blaðið - 04.04.2006, Blaðsíða 16
16 I DEIGLAN
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2006 blaöiö
fei mg
High Peak Sherpa
55+10
Góður göngupoki, stillanlegt
bak og stækkanlegt aðalhólf.
Fermingartllboð
QmddO kr.
Verð áður 10.990 kr.
Einnig til 65+10
Fermingartilboð 9.990 kr.
SMARALIND SIMI 545 1550 o GLÆSIBÆ SIMI 545 1500 o KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
UTILIF
Jeppa- og vélsleðagalli
Jakki og buxur á 21.900 kr.
Gallinn er úr slitsterku næloni
og er allur fóðraður að
með hlýju vatteruðu
og auk þess er rakalag.
Allir saumar límdir.
FYRIR PASKA
Scotchlite -
endurskin
á baki.
Vindlok er við
alla rennilása.
Thinsulate - flis
frágangur á hettu og
strekkingar til að loka
i miklu óveðri.
Mittisbelti
Hægt er að strekkja
með frönskum
rennilás um miðjuna
sem kemur í veg
fyrir vind upp
undir jakkann
eða ofan í
buxurnar.
Buxurnar eru með
axlaböndum sem
eru hneppt með
leðurbótum við
buxurnar.
Cordura -
slitefni á rassi
og hnjám.
Gjöf fyrir þann sem þér er hlýtt til.
Kletthálsi 3 I 110 Reykjavlk I Slmi 540 4900 I arctictrucks.ls
/ARCTIC
TRUCKS
auglysingar@vbl.is
blaði&=
Allar birtingamyndir
ástarinnar í Salnum
Ólafur Rúnarsson, tenór, segist munu taka fyrir allan til-
finningaskalann á tónleikum sínum í Salnum t kvöld.
Ólafur Rúnarsson lærði söng í
Glasgow í Skotlandi en hefur verið
búsettur i Englandi undanfarin ár
þar sem hann starfar sem söngv-
ari. Hann snýr nú heim úr útlegð,
að eigin sögn, til að halda tónleika
í Salnum í kvöld. „Ég ætla að flytja
þrjá söngflokka. Um er að ræða
Ástir skáldsins eftir Schumann, On
This Island eftir Britten og þá verður
frumfluttur nýr flokkur eftir Atla
Heimi Sveinsson við kvæði Jónasar
Hallgrímssonar,“ segir Ólafur.
Ólafur hóf ferilinn sem barítón-
söngvari en eftir að hann fór að læra
úti hefur hann sungið sem tenór.
„Það er hark að ætla að hafa lifibrauð
af þessu. Ég er tiltölulega nýútskrif-
aður og búinn að vera að reyna að
koma mér á framfæri,“ segir Ólafur
sem hefur átt góðu gengi að fagna
og er um þessar mundir að fara að
leika sitt þriðja aðalhlutverk í óperu
á þremur árum.
Tekur qríðarlega á
Með ðlafi á tónleikunum verður
píanóleikarinn Peter Ford en þeir
hafa starfað náið saman undanfarið.
„Peter er píanóleikari, fiðluleikari og
hljómsveitarstjóri. Þetta er ungur 25
ára strákur og mikill snillingur sem
hefur verið gaman að vinna með,“
segir Ólafur.
Hann kveðst geta lofað góðri
skemmtun og segir að ástin muni
ráða ríkjum í Salnum í kvöld. „Þetta
verða miklir ástartónleikar enda
mikið af ástarlögum. On This Island
er hálfgert ástarljóð til íslands. W.H.
Auden, sem var mikill Islandsvinur,
samdi textana og er talið að hann
hafi gert það hér á íslandi eða a.m.k.
undir miklum áhrifum frá landinu.
Ég sem íslendingur finn margar
myndir og samsvaranir við fsland í
þessum ljóðum,“ segir Ólafur.
„Ástir skáldsins er Kilimanajaroið
af ljóðaflokkum. Það er almennt tal-
inn vera heilsteyptasti ljóðaflokkur
sem hefur verið skrifaður. Þeir eru
til stærri og lengri en þessi tekur
hins vegar allan skalann. Þarna
er farið í allar birtingamyndir ást-
arinnar, allt frá hatri upp í algjöra
sælu.“ Aðspurður hvort ekki taki á
að flytja svona tilfinningaþrungin
lög segir hann svo vera. „Þetta verða
fullir tónleikar, rúmlega hálftími
fyrir og eftir hlé, og maður er alveg
gjörsamlega búinn eftir á enda farið
í allan tilfinningaskalann," segir Ól-
afur að lokum.
bjorn@bladid.net
Efnisskrá
tónleikanna:
Benjamin Britten
- On This Island
1. Let the florid music praise! 2. Now
the leaves are falling fast 3. Seasc-
ape 4. Nocturne 5. As it is, plenty
Atli Heimir Sveinsson
- Ástarljóð Jónasar
1. La Belle 2. Ferðalok 3. Söknuður
4. Stökur
Vorljóð Jónasar, Atla og Heine
1. Vorið góða, grænt og hlýtt
2. Ómuralfagur
Robert Schumann
- Ást skáldsins (Dichterliebe)
1. Im wunderschönen Monat Mai
2. Aus meinen Tranen sprie(5en3.
Die Rose, die Lilie, dieTaube, die
Sonne 4. Wenn ich in deine Augen
seh 5. Ich will meine Seele tauchen
6. Im Rhein, im heiligen Strome 7.
Ich grolle nicht 8. Und wiiBten's die
Blumen, die kleinen 9. Das ist ein
Flöten und Geigen 10. Hör ich das
Liedchen klingen 11. Ein Jiingling
liebt ein Madchen 12. Am leuchten-
den Sommermorgen 13. Ich hab im
Traum geweinet 14. Allnáchtlich im
Traume seh ich dich 15. Aus alten
Márchen winkt es 16. Die alten,
bösen Lieder
Sœringar hjá Sögufélaginu
.Samtíningur um sær-
ingar“ er yfirskriftin á
fyrirlestri Einars G. Pét-
urssonar, vísindamanns
hjá Stofnun Árna Magnús-
sonar, sem fluttur verður
í húsi Sögufélagsins við Fi-
schersund í kvöld. Erindi
Einars verður flutt að
loknum aðalfundi Félags
þjóðfræðinga á íslandi.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 20:30
og er opinn öllum.
„Vegir særinganna eru órannsakan-
legir, aldur þeirra einnig. Særingar
voru bannaðar eftir siða-
skiptin og tíðkuðust ekki
mikið hér á landi. Það
hefur hins vegar verið
meira um þetta erlendis.
Þær eiga sér a.m.k. minni
sögu hér á landi en annars
staðar.“ segir Einar. í er-
indi sínu mun hann stikla
á stóru og skoða særingar
og skyld efni í víðu sam-
hengi. Meðal annars mun hann tala
um hvernig viðhorfið til einfaldra
særinga breyttist i kringum siða-
skipti og við upphaf galdraaldar.
BlaðiÖ/Steinar Hugi
Einar G. Pétursson