blaðið - 18.02.2006, Qupperneq 18
18 I TÍSKA
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Munstrað og œpandi aftur í móð
Nú er rétti tíminnfyrir kjarkmiklar tískutilraunir
Alexandre Herchcovitch:
Þessi er nú bara eins og fallegur garður
með litríkum blómum. Gerir mikið fyrir
andlitið og vekur athygli alls staðarl
Einn höfuðvandi kvenna er sá
að kjósa sífellt klæðnað sem er
svartur, hvítur eða hreinilega
eitthvað sem er nógu klassískt
og jarðbundið. Sumar kjósa
einfaldlega að halda sig til hlés
og klæða sig hóflega og enn
aðrar sniðganga hins vegar allt
sem kallast „spes“ og öðruvísi
vegna þess eins að þær þora
ekki. Á einhverjum tímapunkti
þurfum við hins vegar að láta
eftir okkur að spila af fingrum
fram og klæðast íburðamiklum,
litríkum og forvitnilegum fötum.
Við eigum ekki að lifa í ótta við
að vera litnar hornauga á gangi
í Kringlunni fyrir frumlegan
klæðaburð og þar fyrir utan er
tískan orðin það fjölbreytt að fá
eru tískuslysin.
Senn fer að vora og fatahönnuðir
hafa lagt línurnar fyrir komandi
tíma. Þar kennir ýmissa grasa og
ber helst að nefna munstruð og
litrík klæði. Kjarkmiklar tískutil-
raunir eru það sem virkar og horft
er með aðdáun til þeirra sem þora.
Nú er því rétti tíminn til að sleppa
fram af sér beislinu, sleppa öllum
hömlum og fjárfesta í fötum með
karakter - þ.e. fötum sem ýta yndir
persónuleika okkar sem og rót-
tækni í fatavali. Áprentuð munstur,
litir og allt sem er nógu framandi er
málið!
Luca Luca:
Þessi kjóll frá Luca Luca er sannkallaður
glæsikjóll sem hentar bæði fyrir árshá-
tíðina og fimmtugsafmæliðl
500,1000,2000 OG 3000 KR SLAR.
Ótrúleg verð Komdu og nýttu þér þetta einstaka tækifæri.
Sissa Tískuhús Glæsibæ
Opió 10-18.00 virka daga og laugardaga 10-16.00 Simi 5625110
Marni:
Ermalaus bómullarkjóll með skemmti-
legu og sumarlegu munstri. Allar konur
ættu að fjárfesta í einum svipuðum og að
sjálfsögðu mittisbelti í stíl.
Alberta Ferretti:
Kvenlegur og seiðandi kjóll sem klæðir
flestar. Með réttu hárgreiðslunni er heild-
arútlitið glæsilegt og sjálfsöryggið verður
meira...
Christian Lacroix:
Þessi glæsílegi silkikjóll er léttur, smart
og afar klæðilegur. Afríska munstrið setur
punktinn yfir i-ið og ekki skemmir hárklút-
urinn fyrir.
Phi:
Þessi skemmtilegi kjóll frá Phi er mikið
fyrir augað og pottþéttur til þess að vekja
athygli. Bleikt, sumarlegt og sætt -100%
málið í vor.
%
Tími tii
að elska
->Oslo
“Kr. 4800
->Þrándheimur
frá
Kr. 7500
aðra leið
->Stavanger
Kr. 4800
-> Bergen
wKr. 4800
Allir aðrir staðir í Noregi einnig á góðu verði. www.flysas.is
S4S
Scandinavian Airlines
Flugvallarskattar og aörir skattar sem bætast við eru, til Oslo Kr. 3200,-, og til annarra staða í Noregl Kr. 4700.-
A STAR ALLIANCE MEMBER vj>