blaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 21
í garninu og ver motturnar fyrir
óhreinindum og afrafmagnar þær.
Teppin voru höfð á gólfum tjalda
hirðingjanna og mataðist fólkið á
þeim og svaf. Hönnun teppanna og
mynsturgerð er mismunandi eftir
ættflokkum og tekur einnig mið af
upprunalegri notkun þeirra. Til að
mynda voru gerð sérstök stríðsteppi
og önnur sem notuð voru við veiðar.
Kóngar og drottningar höfðu einnig
sérstök mynstur og við andlát þeirra
voru unnin teppi sem sögðu lífssögu
þeirra.
Margvísleg mynstur
í austurlenskum vefnaði eru marg-
vísleg mynstur áberandi og hafa
þau mörg dýpri merkingu en halda
mætti. Sum bera táknmyndum ein-
Hnútafjöldi á fer-
metra segir til um
gœði teppanna:
Persi:
460.000 hnútar á m2
Khal Momdi:
380.000 hnútar á m2
Pakistan:
350.000 hnútar á m2
Afgani:
320.000 hnútar á m2
Kargy:
260.000 hnútar á m2
Beluch:
210.000 hnútar á m2
stakra þjóða eða þjóðarbrota vitni
en önnur hafa almenna skírskotun
til menningarsvæðisins í heild sinni.
Táknmál stjarna eru oft tengd eðli
guðs. Fimmhyrnd stjarna er tákn al-
heimsins og hin dularfulla uppskrift
af manni. Einn armur rís upp af
fjórum örmum eins og mannssálin
rífur sig frá ánauð líkamlegra hafta.
Hún er ljósið og stjarna morgunsins
sem inniheldur fimm dulmagnaða
krafta alheimsins, rætur hins kyngi-
magnaða hvíta galdurs.
í elstu heimildum um átta arma
stjörnu er hún nefnd stjarna Venusar
en hinir átta keilulaga armar eru
skírstkotun til móðurlífs Gula konu
Shamash, sem tilheyrðu guðatölu
hinnar fornu Mesópótamíu. Hún
merkir drifkraft og fullkomnun og
gersemar Múhameðs.
Lífsins tré er mikilvægt tákn í
næstum öllum menningarsamfé-
lögum. Með greinarnar sem teygjast
til himna og ræturnar djúpt í jörðu.
Tréið er samtímis í þremur heimum
og merkir samtengingu hins kven-
lega og karlmannlega, sameiningu
og frjóvgun.
Stórútsala
Ótmlegt verð á bráðarkjólum
BRÚÐARKJÓLAR
BRÚÐARMEYJUKJÓLAR
UNDIRFATNAÐUR OG
ALLIR FYLGIHLUTIR Á
ÓTRÚLEGU VERÐI
J
Við blásum á kerti fyrir hvert ár sem við höfum verið hér í Kópavogi. Þessi tími hefur einkennst af Ijúfri sambúð og
ánægjulegum samskiptum við viðskiptavini okkar og Kópavogsbúa alla. Við hlökkum til næstu 50 ára!
Starfsfólk SPK
L
N-ta,
vsbT %s>s'
itspk
50áriKói
50 ár 1 Kópavogi