blaðið - 22.03.2006, Qupperneq 30
38IFÓLK
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 blaðið
EKKI ÚT AÐ
BORÐA
Smáborgarinn skilur ekkert í þeirri áráttu
stórborgara þessara lands að þurfa að
éta að heiman flesta daga vikunnar. Að
rjúka út við öll möguleg tækifæri til að
eyða stórfé í mat sem borinn er fram
af unglingum, nú eða útlendingum, og
borðaður innan um hóp af ókunnugu
fólki sem yfirleitt bæði reykir og hefur
hátt. Nei, smáborgarinn kýs þá mun frek-
ar að sjóða sér hafragraut, nú eða ýsubita
heima við og borða fyrirframan sjónvarp-
ið-helst einn.
Svínakjöt og
sveskjugrautur
Það gerðist dögunum að til borgarinnar
kom góður vinur smáborgarans. Sá hafði
samband daginn áður og ákveðið var að
hittast og borða saman. Smáborgarinn
ákvað að rétt væri að bjóða nú vini sínum
eitthvað sérstaklega gott og hélt þvt út í
Bónus til að kaupa eitthvað lostæti.
Fyrir valinu varð einhverskonar svína-
kjöt í súrsætri sósu frá árinu 1944 sem
starfsmaður hinnar ágætu verslunar
sagði Smáborgaranum að hægt væri að
hita í örbylgjuofni á skammri stundu.
Keyptir voru tveir skammtar. í eftirmat
keypti smáborgarinn síðan sveskjugraut
í fernu og rjóma til að hella útá.
Þegar vinurinn hringdi síðar um dag-
inn fékk hann greinargóða lýsingu á
þeim krásum sem hann ætti von á. Það
olli smáborgaranum hinsvegar miklum
vonbrigðum að vinurinn svaraði eftir
smá hik að hann væri með ofnæmi fyrir
sveskjum og gæti trúar sinnar vegna ekki
borðað svínakjöt. Smáborgarinn var ekki
viss um að hann tryði vini sínum fullkom-
lega.
Smáborgarinn féllst því á það með
semingl að hltta vin sinn á ónefndum
veitingastað í Reykjavík.
••
Ofvirkur starfsmaður
Þar komst hann að því að allar grunsemd-
ir um veitingastaði landsins voru á rökum
reistar. Hinn góði félagsskapur fór ofan
garðs og neðan sökum hávaða í öðrum
gestum, sem og stöðugra truflana starfs-
stúlku nokkurrar sem virtist vera í fullu
starfi við að koma á tveggja mínútna
fresti og spyrja gesti staðaríns hvernig
maturmn smakkaðist. Og hið hreinskilna
svar Smáborgarans um að hann væri nú
bara alls ekkert góður virtist koma henni
jafn mikið á óvart í hvert skipti sem hún
spurði. Að lokum kostaði maturinn tvö
þúsund kall, en fyrir þann pening er jú
hægt að kaupa fullt af bæði hafragrjón-
um og ýsubitum. Nei, þá er nú betra að
borða bara heima.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi.
Þýðir brottför hersins að innan-
landsflug færist til Keflavíkur?
„Mér finnst þetta auka líkurnar á því að innanlandsflugið fari til Keflavíkur.
En ég bendi á að það er í gangi samstarf um að kanna alla möguleika, á milli
borgar og samgönguráðuneytis. Það er sjálfsagt að menn leiði það samstarf
til lykta. Eigi að siður þá hef ég alltaf sagt að þetta sé kostur sem kanna þurfi
sérstaklega vel. Ég hef aldrei sagt að það sé einhver höfuðnauðsyn að innan-
landsflugið fari til Keflavíkur, en mér finnst það liggja svo beint við þegar við
horfumst í augu við kostnaðinn af rekstri tveggja flugvalla."
Spurningar hafa vaknað um framtíð Reykjavíkurflugvallar í Ijósi þess að Bandaríkjamenn hyggjast yfirgefa Keflavíkurflugvöll.
Hjartaknúsarinn Josh Hartnett segir ungar þotuliðssvk-
ísur eins og Paris Hilton og Lindsay Lohan hræðilegar
fyrirmyndir fyrir unga aðdáendur sína.
Hartnett óttast að þær fegri sjálfselsku og grunn-
hyggni í augum aðdáenda sinna sem vilji vera alveg
eins og þær.
„Það sem hræðir mig mest við poppmenningin-
una er að fólk er farið að halda að þeir eigi að líta
út eins og stjörnurnar," sagði Hartnett áhyggjufullur
í viðtali. „Vinkonur litlu systur minnar líta út eins og
Paris Hilton og Lindsay Lohan. Mér finnst það ekki vera
neitt til að sækjast eftir."
Yoko Longoria
Aðþrengda eiginkonan Eva Longoria finnur fyrir mikilli reiði frá aðdáend-
um San Antonio Spurs vegna þess að þeir eru hræddir um að hún trufli
frammistöðu kærastans, Tony Parker, á vellinum.
Longoria grínast með að fólk í San Antonio líti á hana sem Yoko Ono
liðsins og óttist að hún valdi sama skaða og Ono olli Sambandi Lennons
og McCartney.
