blaðið - 22.03.2006, Page 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 blaðið
í
Leiðrétting
Á forsíðu Blaðsins í gær birtist rangt
súlurit með frétt um þróun opin-
berra starfa. Úr súluritinu þar má
lesa að störfum á Suðurlandi hafi
fjölgað um tæplega 3.000. Hið rétta
er að störfum i Reykjavík hefur
fjölgað um þá tölu. Rétt súlurit er
birt hér að ofan.
Vilja leggja sérgreinaráðuneytin niður
Endurskilgreina þarf þjónustuhlut-
verk ríkisins og færa fleiri verkefni
yfir til einkaaðila samkæmt skýrslu
Háskólans í Reykjavík „Mikilvægi
þjónustugeirans fyrir íslenskan þjóð-
arbúskap." Skýrslan var unnin fyrir
Samtök verslun og þjónustu (SVÞ)
og kynnt á aðalfundi samtakanna á
Grand hótel í gær. Að mati samtak-
anna endurspeglar stjórnsýslan ekki
mikilvægi þjónustugeirans og vilja
þau að iðnaðar-, landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðuneytin verði lögð
niður og þess í stað stofnað sérstakt
atvinnuvegaráðuneyti.
Nauðsynlegt að efla starfsumhverfi
í skýrslu Háskólans i Reykjavík (HR)
kemur fram að árið 2004 voru um
57% starfa á vinnumarkaði í þjón-
ustugreinum og hefur þeim fjölgað
um 17% frá árinu 1998. Þetta er
meiri aukning en í öðrum greinum
atvinnulifsins. Þá kemur einnig
fram þegar tekið hefur verið tillit
til tekna af starfsemi íslenskra fyr-
irtækja erlendis að um helmingur
allra gjaldeyristekna íslensku þjóð-
arinnar kemur frá þjónustu. f skýrsl-
unni er líka vitnað í könnun sem
Gallup gerði fyrir SVÞ en þar telja
um 70% svarenda að starfsmenn
einkafyrirtækja veiti betri þjónustu
en starfsmenn opinberra fyrirtækja.
Á fundi SVÞ í gær kom fram
að samtökin telja að stjórnsýslan
taki ekki nógu mikið tillit til
greinarinnar. Af því tilefni
voru lagðar fram tillögur
til úrbóta í 29 liðum og
þær afhentar Valgerði
Sverrisdóttur, iðn-
aðar-og viðskiptaráð-
herra. f tillögunum
kemur fram að
nauðsynlegt sé að
efla starfsumhverfi
greinarinnar m.a.
með rannsóknum,
þróun og nýsköpun.
Þá viija samtökin að
stjórnvöld komi á fót
hvetjandi skattkerfi
sem hefur það mark-
mið að efla þjónustu-
fyrirtæki til að takast á
við erlenda samkeppni. 1
tillögunum er einnig lagt til
að ríkið færi fleiri verkefni yfir
til einkaaðila og að stofnað verði
eitt atvinnuvegaráðuneyti í stað
sérgreinaráðuneytanna sem nú eru
starfrækt.
sögn Sigurðar Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra SVÞ, er skortur á því
að stjórnsýslan endurspegli mikil-
vægi þjónustugreinanna. „Skýrsla
Háskólans í Reykjavík sýnir svo
ekki verður um villst að þjón-
ustugeirinn er gríðarlega
mikilvægur fyrir þjóð-
arbúskapinn. Við
teljum einkennilegt
að stjórnsýslan
skuli ekki endur-
spegfa það. Við
leggjum það
til að þessi
sérgreinaráðu-
neyti eins og
landbúnaðar-,
sjávarút-
vegs- og iðn-
aðarráðuneyti
verði lögð
niður og þess í
stað búið til eitt
atvinnuvegaráðu-
neyti. Þar væri
hægt að horfa á heild-
armyndina en ekki ein-
stakar atvinnugreinar."
Jm
Skógarhlið 18 • 105 Reykjavík • Simi 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjöróur sími: 510 9500
Hvenær
kom fyrsti
togarinn?
í nýútkomnu hefti tímaritsins
Þjóðmála er bent á það sem er
kallað „furðulegt axarskaft“ af
hálfu póstyfirvalda. Tilefnið
er útgáfa frímerkis frá árinu
2004 þar sem minnst er þess
að 100 ár voru liðin frá komu
fyrsta íslenska togarans, Coots.
