blaðið - 04.04.2006, Blaðsíða 10
ÞRIÐJKDAGUR 4. APRÍL 2006 blaðiö
Ögurhvarf
Kvöldsprengja
í kvöld frá 19-21 bjóðum við
þessa áltröppu með 50% afslætti
Gildir adeins í verslun okkar Ögurhvarfi
meðan birgðir endast.
Altrappa
5 þrepa
5079091
Víðidalur
Ný verslun
jfr, Ögurhvarfi
Atta til níu....
mánudaga - föstudaga 8-21
laugardaga 9-18
sunnudaga 10-18
HUSASMIÐJAN
...ekkert mal
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
Reuters
Fajr-3 eldflaug skotið á loft. íranir segjast hafa breytt eldflauginni þannig að hún sjáist ekki á radar og geti borið fjölda af sprengjuoddum.
íranir auglýsa vopnasafn sitt
Stjórnvöld í Teheran segjast ráða yfir hraðskreiðasta tundurskeyti
heims og skammdrœgum eldflaugum sem ekki sjást á radar.
íranski herinn stendur nú fyrir um-
svifamiklum heræfingum í Persa-
flóa. Heræfingarnar hafa staðið yfir
síðan á föstudag og segja hermála-
yfirvöld að þær séu haldnar til að
prófa ný vopn sem þeir hafa verið að
þróa undanfarin ár. Vesturlönd fylgj-
ast grannt með gangi mála.
Á sunnudag lýstu írönsk hermála-
yfirvöld því yfir að tilraunir með
nýtt háþróað tundurskeyti hafi gef-
ist vel. Skeytið á að vera hið hrað-
skreiðasta sem þróað hefur verið
og mun verða beint gegn kafbátum
og herskipum í átökum. Einnig var
sagt frá því á föstudag að tilraunir
með nýja útfærslu á Fajr-3 eldflaug,
sem ekki sést á radar og getur að
sögn borið marga sprengjuodda,
lofi góðu. Heræfingarnar, sem fara
fram undir nafninu „Spámaðurinn
mikli“ standa fram til fimmtudags.
Talsmenn íranska hersins hafa lýst
því yfir að fleiri nýjungar í hernaði
verði kynntar á næstu dögum.
Skýr skilaboð til Vesturlanda
Æfingarnar eru haldnar í kjölfar
þess að öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna veitti Irönum þrjátíu daga frest
á dögunum til þess að láta af auðgun
úrans. Stjórnvöld í Teheran hafa lýst
því yfir að kjarnorkuáætlun þeirra
miðist eingöngu við friðsamlega nýt-
ingu ogþau muni þar af leiðandi ekki
láta undan þrýstingi öryggisráðsins.
Þessi einarða afstaða Irana hefur
aukið mjög á spennu milli þeirra og
Vesturlanda. Með heræfingunum
er talið að stjórnvöld í Teheran séu
að senda Bandaríkjamönnum, Isra-
elum og aðildarríkjum Evrópusam-
bandsins skilaboð um að her þeirra
hafi raunverulega getu til að raska
umferð olíuflutningaskipa um Persa-
flóa og að sú umferð verði stöðvuð
grípi Bandaríkin til hernaðarað-
gerða gegn Irönum. Röskun á um-
ferð olíuflutningaskipa myndi hafa
afar neikvæð áhrif á þróun olíuverðs
í heiminum og víðtækar afleiðingar
fyrir efnahags Vesturlanda.
Efasemdir um hernaðargetu írana
Þrátt fyrir yfirlýsingar íranska hers-
ins um miklar framfarir í vopnagerð
telja margir sérfræðingar að heræf-
ingarnar séu fyrst og fremst áróðurs-
bragð. Þeir benda á að Iranir standa
ekki framarlega í vopnaþróun og
telja yfirlýsingarnar um hið nýja
tundurskeyti líklega vera orðum
auknar. Staðhæfingar um að þau
séu hraðskreiðust í heiminum þýði
að þeir séu komnir fram úr Rússum
í þróun slíkra tundurskeyta. Fátt
bendir til þess að sú sé raunin.
Kínverskur heiðursvörður
Saparmurat Niyazov, forseti Túrkmenistan, og Hu Jintao, forseti Kína, viröa fyrir sér heiðursvörð í Peking. Sex daga opinber heimsókn
Niyazov til Kína hófst í gær.
Kínverjar hafa mikinn áhuga á að efla tvíhliða tengsl við Túrkmenistan sem bæði er auðugt af gasi og oliu. Ein af megináherslum kín-
verskrar utanríkisstefnu undanfarin ár hefur falist í þvi að tryggja aðgengi að orku.