blaðið - 22.03.2006, Side 27
blaðið MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006
nbií/ __ '
AFÞREYIMG I 35
Hvað er að gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur Knu á
gerast@bladid.net
10.30-Málþing
Staða og stefna í erlendum
tungumálum
Hátíðarsalur HÍ
12.15-Fyririestur
Kjartan Jónsson, Jón Tryggvi
Sveinsson og Sibeso Imbula:
Vinir Afríku
Oddi - stofa 202
12.20-Fyrirlestur
Inga Jóna Jónsdóttir: Hvað
einkennir fjárfestingar lítilla
og meðalstórra fyrirtækja í
starfsþjálfun...
Oddi - stofa 101
12.20-Fyrirlestur
Haukur Freyr Gylfason: Heilsu-
tengd lífsgæði barna með ein-
hverfu og foreldra þeirra
Oddi - stofa 201
14.00-Leikrit
Glæpir og góðverk
Iðnó
Miðasala á www.midi.is
17.00-Fyrirlestur
Richard Vine: Þrír meginþættir
alþjóðlegrar listsköpunar: Hinn
hefðbundni, hinn pólitíski og
hinn frumkveðni.
Listasafn Reykjavíkur - Fjöl-
notasalur Hafnarhússins
Ritstjóri listatímaritsins Art in
America er staddur hér á landi
í tilefni af opnun sýningar Guð-
jóns Bjarnasonar.
17.00 - HeimHdamynd
Laibach - Sundruð ríki Ameríku
GaHerí Humar eða frægð
Mynd eftir Saso Podgorsek frá
Slóveníu verður sýnd. Hún fyigir
Laibach á ferð um BNA fyrir
tveimur árum en stór hluti mynd-
arinnar fer í að greina bandarískt
samfélag, hugsunarhátt, hernað-
arhyggju, atburðina 11. septem-
ber o. fl.
„Of pólitísk" stóð í tölvupóstinum
frá RÚV þegar myndinni var
hafnað.
20.00-Leikrit
Pétur Gautur
Þjóðleikhúsið
Miðasala á www.midi.is
20.00 -Leikrit
Eldhús eftir máli
Þjóðleikhúsið
Miðasala á www.midi.is
22.00-Tónleikar
Hudson Wayne
Sirkus
Liður í Sheptone kvöldum Sirk-
uss. Ný lög í bland við gömul.
22.00 -Tónleikar
Laibach - í öllu sínu veldi
Midi.is | Nasa við Austurvöll.
Sennilega áhrifamesta band sem
enginn kannast við.
„HAM, Rammstein, Nine Inch Na-
ils og margir fleiri væru ekki til
ef Laibach hefði ekki rutt braut-
ina. Betri en Wagner, sætari en
Tito, Hitler og Bítlarnir til sam-
ans.“ - Óttarr Proppé, Ham/ Dr.
Spock.
■ Smáskifurýni
Pink-Stupid girl
í laginu gagnrýnir Pink útlits-
dýrkun og grunnhyggni sem veður
uppi í poppheiminum og sparkar í
rassinn á glamúrgellum eins og Pa-
ris Hilton. Metanaðarfullar stelpur
fá hins vegar verðskuldað klapp á
bakið. Rosalega gaman er að heyra
vinsæla söngkonu eins og Pink
skjóta svona harkalega á poppmenn-
inguna. Lagið er frábært að flestu
leyti og ég vona að það verði til þess
að fólk vakni og lykti af kaffinu.
★ ★★★
Craig David - Unbelieveble
Eina sem er ótrúlegt við lagið Un-
believeble er hvað það er hrikalega
væmið. Textinn inniheldur þessi
fleygu orð; „You complete me“ í text-
anum. Ég sem hélt að það væri bara
sagt í gríni ef maður vildi herma
eftir Dr. Evil í kvikmyndinni um
Austin Powers.
Lagið er þó vel útsett og þá sérstak-
lega strengirnir sem rétt fá að óma
fyrir aftan meginburðinn. Þegar
uppi er staðið er það samt allt of
sykurhjúpað, meira að segja fyrir
útvarpsstöðvar eins og Fm 957 og
KissFm.
★ ★
INXS - Afterglow
Ef INXS höfðu eitthvað eru þeir
löngu búnir að missa það. Það þýðir
ekkert að reyna að bjarga slöku
lagi með risastórum útsetningum,
strengjum og flottum hljóm. Eg lít
bara á það eins og þeir séu að monta
sig fyrir að þéna vel á sjónvarps-
þættinum sínum. Nýi söngvarinn
stendur sig ágætlega en lagið er ein-
faldlega allt of flatt og leiðinlegt til
að virka.
★
Embrace - Nature's Law
Það er ekki hægt að segja neitt virki-
lega slæmt um þetta lag en ekki
heldur neitt virkilega gott. Þegar ég
heyrði það fyrst fannst mér ég hafa
heyrt það mörgum sinnum áður,
enda hef ég hlustað smá á Coldplay,
sem hefur greinilega haft áhrif á
Embrace.