„Ekki það að fólk sé að tala um þetta við mig, en ég hef fundið fyrir
pirringi í minn garð,“ sagði Longoria í útvarpsviðtali. „Aðdáendurnir
vonast til að Tony og félagar hans vinni meistaratitil og halda örugglega flest-
ir að ég spilli honum fyrir þeim.“
Limp Bizkit búin að vera
Bandaríska nýmóðins-málmsveitin Limp Bizkit er að öllum líkindum hætt ef marka má
gítarleikara sveitarinnar, Wes Borland.
Platan The Unquestionable Truth, sem kom út í fyrra, átti að koma sveitinni aftur í
fremstu röð en seldist illa og hafa meðlimir sveitarinnar varla talað saman í nokkra
mánuði.
„Við erum væntanlega hættir, þó enginn hafi sagt það,“ sagði Wes Borland í við-
tali við Mtv. „Allir eru að gera eitthvað á eigin spýtur og hafa ekki tíma fyrir Limp
Bizkit."
Borland sagði að það kæmi sér mikið á óvart ef ný plata kæmi einhvern tíma frá
sveitinni en að allt væri mögulegt. „Maður á aldrei að segja aldrei en mín framtíð er alla-
vega ekki með Limp Bizkit."
HEYRST HEFUR...
Bjöm Ingi
Hrafnsson
er greinilega að
færast í aukana,
enda styttist
mjög í borgar-
stjórnarkosning-
ar en fylgisaukning framsókn-
armanna í skoðanakönnunum
hefur látið á sér standa. Er at-
hyglisvert að fylgjast með því
hvernig hann biðlar nú mjög
til óánægðra krata í Samfylk-
ingunni. Á vefsíðu sinni (www.
bjorningi.is), minnir hann á
hvernig erkiframsóknarmaður-
inn Jónas Jónsson frá Hriflu
hafi einnig komið að stofn-
un Alþýðuflokksins og segir
gömlu kratana hálf landlausa
í Samfylkingunni þar sem fólk
úr Kvennalistanum og Alþýðu-
bandalaginu hafi öll tögl og
hagldir...
m
Ut er komin
ný bók eftir
verðlaunarithöf-
undinn Andra
Snæ Magnason
og ber hún nafnið
Draumalandið - sjálfshjálpar-
bók handa hræddri þjóð. Út-
gangspunktur bókarinnar er
stóriðjustefnan, sem höfundur
hefur megnustu vantrú á, en í
raun fjallar hún um framtíðar-
sýn hans á^ísland, rás tímans,
örlög og gaefusmíð. Útgáfa bók-
arinnar vaf kynnt með óvenju-
legum hæfti í Borgarleikhús-
inu í fyrrakvöld, því þar flutti
höfundurinn erindi um efni
bókarinnar. Skemmst er frá
því að segja að erindið var lík-
ara uppistandi en fyrirlestri og
fékk hann rífandi viðtökur fyr-
ir troðfullum sal, þó prédikun-
artónninn hafi orðið nokkuð
ágengur er á leið...
Undanfarna
m á n u ð i
hafa menn rætt
þá herstjórn-
arlist Geirs H.
Haardes, hins
nýja formanns
Sjálfstæðisflokksins, að forðast
sviðsljósið með öllum ráðum,
en samhliða hefur fylgi flokks
hans mjakast upp á við næsta
örugglega. Utanríkisráðherra
gat þó ekki verið í felum þegar
varnarmálin komust í uppnám
og tjáði sig um þau á fundi í Val-
höll um helgina. Þar viðhafði
hann hins vegar ummæli, sem
mörgum þykja benda til þess
að hann hefði átt að halda sér
til hlés lengur og ekki bera vott
um mikla virðingu fyrir kon-
um:
„Maður fxr ekki alltafþað sem maður vill.
Ogþáverðurmaðurað vinna úr þvlsem
að maðurþá fxr I staðinn. Maður getur
ekki alltaffarið með sxtustu stelpuna
heim afballinu en stundum kannski
eitthvað sem gerir sama gagn."
Mitt í orrrahríðinni á Al-
þingi hófst umræða
um laxveiðar og tók hún ekki
minni tíma en önnur mál, enda
margir sérfræðingar í þeirri
Tist. Enginn þó fremri en ofur-
bloggarinn og Iíffræðingurinn
Össur Skarphéðinsson. Um
þetta ritar hann á síðu sinni
(ossur.hexia.net) og getur þess
að einhver hafi haldið því fram
að ekki væri hægt að veiða lax-
inn á stöng. össur segist ekki
hafa upplýst það í umræðunni,
sem hann gerir í bloggi sínu að
hann hefði sjálfur aðra reynslu.
„Éghafði nefnikga gleymt að fá leyfi fyrir
veiðinm I einaskiptið stm ég hefveitt lax
ástöngljökulfljóti-ogþaðervlstekki
stjómmálamanni til framdráttar að upp-
lýsa á Alþingi áragamlan veiðtþjófnaðá
laxatetri. ín hann bragðaðist fjandi vel!“