blaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 19

blaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 19
Prófaðu nýja hárgreiðslu Það skiptir ekki máli hversu stutt hár þú ert með, það er alltaf faman að prófa nýja hárgreiðslu. sumrin er gott að nota hár- greiðslu sem er fljótleg í uppsetn- ingu, helst í hitanum og er flott. Fyrir sumarið ættu allir að fá sér klippingu þó það sé ekki til ann- ars en að særa af endunum til að iosna við klofna hárenda. Nokkur ráð um nýja hárgreiðslu • Ef þú ert með liðað hár er fallegt að móta það með hármótunarefnum og þannig má draga krullurnar betur fram eða draga úr þeim. í kringum andlitið getur verið fallegt að draga fram nokkra staka lokka. • Þær sem eru með slétt hár sem nær niður á kinnar geta segir notað efni til að lyfta hárinu. Til að prófa eitthvað nýtt er hægt er að lyfta hár- inu frá enninu og skreyta það með spennum eða blómum. Gott er að nota froðu eða annað hármótunar- efni til að lyfta rótinni og fá loft í hárið. Ljúkið hármótuninni með því að bursta yfir hárið. Þessi aðferð skilar meira lofti í hárið og gerir það náttúrulegra. • Mótaðu toppinn á hárinu og leiktu þér með hann. Það getur verið góð hugmynd að greiða topp- inn til hliðar og nota til þess hármót- unarefni. Einnig má nota sömu efni til að láta toppinn falla beint fram. Þetta gefur þér nýtt og spennandi útlit. • Fyrir þær sem eru með snar- hrokkið hár getur verið skemmti- legt að móta það og leika sér að því. Það má flétta hárið og setja það upp í tagl eða hnút. Fallegt er að nota litla fylgihluti í hárið til að lífga upp á það. Þetta útlit getur verið glæsi- legt eða sportlegt allt eftir þvi hvaða hlutir eru notaðir í hárið. • Lítið tagl getur verið gefið þér kynþokkafullt kvenlegt eða sport- legt útlit. Best er að nota teygju eða litríka spennu í hárið. Hárið helst betur í tagli ef það er ekki alveg hreint. • Fáðu þér strípur í hárið. Strípur koma vel út í stuttu hári sérstaklega ef þær eru óreglulegar. I stutt hár er fallegast að hafa strípurnar óreglu- legar og hafa þær í nokkrum litum. Fallegast er að hafa ljósustu tónana í hárendunum. RIFJADAG kaldur

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.