blaðið - 22.03.2006, Qupperneq 6
6TINNLENDAR FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 blaöiö
Tölvu-
ökuskirteini
Tíetotekniikan osaamisen
Eurooppaiaínen ykköstodistus
European Computer
Driving Licence
HVERS VECNA
TÖLVU-
Vinstri grænir
fagna brott-
för hersins
Stjórn Vinstri grænna í Reykja-
vík hvetur til markvissra að-
gerða til atvinnuuppbyggingar á
Suðurnesjum í kjölfar brottförs
hersins frá Miðnesheiði. Þetta
kemur fram í yfirlýsingu sem
stjórnin sendi frá sér í gær.
I yfirlýsingunni er fyrirhug-
aðri brottför hersins fagnað en
á sama tíma er varað við yfirvof-
andi samdrætti í atvinnustarf-
semi á svæðinu. Leggur stjórn
Vinstri grænna í Reykjavík það
til að mörkuð verði stefna sem
búi í haginn fyrir fjölbreytta
atvinnuuppbygginu á Suður-
nesjum en öllum hugmyndum
um stóriðjuframkvæmdir er
hafnað.
Aldrei fleiri rafræn framtöl
Áætlað er að um 91 til 92% allra
einstaklinga og lögaðila á landinu
skili skattframtölum sínum með raf-
rænum hætti í ár. Hlutfallið hefur
vaxið gríðarlega á undanförnum
árum eða allt frá árinu 1999 þegar
fyrst var opnað fyrir þessa þjónustu.
Almennur frestur til að skila inn
skattframtölum rann út í gær.
Einfaldar vinnu
Um 52 þúsund einstaklingar og
rúmlega eitt þúsund lögaðilar
höfðu skilað inn rafrænum skatt-
framtölum um miðjan daginn í gær
samkvæmt upplýsingum frá rikis-
skattstjóra. Alls eru um 240 þúsund
einstaklingar og um 27 þúsund lög-
aðilar á skrá.
I fyrra skiluðu um 208 þúsund
lögaðilar og einstaklingar inn skatt-
framtali sínu með rafrænum hætti
Almennur frestur til að skiia inn skattframtölum rann út í gær. Margir hafa þó orðið sér
út um frest samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra.
eða um 90% en búist er við að þeir
verði á bilinu 230 til 240 þúsund í
ár. Á undanförnum árum hafa raf-
TÖK tölvunám fyrir byrjendur
TÖK er skammstöfun á al-
þjóðlegu prófskírteini sem
vottar tölvukunnáttu þína og
vottar að þú sért tölvulæs.
Það þýðir að þú kunnir að
nýta þér flesta möguleika
tölvunnar og þeirra forrita sem
hvað mest eru notuð við
vinnu og daglegt líf.
TÖK-skírteini er mikill styrkur
á vinnumarkaðinum jafnt hér-
lendis sem erlendis.
r***V
★ EtDl ★
TÖK tölvunám er 90 stunda tölvunám hjá NTV sem
bæði er ætlað fyrir byrjendur og þá sem eitthvað
kunna. Námið og kennslugögnin miða að því að
gera nemendum kleift að taka þau 7 próf sem þarf til
að fá TÖK skírteini.
Námsgreinar:
Upplýsingatækni - Windows - Word - Excel
Access - PowerPoint - Póstur - Internetið
Morgunnámskeið:
Byrjar 19. apr. og lýkur 22. maí.
Kennt er mán., mið. og fös.
frá kl. 8:30-12:30
Kvöldnámskeið:
Byrjar 3. apr. og lýkur 29. maí.
Kennt er mán. og mið. frá 18 til 22
ntv
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
ræn skil aukist gríðarlega eða allt
frá árinu 1999 þegar boðið var upp
á þessa þjónustu í fyrsta skipti. Þá
skiluðu rétt tæplega 20 þúsund ein-
staklingar og lögaðilar inn rafrænu
skattframtali.
Að sögn Braga Haukssonar, deild-
arstjóra upplýsingatæknideildar
ríkisskattstjóra, standa vonir til
þess að um 92 til 93% einstaklinga
og lögaðila skili inn rafrænum skatt-
framtölum í ár. „Þetta fór mjög hratt
upp í 82% fyrir tveimur árum. Árið
2004 var hlutfallið 86% og í fyrra
um 90%. Það verður erfiðara að ná
inn síðustu prósentunum en ég yrði
afskaplega ánægður ef við kæmust
upp í 92 til 93%.“
Bragi segir kerfið hafa margs-
annað sig og þá séu rafræn framtöl
þægilegri og einfaldi alla úrvinnslu.
„Um 60% allra framtala sem skilað
er rafrænt fara í raun sjálfkrafa í
gegnum kerfið hjá okkur og kemur
mannshöndin þar hvergi nærri."
Háskólinn á
Akureyri fær
60 milljónir
Þónokkur styr hefur staðið um
málefni Háskólans á Akureyri upp
á síðkastið og hafa nemendur til
dæmis mótmælt því sem þeir köll-
uðu fjársvelti.
I gær bárust þær fréttir að rík-
isstjórnin hefði samþykkt tillögu
menntamálaráðherra um aukafjár-
veitingu til skólans að upphæð 60
milljóna króna. Rektor Háskólans,
Þorsteinn Gunnarsson, fagnar tíð-
indunum. 40 milljónir eru ætlaðar
til greiðslu á húsaleigu og með því
er að sögn Þorsteins komið að fullu
til móts við þann aukna kostnað
sem fylgir nýju rannsóknahúsi.
„Þá er háskólanum með þessari
fjárveitingu gert kleift að fjölga árs-
nemendum um 30-40 á árinu 2006,
umfram þá aukningu sem þegar
hefur verið heimiluð," segir í til-
kynningu frá rektor.
Virðisauka-
skattskyld
sala hækkuð
Lágmark virðisaukaskattskyldrar
sölu á ársgrundvelli mun hækka
upp í 500 þúsund krónur samkvæmt
frumvarpi sem Árni M. Mathiesen,
fjármálaráðherra, hefur lagt fram á
Alþingi.
Samkvæmt núgildandi lögum um
virðiskaukaskatt eru allir þeir sem
selja skattskylda vöru eða þjónustu
fyrir minna en 220 þúsund undan-
þegnir skattskyldu. Með frumvarpi
ráðherra mun lágmarkið því hækka
upp i 500 þúsund krónur.
UPPL YSINGAR OG SKRANING I SIMA 544 4500 OG A NTV.IS
Enskuskunám
í Hafnarfirði vomámskeið
fyrir fullorðna- áhersla á tal
í Englandi
Námsferðir fyrir
fullorðna. Allir geta
komið með 2 vikur í
júní og ágúst
Námsferð fyrir 12-16 ára
3 vikur í ágúst
Enska og golf fyrir hressar
konur 1 vika í september
Skráning í síma 8917576 og erlaara@isimnet.is
sjá nánar á www.enskafyriralla.is
SJONARHOLL
Gleraugnaverslun
Reykavíkurvegur 22
220 Hafnarfirði
565-5970
Líklega hlýlegasta
gleraugnaverslunin
norðan Alpafjalla
Þar sem gæðagleraugu kosta minna