Nature’s Law er voðalega ljúft lag
með strengjum og píanói og öllu því
sem ætti að gera lög falleg. Lagið er
samt bara meðalmennska, alla leið.
★★-y
Madonna - Sorry
Maður veit aldrei hvar maður hefur
Madonnu. I þetta skipti bíður hún
eftir manni á dansgólfinu úr Sat-
urday Night Fever og syngur fyrir
mann fínasta diskó slagara.
Lagið er samið til að hreyfa rassa
og náði að hrista á mér höfðuðið
meðan ég sat fyrir framan skrif-
borðið mitt. Diskóið deyr ekki á
meðan Madonna gefur út plötur,
nema ef hún gefi út kántrí plötu
næst.
★★★^
atli@bladid.net
Herra Örlygur blótar vorið
Ný tónlistarhátíð vaknar til lífsins
með komu lóunnar. Hún verður
haldin í Reykjavík dagana 27.-30.
apríl og er í höndum sömu aðila og
IcelandAirwaves í október.
Hr. Örlygur í samvinnu við Ice-
landair stendur í fyrsta skipti fyrir
tónlistarhátíðinni Vorblót/Rite of
Spring.
Á Vorblótinu ægir saman ýmsum
tónlistarstefnum og straumum - allt
frá taktfastri sígauna tónlist frá
Belgrad (KAL) og íslensku balkan-
polka (Stórsveit Nix Noltes) til bras-
ilísks bossanova (Ife Tolentino) og
funheits salsa frá Bretlandi (Salsa
Celtica). Soul Jazz Records kemur
með klúbbinn 100% Dynamite sem
framreiðir fönkaða reggí, dub og
ska tónlist og Petter úr reggí sveit-
inni Hjálmum kynnir til leiks nýtt
sóló-verkefni á hátíðinni.
Mezzoforte mætir
Flís og Bogomil Font bjóða einnig
upp á nýjungar á Vorblótinu í formi
nýs samstarfsverkefnis sem þeir eru
að sjóða saman þessa dagana. Það
byggist á calypso tónlist frá Trinidad
og Tobago og klúrum íslenskum
textum og fréttaskýringum.
KK verður á blúsnótunum á Vor-
blótinu með hljómsveit sinni Blue
Truck.
Einn af stórviðburðum hátíðar-
Hljómsveitin KAL frá Serbíu er meflal þeirra sem koma á Vorblót Hr. Örlygs.
innar eru síðan tónleikar Mezzo-
forte sem hafa ekki spilað hérlendis
um nokkuð skeið. Þeir koma þó fun-
heitir úr ferðalagi um Indónesíu og
Mið-Evrópu.
Tónlistarhátíðin fer fram á NASA
við Austurvöll. Eldar Ástþórsson,
upplýsingafulltrúi Hr. Örlygs, lofar
að engar raðir verði á hátíðina en
mörgum er enn í minni gífurlega
langar raðir á Iceland Airwaves í
október. „Og við ætlum að taka fast
á þessu á Airwaves líka. Sjá til þess
að sagan endurtaki sig ekki.“
SÆKTU LAGIÐ!
Black Grease með Black Angels
Miðasala er þegar hafin erlendis í
gegnum sölukerfi Icelandair. Hér
landi mun hún hefjast miðvikudag-
inn 5. apríl.
Hún mun fara fram í verslunum
Skífunnar og BT og á netinu á Midi.
Miðaverð er 2.900 kr (auk 225 kr.
Miðagjalds) á hverja tónleika, en
einnig verður hægt að kaupa miða
sem gilda á alla hátíðina sem kostar
5.900 kr (auk 400 kr miðagjalds).
Framtalsaðstoð
Annast framtalsaðstoð
fyrir einstaklinga
með og án reksturs.
Annast einnig
frestbeiðnir.
Pantið tímanlega
í síma 511 2828 eða með
tölvupósti bergur@vortex.is
Skattaþjónustan ehf.
Bergur Guðnason hdl.
Suðurveri v/Stigahlíð
Þessir spiluðu á hinni risastóru South by South West tónlistarhátið og voru víst svakalegir. Þétt eyöi-
merkur-indlrokk eins furðulega og það kann að hljóma.
Blaðið treyitir þvíaö lesendur sínir kunni skil á lögumum höfundarrétt.
Bíldshöfða 5a
Óskum eftir duglegu og
kraftmiklu fólki til starfa
á Hlöllabátum
Nánari upplýsingar veitir Kolla
í síma 892 9846 eða á staðnum
eftir kl. 14.00.
VOR OG HEILSÁRSDRAGTIR
NÝ BLÚSSUSENDING
—VEphlIsfíniL v/Laugalæk • sími 553 3755