blaðið - 18.02.2006, Page 54
541 FÓLK
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006 blaöiö
VESÖLD WÓTÍMA-
KARLMANNSINS
Smáborgarinn er kona sem dýrkar
karlmennskuna. Þess vegna er hún
einhleyp. Það hefur nefnilega ekkert
upp á sig að vera sífellt að leita að
því sem ekki er til. Karlmennskan
er horfin. Nútíminn hefur gengið af
henni dauðri enda var hún víst farin
að ógna jafnvæginu í samfélaginu.
Karlmaður sem veit hvað hann vill er
litinn hornauga. Hins vegar er mikil
eftirsókn eftir konum sem stefna á
frambraut. Fáir eiga bágara í nútíma
samfélagi en hvítir miðaldra karl-
menn sem hafa aldrei nennt að þvo
upp. Þeir eru fyrirlitnir og kallaðir
karlrembur. Konur sem nenna ekki
að standa í húsverkum eru hins vegar
dásamaðar sem fyrirmyndir annarra
kvenna. Þær stefna nefnilega á frama-
braut. Og það þykir fínt þegar konur
eiga í hlut.
(námunda við Smáborgarann vinn-
ur ungur maður. Hann mætir til vinnu
í hvítum bol sem á stendur V Dagur
- Ofbeldið burt. Bolurinn er reyndar ri-
finn. Smáborgarinn hefur grun um að
það sé að nokkru leyti táknrænt fyrir
hugmyndaheim hins unga manns. Sá
heimur er kaótískur. Ungi maðurinn
vill vera karlmaður en treystir sér
ekki alveg til þess því hann er svo
hræddur um að vera ekkl í takt við
stefnu og strauma. Þess vegna er
hann ofur mjúkur. Það er hann sem
sýnir snyrtivörum kvenkynsvinnu-
félaga áhuga og það er hann sem
talar máli harðlínufemínista í hverju
vitleysismálinu á fætur öðru. Hann er
hinn dæmigerði mjúki maður.
Fáir þora lengur að gera mun á því
karlmannlega og því kvenlega. Það
er talið svo gamaldags. Um leið eru
menn að horfa fram hjá því hversu
spennandi samskipti karla og kvenna
verða þegar bæði viðurkenna mis-
muninn sem erá viðhorfum kynjanna.
Munurinn er ekki eingöngu líkamleg-
ur, eins og stundum er látið í veðri
vaka, hann byggist einnig á ólíkum
skoðunum. Það er sitthvað fallegt við
það. Smáborgaranum finnst að það
eigi ekki að rembast við að minnka
þennan mun, heldur leyfa honum að
vera þarna. Karlmenn og konur þurfa
ekki að vera eins, og eiga ekki að vera
það. Og það er alveg ágætt þegar
manneskjur sem eru svo ólíkar mæt-
ast og láta sér þykja ansi vænt hvorri
um aðra.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Magnús Ólafsson, prentari og skemmtikraftur
Hvernig fer leikurinn í dag?
„Ég hef trú á því að Liverpool vinni 2-1. Ég er mikill áhangandi Liverpool
og á því kannski erfitt með að vera hlutlaus. Ég held að Fowler skori annað
markið og Gerrard hitt. Ætli Rooney skori ekki fyrir Manchester United
eða þá Nistelroy.“
Erkióvinirnir í Liverpool og Manchester United mætast í 16 liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í dag. Þess má einnig til gamans
geta að Magnús Ólafsson hélt upp á 60 ára afmæli sitt i gær og á morgun verður sonur hans Hörður Magnússon fertugur.
Vill Paris í hlutverk
móður Teresu
Partístelpunni Paris Hilton hefur verið boðið að leika kaþólsku nunnuna og
dýrlinginn móður Teresu í nýrri kvikmynd sem byggð er á ævi hennar.
Leikstjóri myndarinnar, hinn indverski T Rajeevnath, hefur haft sam-
band við Paris í tengslum við myndina sem mun einblína á líf og störf móð-
ur Teresu sem var fullkomin andstaða við líf Paris.
Það kemur nú frekar mikið á óvart að leikstjórinn skuli vilja hana i hlut-
verkið þar sem hann sagði að sú sem verður fyrir valinu þyrfti að hafa lifað
sómasamlegu lífi, en eins og flestir vita hefur Paris ekki beinlínis lifað
eins og nunna.
Presley giftir sig
Lisa Marie Presley, dóttir rokkkóngsins Elvis Presley, er gengin út í fjórða sinn. I þetta
skiptið er sá heppni gítarleikarinn Michael Lockwood en þau giftu sig í Kyoto í Japan
í vikunni.
Lisa var gift Nicolas Cage, Michael Jackson og Danny Keough sem er faðir
barna hennar. Móðir Lisu, leikkonan Priscilla Presley, fylgdi dóttur sinni
upp að altarinu og öll fjölskyldan var viðstödd athöfnina - Elvis var með í
anda.
