blaðið - 20.03.2006, Side 10
MÁNUDAGUR 20. MARS 2006 blaðiö
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
Andófsmanni
sleppt í íran
Einum þekktasta andófsmanni ír-
ans hefur verið sleppt úr haldi.
Blaðamaðurinn Akbar Gamji var
árið 2000 dæmdur í sex ára fangelsi
fyrir greinaflokk sem hann skrif-
aði þar sem hann hélt því fram að
háttsettir embættismenn tengdust
morðum á andófsmönnum.
Erlendir fréttaritarar í Iran segja
að Ganji hafi með framgöngu sinni
aukið baráttuanda þeirra sem berj-
ast fyrir umbótum þar í landi en þar
ræður afturhaldssöm klerkastjórn
ríkjum.
Ganji sætti löngum einangrunar-
vist í fangelsinu og mótmælti því
með nokkurra mánaða hungurverk-
falli í fyrra. Þar hélt hann áfram
að gagnrýna mannréttindabrot
stjórnvalda.
Ganji tilheyrði forðum Byltingar-
verðinum, sérsveit og stjórnmála-
lögreglu klerkastjórnarinnar. Hann
hafði hins vegar forréttindi, gerðist
blaðamaður og fullyrti í greina-
flokki að ráðamenn hefðu komið
nærri morðum á andófsmönnum á
tiunda áratugnum. Ganji hélt áfram
skrifum sínum í fangelsi og tókst
að smygla út bréfum sem birt hafa
verið á Netinu.
Árið 2002 barst frá honum stefnu-
skrá lýðveldissinna þar sem hann
lýsir því hvernig breyta beri Iran í
lýðræðisríki. Bandaríkjamenn og
Evrópusambandið hafa lýst yfir
stuðningi við baráttu Ganji og hefur
George W. Bush lofað hugrekki hans
sérstaklega.
Kosningar í Hvíta-Rússlandi
neuters
Forsetakosningar fóru fram í Hvíta-Rússlandi í gær þar sem gjarnan er sagt að við völd sé síðasti einræðisherra Evrópu. Þar ræðir um Alexander Lukas-
henko, forseta. Stjórnarandstaða hefur vænt forsetann um svik og ólýræðisleg vinnubrögð og hefur verið tekið undir þær fullyrðingar á Vesturlöndum.
Forsetinn hefur m.a. komið í veg fyrir að andstæðingar hans fái aðgang að fjölmiðlum. Fullvíst er talið að Lukashenko fari með sigur af hólmi og boðaði
stjórnarandstaðan til mótmælafundar í höfuðborginni, Minsk, í gærkvöldi. Myndin sýnir Alexander Milinkevich, annan tveggja frambjóðenda stjórnarand-
stöðunnar, ásamt konu sinni Inna Kulei eftir að hafa greitt atkvæði í gær.
Vilja losna við ræður Chavez
Stjórnendur sjónvarpsstöðvar
einnar í Caracas, höfuðborgar
Venesúela, hafa farið þess á leit
við yfirvöld dómsmála að breytt
verði lögum sem gera fjölmiðlum í
einkaeigu skylt að varpa út ræðum
stjórnmálaleiðtoga.
Beiðni þessi er einkum sett fram
vegna ræðuhalda Hugo Chavez, for-
seta Venesúela, sem fly tur oft í viku
hverri langar ræður sem dreift er
á útvarps- og sjónvarpsrásum. Að
auki stjórnar forsetinn eigin sjón-
varps- og útvarpsþætti, sem ber
nafnið „Halló herra forseti", um
helgar sem er sex klukkustunda
langur. Honum dreifa ríkismiðlar
Venesúela.
Samkvæmt gildandi lögum geta
stjórnvöld skyldað önnur fjölmiðla-
fyrirtæki til að dreifa ræðum stjórn-
málamanna. Lögin gilda einnig um
varaforseta landsins og ráðherra í
ríkisstjórninni. Iðulega gerist það
að ráðamenn flytja ræður hver á
eftir öðrum og er þeim miðlað til al-
mennings líkt og lög kveða á um.
Framkvæmdastjóri IBC-sjón-
S?TkR
BÆJARLIND 1 - Sími 544 4510
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 10.00 - 20.00
Okkur vantar fólk til
starfa við afgreiðslustörf..
VERKSVIÐ
• Grænmetisborð og pantanir
• Vöruáfylling
• Kassi
Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf...
Upplýsingar veitir verslunarstjóri
Friðrik Sigþórsson Verslunarstjóri: Þín verslun Spar
Gsm: 897-0379 Sími: 544-4510 Frissi@sparverslun.is
~ ~
Reuters
varpsfyrirtækisins í Venesúela sagði
í viðtali að Chavez forseti misnotaði
aðstöðu sína til að halda uppi inn-
rætingu sem minnti á framgöngu
ráðamanna á Kúbu og í Zimbabwe.
„Þessi ræðuhöld þekkjast hvergi í
lýðræðisríkjum. Þetta er nokkuð
sem gerist aðeins í löndum þar sem
stjórnvöld eiga í miklum vanda,“
sagði framkvæmdastjórinn.