddan vöðvasjúkdóm og
hefur verið f hjólastól frá 13 ára aldri.
Hann hefur notið heima- og hjúkr-
unarþjónustu að einhverju leyti í 20
ár og segir að heimaþjónustukerfið
hafi í stórum dráttum verið óbreytt
á þeim tíma.
Nýlega kom út skýrsla stefnu-
mótunar Sjálfsbjargar varðandi
heimaþjónustu þar sem fjallað er
um tilraunaverkefnið Samþætt-
ing á heimaþjónustu í Reykjavík. í
tengslum við verkefnið er því velt
upp hvar þjónustan fyrir hreyfihaml-
aða er og hvar ábyrgðin liggi.
„Öryrkjar þurfa mjög breytilega
þjónustu og ekki víst að henti þeim
að fara á fætur eða hátta á þeim tfma
sem heimahjúkrunin mætir á staðinn.
Hér þarf kerfið að laða sig að þörfum
öryrkja á öllum aldri sem sumir eru
á vinnumarkaði. Það er heldur ekki
víst að öryrki geti reitt sig á stuðning
ófatlaðs maka.“ Sigurður segir það
réttlætismál að fatlaðir fái þjónustu
án tillits til heimilisaðstæðna.
Heimaþjónusta tekjutengd
Sigurður segir fyrsta mál á dagskrá
að skilgreina mikilvægustu þættina
varðandi heimaþjónustu og skoða
lögin í framhaldinu sé hægt að gera
breytingu á lagaumhverfi. „Eins og
kerfið er núna er heimahjúkrun á
vegum ríkisins, heimaþjónustan á
vegum sveitarfélaga og liðveisla á
vegum svæðisskrifstofu um málefni
fatlaðra. Þetta er of flókið kerfi eins
og það er núna og nauðsynlegt að
þessi þjónusta sé á hendi eins aðila.“
Sigurður segir að þjónusta á borð við
xessa ætti að vera sem næst þjónustu-
xegum og telur meiri líkur á að hún
kæmi að fullum notum væri hún á
hendi sveitarfélaganna. „Sú þjónusta
Sigurður Björnsson, starfsmaður Sjálfs-
bjargar.
sem sveitarfélögin veita er misjöfn
og misdýr og þetta þarf að samþætta.
Eins og staðan er núna er félagslega
heimaþjónustan tekjutengd en það er
ósk okkar að þetta verði eins og hver
önnur grunnþjónusta og verði okkur
að kostnaðarlausu."
Reglur um þrif misjafnar
„Núna eru reglurnar þannig að í
sumum sveitarfélögum þurfa þeir
sem eru með yfir 100 þúsund krónur
á mánuði að greiða fyrir heimaþjón-
ustu sjálfir. Þá er misjafnt eftir sveit-
arfélögum hvernig þrifum er háttað.
Á sumum stöðum eru reglurnar
þannig að ekki er þrifið yfir 150 cm
hæð á heimilinu. Þetta þýðir að efri
skápar eru ekki þrifnir og þá vaknar
sú spurning hver eigi að gera það?“
Sigurður segir að fólk sem fly tji sig
til á milli sveitarfélaga eigi oft erfitt
að átta sig á þeirri þjónustu sem við-
komandi á rétt á í því sveitarfélagi
sem flutt er til.
1 stefnumótun Sjálfsbjargar varð-
andi heimaþjónustu verður lögð
áhersla á að þjónusta á heimilum
verði heildræn og sett í flokk með
grunnþjónustu sem yrði á einni
hendi.
Stóraukinn lestur á Blaðinu
Lóðir fyrir um
4 milljarða
100%
Júní Sept okt Jan
2005 2005 2005 2006
Línuritið sýnir þróun á aimennum lestri dagblaðana fjögurra samkvæmt Gallup
Meðallestur á Blaðinu eykst mest
allra dagblaða á höfuðborgarsvæð-
inu eða um 15% samkvæmt fjölmiðla-
könnun IMG Gallups sem birt var í
gær. Lestur Blaðsins eykst einnig
mest sé horft til meðallesturs á land-
inu öllu. Lestur á Fréttablaðinu og
DV minnkar milli kannana.
Minnkandi meðallestur
Fréttablaðsins
Könnun Gallups var gerð vikuna 20.
til 26. janúar síðastliðinn og var úr-
taksstærðin um tólf hundruð manns.
Meðallestur á Blaðinu á höfuðborgar-
svæðinu í janúar mældist 46,9% en í
könnun sem gerð var í októbermán-
uði í fyrra var hann í 39,7%. Þetta
er um 15% aukning á milli kannana.
Meðallestur á Morgunblaðinu mæld-
ist 53,8% og eykst um 5% frá því í
október.
Þá minnkar meðallestur á Frétta-
blaðinu á höfuðborgarsvæðinu um
5% frá því í síðustu könnun. f októ-
ber var hann 70,7% en mældist núna
67,3%.
Blaðið hækkar mest á landinu
Sé horft til meðallesturs á landinu
öllu eykur Blaðið einnig mest við
sig eða 15,4%. f október mældist með-
allestur um 27,4% en er núna 32,4%.
Morgunblaðið hækkar einnig í með-
allestri á landinu eða um 8,2%. Var
lesturinn 46,1% í október en er núna
50,2%.
Meðallestur á DV dregst saman
um 21,8% milli kannana og er nú um
14,7% á landinu öllu. Þá dregst með-
allestur á Fréttablaðinu saman um
2,4%. Var hann 64,1% í október en
mældist núna 62,6%.
Tekjur Reykjavíkurborgar af sölu
byggingarréttar á 120 lóðum í suð-
urhlíðum Olfarsfells geta orðið allt
að 4,3 milljörðum króna samkvæmt
heimildum á ruv.is. Einbýlishúsa-
lóðir kosta um 20 milljónir, en
hæsta tilboð í lóð undir einbýlishús
var upp á rúmlega 340 milljónir. f
næstu viku verður haft samband
við þá sem eiga hæstu tilboð. Gert
er ráð fýrir að einhverjir fafli frá
tilboðum sínum þar sem sumir
gerðu tilboð í margar lóðir. Vinna
við gatnagerð er þegar hafin á
svæðinu og á henni að ljúka í haust.
Himnasmiðir
BlaÖiÖ/Frikki
Þeir Andrés og Óskar voru önnun kafnir viö byggingarvinnu í Sóltúni f Reykjavfk f gær.
Þeir rétt gáfu sér tíma til aö líta upp frá störfum sínum til aö brosa í myndavélina.
£
Gæða sængur
og heilsukoddar.
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
(3 Heiðskírt 0 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað
Rigning, lítllsháttar ✓ ✓✓ Rigning 9 5 Súld
^ Snjókoma
*
^7 Slydda ^~j Snjóél ^
Skúr
Amsterdam 06
Barcelona 14
Berlín 04
Chicago -14
Frankfurt 06
Hamborg 04
Helsinki -07
Kaupmannahöfn 01
London 07
Madrid 07
Mallorka 16
Montreal -12
New York -01
Orlando 14
Osló 03
París 07
Stokkhólmur -02
Þórshöfn 07
Vín 05
Algarve 15
Dublin 06
Glasgow 07
///
///
/ //
40 o°
// /
///
0°///
40
40
0£
40
// /
///
/ //
40 1°
0
'•n*
///
///
///
3° / / /
Co
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt ó upplýsingum fró Veðurstofu íslands
2° 0°
3“®
o
A morgun