blaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 29
blaðið MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006
DAGSKRÁI 37
Lego tengt rasisma
í gær héldu Sameinuðu þjóðirnar (SÞ)
baráttudag gegn rasisma. Af því til-
efni voru gerð veggspjöld þar sem lego-
kubbi var skartað undir fyrirsögninni
„Rasismi tekur á sig ýmsar myndir'.
Danska leikfangaframleiðandanum
er illa brugðið, sem og mörgum Dön-
um.
„Þetta er gjörsamlega úr takti og
hrein heimska,“ segir Claus Haagen
Jensen, formaður Mannréttindastofn-
unar Danmerkur. Hann lýkir þessu
við birtingar Jyllands-Posten á teikn-
ingunum af Múhammeð og vill að
málið verði rannsakað nánar. „Á
þetta nokkuð að vera lítil köld kveðja
til Danmerkur? Þetta er stórkostlega
misheppnað."
Vissu ekki betur
Lego er sldljanlega illa við tenginguna
og hyggst hafa samband við SÞ. „Það
skapar vandræði að sumir komi til
með að sjá veggspjaldið og hugsan-
lega tengja Lego við rasisma - jafnvel
halda að rasistar standi að baki fyrir-
tækinu," segir Charlotte Simonsen,
upplýsingafulltrúi Lego. Henni þykir
sérstaklega furðulegt að mistökin
hafi orðið þar sem Lego hefur unnið
með SÞ í herferðum til að vekja upp
málefni flóttamanna. Talsmaður Sam-
einuðu þjóðanna, José Luis Díaz, baðst
Veggspjaldið verður sjálfsagt ekki til
þess að lægja öldurnar í málefnum Dana
gagnvart múslimum. Hægt er að hlaða
því niður á kínversku, ensku, frönsku,
spænsku, rússnesku og arabísku.
afsökunar á notkuninni á legokubbn-
um þegar blaðamenn inntu eftir svör-
um. „Hönnuðir veggspjaldsins vissu
greinilega ekki að Lego er danskt
fyrirtæki,“ segir hann. Veggspjaldið
er finnanlegt á vefsíðu Mannréttinda-
fulltrúa Sameinuðu þjóðanna á ýms-
um tungumálum, m.a. arabísku.
Sjónarhorn
„Allt er fyndið. Svo lengi sem einhver annar
lendir íþvt.“
Will Rogers, bandarískur grínisti og skemmtikraftur (1879 - 1935)
Pennan dag...
...árið 1963 kom fyrsta plata Bítlanna út í Bretlandi. Please Please Me
gaf einungis tvær smáskífur af sér; Love Me Do/I Love You og Please
Please Me/Ask Me Why, sem seldust misvel. Sú fyrri aðallega vegna þess
að plötuverslun umboðsmanns sveitarinnar keypti helling af henni. Sú
síðari varð hins vegar fyrsta lag Bítlanna á topp breska vinsældalistans.
Sjónvarpið, 20.30 Tísku-
þrautir (4:12) (Project Runway)
Þáttaröð um unga fatahönnuði sem
keppa sín á milli og er einn sleginn
út í hverjum þætti. Sumar hönnun-
irnar eru frábærar en aðrar vægast
sagt hræðilegar. Kynnir í þáttunum
er fyrirsætan Heidi Klum og meðal
dómara er hönnuðurinn Michael
Kors.
Sirkus, 21.00 My Name
is Earl Earl reynir að bæta upp.
fyrir það að hafa brennt hlöðu til
kaldra kola þegar hann var yngri.
Smáglæpamaðurinn hefur unnið
ötullega að því að verða að betri
manni eftir að hann kynntist hug-
takinu karma. Litríkar persónur og
skemmtilegur söguþráður gerir þátt-
inn að einum af þeim bestu sem eru
í boði í íslensku sjónvarpi.
22.40 Nornir - Galdrar og
goðsagnir (1:3) (Hexen - Magie,
Mythen und die Wahrheit) Þýskur
heimildamyndaflokkur um nornir
og ofsóknir gegn þeim í aldanna rás.
Fyrsti þátturinn ber yfirskriftina
Nornaveisla. Þar er fjallað um sögu-
legar rætur trúarinnar á nornagald-
ur og leitað svara við spurningunni:
Hvað er norn?