blaðið - 18.02.2006, Page 31
blaðið LAUGARDAGUR 18. FEBRÖAR 2006
VIÐTALI 31
og engin fyrirtæki. Ég kynntist fram-
takssamri kaupkonu sem rak tvær
litlar verslanir og hafði frábærar hug-
myndir. En hún sagðist hvergi geta
fengið lán í bönkum til að láta á þær
reyna. Hjá henni og fleirum sem ég
kynntist gætir mikilla sárinda í garð
Frakka. Togo er fyrrverandi nýlenda
Frakka og íbúarnir segja sjálfir að
Frakkar mergsjúgi öll verðmæti úr
landinu sem gæðingaveldið kringum
ríkisstjórnina hirðir ekki.“
Er þá gamla nýlendustefnan sem við
lcerðum um í skólunum enn ífullum
gangi?
„Já og það var eitt af því sem kom
mér mest á óvart. Frakkar flytja alla
framleiðslu óunna úr landinu, mala
kaffið og kakóið annars staðar og
láta búa til textíl úr baðmullinni.
Síðan flytja þeir það aftur til Afríku
og selja íbúunum sem framleiddu
hráefnið. Þetta er ekkert annað en
dæmigerð ruddaleg nýlendustefna.
Vegna þessa skapast engin verð-
mæti og ekkert kapítal. Fyrir vikið
verður ákaflega erfitt fyrir fátæku
löndin í Afríku, þar sem engar nátt-
úruauðlindir eru, að ná sér á strik.
Við Þráinn Bertelsson frændi minn
og vinur vorum þarna saman. Einn
daginn fórum við saman á kaffihús
handan götunnar og horfðum á úr-
slitaleikinn í Afríkukeppninni í fót-
bolta af stórum skjá. Þegar leiknum
var að ljúka sáum við að stór hópur
fólks stóð fyrir utan og reyndi að
fylgjast með þessum spennandi leik.
Fólk átti hins vegar enga peninga og
fékk því ekki að koma inn. Þetta er
táknrænt fyrir hinn dæmigerða Afr-
íkubúa. Hann fær að standa í gætt-
inni og horfa á allsnægtirnar.“
Djúpur afrískur grátur
Hvernig heldurðu að það sé að vera
barn í svona fátœku landi?
„Mörgum þeirra er lífið ákaflega
erfitt. Börnum er rænt í Togo, eða
seld, og þau hneppt í þrældóm í
öðrum Afríkjuríkjum. Þetta vita
stjórnvöld en geta lítið gert. Mis-
notkun og nauðganir á telpum
og kornungum stúlkum eru út-
breiddar. Ríkisstjórnin er sem betur
fer komin i herferð gegn því. Stúlkur,
sem varla eru komnar af barnsaldri,
eru misnotaðar og verða óléttar
kornungar. Þær eru svo litlar að þær
eiga erfitt með að fæða, slitna oft
illa og í hitanum og óhreinindum
verða þær fyrir vondum sýkingum
og deyja oftar en ekki af völdum
fæðingarinnar. Ég tók eftir því að
á barnaheimilinu og á tvö hundruð
barna vöggustofu sem ég kom á,
voru tvíburar ótrúlega margir. Ég
geri ráð fyrir að ástæðan sé sú að
kornungar mæður deyja frekar við
að fæða tvíbura, af því það er ein-
faldlega svo erfitt við aðstæður þar
sem heilbrigðisþjónustan er í algeru
lágmarki. A vöggustofunni tók ég
lika eftir auglýsingaspjöldum þar
sem varað var við mönnum sem
framleiða barnaklám. Löggæsla er
afar takmörkuð og börn njóta því
lítillar verndar stjórnvalda. í Togo,
og fátæku ríkjunum í grennd, er að
verða til subbulegur kynlífsiðnaður.
Úrhrök Evrópu eru hætt að fara til
Asíu en koma í staðinn til landa eins
og Togo þar sem allt er falt. Frakki,
sem ég eignaðist að kunningja og
hafði flúið frá Abidjan á Fílabeins-
ströndinni eftir uppþotin í fyrra,
sagði mér að evrópskir barnaníð-
ingar sæktu í vaxandi mæli til Togo
til að svala óeðli sínu. 1 þessu efni
eins og öðrum berum við Evrópu-
menn ábyrgð á verstu eymdinni í
Afríku.“
Var ekki erfitt að kveðja?
„Jú, það var erfitt að kveðja börnin
í Spes. Stundum fannst mér einsemd
speglast í augum þeirra þótt þau
væru augljóslega í góðum höndum.
Erfiðast var að kveðja lítinn strák,
Diedonne. Nafnið þýðir gjöf Guðs.
Hann er yngsta barnið á Spes, lið-
lega eins árs. Ég kallaði hann Donna.
Hann var svipsterkur, hnyklaði
brýrnar og var að byrja að staulast
á sínum litlu fótum. Hann sofnaði
99......................................
Ég komst að þeirri niðurstöðu að ég stæði í skuld.
Ég er með vissum hætti að greiða hana með því
að verja töluverðu aftíma mínum íþetta starf."
oft í fangi mér við vestfirskan hjart-
slátt, sem hefur örugglega vakið upp
gamalt minni um trumbusláttinn
úr frumskóginum þaðan sem rætur
hans liggja. Ég kveið fyrir því að
hitta hann í síðasta skiptið áður en
ég fór frá Togo. Donni, Donni, köll-
uðu krakkarnir þegar ég kom til að
kveðja. Hann sneri sér við eins og
aldinn, afrískur höfðingi, horfði á
mig og staulaðist niður eina tröppu.
Þegar hann sá að ég kom ekki til
hans tók hann ákvörðun og skutl-
aði sér niður og beint í fangið á mér.
Hann kvaddi mig með djúpum afr-
ískum gráti. Það reif í hjartað. Ég
er ennþá að hugsa um það hvers
konar líf hann eigi fyrir höndum
og hvernig honum muni reiða af í
stórum hópi foreldralausra barna
þar sem hann er minnstur.“
kolbrun@bladid.net
Össur með Diedonne i fanginu. Nafnið
þýðir Gjöf Guðs, og Össur kallaði hann
Donna.
Alda Lóa Leifsdóttir.
Urslitaleikirnir í Lýsingarbikarnum fara fram um helgina
Meistaraflokkur kvenna
Lau. 18. feb2006 Laugardalshöll
ÍS - Grindavík
Meistaraflokkur karla
Lau. 18. feb2006 Laugardalshöll
kl. 16:00 Grindavík - Keflavík
Vinnurþú 100.000 kr.?
í báðum leikjum fá nokkrir heppnir áhorfendum að reyna sig
við 100.000 kr skotið í boði Lýsingar
Mætum öll og hvetjum okkar fólk!
Lýsing hf. er stolt af stuðningi sínum við bikarkeppnina í körfuknattleik
Fjármögnun í takt vió þínar þarfir
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is