blaðið - 04.04.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 04.04.2006, Blaðsíða 6
0 I IMÍULlillMi IKLÍ ilR MPDRWIH MMRIff ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2006 blaAiö . . - * • '3- * Svignaskarði Skorradal 11 hús 1 hús lllugastöðum Öxarfírði 2 hús 1 hús Brekkuskógi Úthlíð 2 hús 4 hús Húsafelli 3 hús Einarsstöðum 3 hús Flúðum 1 hús Flókalundi Akureyri 2 hús 6 íbúðir Vestmannaeyjum 1 íbúð Kirkjubæjarklaustri 2 hús Ölfusborgum 9 hús Umsóknareyðublöð Hægt er að nálgast eyðublöð og nánari upplýsingar á www.efling.is og á skrifstofu félagsins að Sætúni 1,105 Reykjavík, fyrir 7. apríl nk. Ekki ertekið á móti umsóknum símleiðis. Umsóknarfrestur er til 7. apríl. - Úthlutun mun liggja fyrir 19. apríl. Gunnar Smári Egilsson og Sven Dam Stýrir útgáfu fríblaðs Sven Dam hefur verið skipaður forstjóri og varastjórnarfor- maður 365 Media Scandinavia A/S sem er félag í eigu Dags- brúnar hf. Þetta kemur fram í til- kynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í gær. Samkvæmt tilkynningunni mun Sven hafa yfirumsjón með stofnun daglegs fríblaðs í Dan- mörku en Dagsbrún hf. hefur stefnt leynt og ljóst að útgáfu fríblaðs þar í landi um nokkurt skeið. Sven Dam hefur starfað í fjöl- miðlum í fjöldamörg ár og hefur m.a. reynslu af stjórnun fyrir- tækja bæði á dönskum markaði og alþjóðlegum mörkuðum. Óttast áhrif hlut afélagsvæðingar RÚV á réttarstöðu starfsmanna Formaður Rafiðnarsambandsins telur eðlilegra að RÚV verði sjálfseignarstofnun en hlutafélag og vill að réttarstöðu starfsfólksins verði gefinn meiri gaumur í umrœðunni. réttindi, veikindarétt, orlofsrétt og ámóta, en hann óttast að menn hafi ekki alltaf hugsað þau til enda eða hver áhrif rekstarformsbreytinga geti verið fyrir starfsmenn. „Ef af því verður að Orkuveita Reykja- víkur (OR) kaupi grunnnetið sjá menn í hendi sér að það mun hafa einhver áhrif á stöðu þeirra 300 tæknimanna í Rafiðnaðarsamband- inu, sem flytjast þá frá Símanum til OR,“ segir Guðmundur. Hann telur þó ekki að menn þurfi að hafa áhyggjur af sams konar líf- eyrisskerðingu, eins og sumir hafa nefnt að bankamenn hafi þurft að taka á sig við einkavæðingu bank- anna. „Eftir síðustu kjarasamninga á nú ekki að vera hætta á því. Við fengum góða aðstoð Davíðs í því, sem samdi kannski aðeins af sér.“ Guðmundur telur að menn hafi farið fram úr sér við að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag. „Það form hentar vafalaust ýmsum fyrir- tækjum á borð við Símann, ÁT VR og orkufyrirtækin, enda eru þau með eiginlegar sjálfsaflatekjur. RÚV er á hinn bóginn fyrst og fremst rekið fyrir skattfé og það gilda einfaldlega aðrar leikreglur þar um,“ segir Guð- mundur Gunnarsson, formaður Raf- iðnarsambands íslands. Guðmundur Gunnarsson, formaður rafiðnaðarsambandsins, telur að hlutafélagsvæðing Ríkisútvarpsins (RÚV) orki afar tvímælis og vekur athygli á að réttarstaða starfsmanna sé í mikilli óvissu, verði sú leið farin. Telur hann eðlilegra og affara- sælla að breyta RÚV í sjálfseignar- stofnun, sem sé þekkt rekstarform í almannaþjónustu. „Það liggur ekkert fyrir um það að núverandi starfsmenn RÚV verði fyrir kjaraskerðingu ef stofnuninni verður breytt í hlutafélag, en það eykur óvissuna, því réttarstaða fólks breytist óhjákvæmilega þegar það hættir að vera opinberir starfs- menn og verður starfsfólk á hinum almenna vinnumarkaði," segir Guðmundur. „Við þekkjum að það hefur oft reynst erfitt að útfæra svona breyt- ingar þegar verið er að flytja fólk til með rekstrarformsbreytingum,“ bætir hann við og minnir á reynsl- una af Símanum. „Nú er verið að búta hann niður og það veit í sjálfu sér enginn hvernig það allt fer eða hvaða áhrif það kemur að lokum til með að hafa á kjör eða aðra réttar- Guðmundur Gunnarsson, formaður Raf- iðnarsambands Islands. stöðu fólks. Oft er það afar erfitt - ef ekki ómögulegt - að meta þau áhrif til hlítar." Hefur ekki áhyggjur af skertum lífeyri Guðmundur segir að þau atriði, sem einkum skipti máli í þessu samhengi varði biðlaunarétt, lífeyrissjóðs- Uthlutun sumarhúsa árið 2006 gSTETJMRFELA C Orlofsnefnd Eflingar- stéttarfélags minnir félagsmenn á að síðasti skiladagur vegna umsókna í orlofshús félagsins sumarið 2006 er 7. apríl nk. Vildarþjónusta fyrirtækja Við leggjum áherslu á langtímasamband og sérhæfðar lausnir sem taka i mið af sérstökum áðstæðum og starfsumhverfi viðskiptavina okkar. SPH - (yrirþlg og fyrirtæklS! 550 2000 | www.sph.is Tæknival rekið með tapi Tæknival tapaði 164 milljónum króna á síðasta ári samkvæmt árs- uppgjöri félagsins sem birt var í gær. Árið 2004 hagnaðist félagið hins vegar um 607 milljónir og er því um töluverðan viðsnúning að ræða. Samkvæmt ársuppgjörinu voru rekstrartekjur 1.069 milljónir á sið- asta ári en á sama tíma voru rekstr- argjöld án afskrifta 1.174 milljónir. Rekstrartap fyrirtækisins nam því 105 milljónum króna. Þá var eigið fé félagsins í lok árs 2005 neikvætt um 80 milljónir og heildarskuldir 693 milljónir. Eignarhaldsfélagið Byr ehf. keypti allt hlutafé í Tæknival í byrjun marsmánaðar á þessu ári. I kjölfarið var rekstur verslunar- sviðs Tæknivals í Skeifunni seldur og mun fyrirtækið framvegis leggja áherslu á fyrirtækja- og hugbúnaðarþjónustu. Orlofshús á eftirtöiduni stöðum eru í boði: SJONARHOLL Gleraugnaverslun Reykavíkurvegur 22 220 Hafnarfirði 565-5970 Líklega hlýlegasta gleraugnaverslunin norðan Alpafjalla

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.