Madonna ýtir und-
ir gróusögurnar
Á Brit verðlaunahátíðinni í síðustu viku ýtti Madonna undir sögusagnir þess efnis
að hún og eiginmaður hennar, Guy Ritchie, væru að skilja.
Poppdrottningin náðist á filmu þegar hún bægði sér frá þegar Guy ætlaði að
kyssa hana - rétt eftir að hún hélt þakkaræðu þar sem hún nefndi eiginmann
sinn ekki á nafn.
Madonna fékk verðlaun sem besti kvenkynslistamaðurinn og þakkaði upp-
tökustjóranum Stuart Price, en undanfarið hefur verið uppi orðrómur um að
þau séu að slá sér saman.
Hún endaði ræðuna með því að segja: „Síðast en ekki síst vil ég þakka öllum
1_____ mínum aðdáendum í Bretlandi, án ykkar væri ég ekki neitt.“
eftir Jim Unger
© Jim Unger/dist. by Untted Medla, 2001
Ertu ekki að taka smá áhættu með því að fara
út í þessum kjól, elskan - í hverfinu okkar?
HEYRST HEFUR...
Pað er mik-
ill gustur
á Hannesi '
Smárasyni
þessa dagana
og hann hef-
ur aldeilis ver-
ið upptekinn
í innkaupunum. Gárungarnir
segja að það sé allt útlit fýrir að
kappinn hafi verið að kaupa inn
fýrir gott partí. Kaupin á Bang
og Olufsen og Faxe bjórverk-
smiðjunum bendi til þess og nú
sé ekkert annað eftir en Maarud
- þá getur Hannes slegið upp einu
góðu gilli. Kannski Hannes sé að
undirbúa kveðjupartí fyrir Ice-
landair en fyrirhugað er að selja
gamla flugfélagið enda ekkert
eftir þar nema rekstrarkostnað-
ur og launafrekt starfsfólk.
Ymsir Samfylkingarmenn
eru öskuillir vegna þeirra
ummæla Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur að eðlilegt sé í
markaðsþjóðfélagi að peningar
geti skipt sköpum í prófkjöri.
Þykir ýmsum sem Blaðið
hefur heyrt í að slík ummæli
séu alls ekki ekki viðeigandi
þegar leiðtogi jafnaðarmanna
á Islandi á í hlut. Einn félagi í
Samfylkingunni sagði í samtali
við Blaðið í gær að óheppilegt
væri að öll athyglin beindist
að peningum í sambandi
við prófkjörið. Klíkuskapur
og kosningabandalög hefðu
sennilega ráðið mun meiru um
niðurstöðuna en fjármagnið.
Þungt var í þessum felaga sem
sagði að flokkseigendafélagið
hefði nú náð öllum völdum í
Samfylkingunni.
Ha n n e s
Hólm-
steinn Gissur-
arson hefur
jafnan haft
sínareiginskil-
greiningarum
ýmisfyrirbæri.
Eins og fyrrum nemendum hans
er kunnugt fer skilningur hans
oft ekki saman með skilningi
annarra fræðimanna á hugtök-
um. Samkvæmt Hannesi eru það
að sjálfsögðu aðrir fræðimenn
sem ekkert skilja og Hannes sjálf-
ur alltaf jafn misskilinn. Hannes
varð, eins og viðbúið var, gríðar-
lega sár yfir gagnrýni Stefáns Ól-
afssonar á yfirlýstar skattalækk-
anir ríkisstjórnarinnar. Rifjar
Hannes upp í grein á Vísi hversu
takmarkaðar skilgreiningar Stef-
áns eru. Til að mynda hafi Stef-
án ekki hugmynd um hvað fá-
tækt er ólíkt Hannesi sem segir
skilgreiningu fátæktar augljósa;
hún sé móðir sem ekki hefur ráð
á að kaupa mat ofan í börnin sín.
Samkvæmt þessu eru hinir barn-
lausu sem ekki hafa ráð á að mat-
ast bara þjakaðir af átröskun af
einhverju tagi.
m
Asvipuðum
s 1 ó ð u m
vekur Jón
Ormur Hall-
dórsson upp
áhugaverðar
spurningar um
tjáningafrelsið
og tilhneigingu fólks til að setja
upp mismunandi gleraugu fyrir
þó um margt líka atburði. Þann-
ig hafi margir ólíkar hugmyndir
um tjáningafrelsið þegar um
ræðir DV og svo aftur Jyllands
Posten.Það er víst ekki alveg
það sama sem á við um Jón og
séra Jón enda furðu margir til-
búnir til að snúa heilagri vand-
lætingunni sem áður snéri gegn
ritstjórn DV að múgnum í mús-
limalöndunum.