Á frímerkinu stendur, „Fyrsti
íslenski togarinn á íslandi
- COOT 1904“ Á heimasíðu ís-
landspósts stendur ennfremur
að vélvæðing íslenska fiskiskipa-
flotans hafi hafist með Stanley
1902 og togaranum Coot 1904. Sá
sem greinina ritar í Þjóðmál, en
hann er ónafngreindur, bendir
á að Coot kom ekki til landsins
fyrr en þann 6. mars 1905.
Fyrsta sýning Víkurinnar
- Sjóminjafnsins í Reykjavík,
sem opnaði í fyrra, bar einmitt
yfirskriftina „Togarar í 100
ár“ og var hún sett upp í tilefni
þess að árið 2005 voru hundrað
ár liðin frá því að íslendingar
eignuðust og hófu útgerð togara
hér við land. Helgi M. Sigurðs-
son, sviðstjóri hjá safninu segir
það enda vissulega rétt að Coot
hafi komið hingað til lands árið
1905. Hins vegar hafi hann verið
keyptur árið 1904 og í því gæti
misræmið legið.
Tímadiásn
QtJJjtAy Q<*tt
Oufl 0% urwnuVir • Cnm^Kr • Rcytjavik • Stmi 5M 9260
Frá 45*895 kr.
KRESS
skrúfvélarf.gifs
Kvnn»n9arverð *warS
verð áður 16.900.-
v<?r$,ný
Ásborg
Smiðjuveqi 11,sími 5641212
„Það rænir enginn víkingunum"
Á ferðamálaþingi Hafnarfjarðar voru m.a. reifaðar hugmyndir um víkinga- ogþjóðsögugarð.
verði upp víkinga- og þjóðsögugarði
í Hafnarfirði. „Við höfum áhuga á
því að koma þarna að þjóðsögunum
okkar, álfum, tröllum og dvergum,
ásamt auðvitað víkingunum.“
Haukur segir fjölmargar skemmti-
legar hugmyndir hafa skotið upp koll-
inum á ferðamálaþinginu og hans
hugmynd sé ein þeirra. „Plássið
undir þennan garð veit ég ekkert
um,“ segir hann. „Það skiptir miklu
að mínu mati, verði hugmyndin að
verluleika, að garðurinn tengist mið-
bænum í Hafnarfirði. Það er mjög
skjólsæll og skemmtilegur staður.
Ég hef til dæmis komið því á fram-
færi að það verði fyllt aðeins upp í
höfnina og þar yrði hægt að koma
garðinum fyrir.“
0!
Heimsferðir
Bókaóu núna á '•
www.heimsferdir.is i
Ferðamálaþing Hafnarfjarðar
var haldið í gær undir yfir-
skriftinni „Er búið að ræna
víkingunum?" og erindi Hauks Hall-
dórssonar, forsvarsmanns Víkinga-
hringsins í Straumi bar sama heiti.
Þegar Haukur er inntur eftir því
A myndinni má mefial annara sjá Hauk Halldórsson, sem er annar frá vinstri og Lúðvík
Geirsson bæjarstjóra í Hafnarfirði á ferðamálaþingi á Fjörukránni í gær.
hvort búið sé að ræna víkingunum
svarar hann því til að svo sé alls
ekki. „Hver ætti svo sem að stela
þeim? Það stelur enginn víkingum.“
Haukur segir að á ferðamálaþing-
inu hafi menn verið að velta fyrir
sér framtíð ferðamála í Hafnarfirði.
Hann segir yfirskriftina vísa til
þeirrar umræðu sem upp spratt fyrir
nokkru þegar Keflvíkingar kynntu
áform sín um að koma á fót víkinga-
safni í bænum. Haukur segist full-
komlega sáttur við þau áform. „Það
getur enginn stolið víkingunum. Ef
að menn vilja gera þeim hátt undir
höfði á einhvern hátt, þá gera þeir
það. Það eina sem að menn fundu
að þeirri hugmynd var það að ríkið
er komið inn í þetta í Keflavík. Suð-
urnesjamenn eru fínir menn, það er
ekkert að þeim. Ef þeir vilja fara að
leika sér eitthvað með Smithsonian-
safninu þá er það bara hið besta mál.
Stundum er svona lagað bara kallað
samkeppni."
Víkingahringurinn í Straumi
Víkingahringurinn í Straumi, sem
Haukur er í forsvari fyrir, lagði til
á ferðamálaþinginu í gær að komið
frá 45.895 kr.
Netverð é mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjónmeð 2 börn,
2-11 ára, vikuferð í maí éða sept.
Diamant íbúðahótelið.
jJUUU
J
Heitasti staðurinn í fyrra.
Brottfarir í júní og ágúst
að seljast upp