blaðið - 11.04.2006, Qupperneq 1
■ FJÖLSKYLDAN
Það er kerfið sem
er að klikka ekki
krakkamir
Viðtal við Hafstein Karlsson,
skólastjóra í Salaskóla.
| SÍÐA 20
| SÍÐA 12
■ NEYTENDUR
Hvað kosta
páskaeggin?
Töluverður
verðmunur
á milli verslana
Lýtalækningar
á gráu svæði?
Kristján Guðjónsson fram-
kvæmdastjóri sjúkratrygginga-
sviðs hjá Tryggingastofnun
segir lagabreytingar um niður-
greiðslur vegna lýtaaðgerða frá
árinu 2001 gera allt vinnuferli í
kringum slíkar aðgerðir erfiðara,
bæði fyrir Tryggingastofnun
og almenning. Með nýju reglu-
gerðinni er ekki gert ráð fyrir
undantekningum, jafnvel þó
viðkomandi útlitsgallar hamli
lífsgæðum fólks til muna. Dæmi
er um að einstaklingar hafi kært
úrskurði Tryggingastofnunar til
úrskuraðnefndar um almanna-
tryggingar og nefndin dæmdi
þessum einstaklingum í hag.
Kristján segir þetta einfalda
sönnun þess að nýja reglugerðin
sé ekki að virka sem skyldi.
Nánar er fjallað um þetta mál á
blaðsíðu 24.
íslensk gildi í
samræmi við
þau evrópsku
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, segir
í samtali við Blaðið að íslend-
ingar eigi mun meiri samleið
með Evrópubúum en Bandaríkj-
unum. Öryggissamfélag okkar
eigum við því að eiga með Evr-
ópu en ekki Bandaríkjunum.
Ingibjörg gagnrýnir ríkisstjórn-
ina fyrir vinnubrögð hennar i
þeirri stöðu sem komin er upp
í sambandi við varnarsamning-
inn við Bandaríkjamenn. Hún
segir að Samfylkingin hefði tekið
öðuvísi á málinu hefði flokkur-
inn verið við stjórnvölinn og að
málið hefði strax átt að koma
til umræðu á vettvangi Atlants-
hafsbandalagsins. Ingibjörgu
finnst að sama skapi ótækt að ís-
lensk stjórnvöld leyfi Bandaríkja-
mönnum að taka frumkvæði í
viðræðunum um varnarsamn-
inginn og líkir hún því við að
verktakinn ákveði hvað þurfi að
gera án þess að verkkaupinn fái
neitt um það að segja.
Ingibjörg gefur ennfremur
lítið fyrir ummæli Einars K. Guð-
finnssonar í Blaðinu í gær í þá
veru að hugmyndir Ingibjargar í
varnarmálum væru óraunhæfar.
„ Þetta er bara vörn manns sem er
kominn út í horn. Samfylkingin
hefur þvert á móti sýnt mikið
frumkvæði í þessari öryggis-
málaumræðu og almennt þegar
kemur að utanríkismálum. Það
er Sjálfstæðisflokkurinn sem
hefur vanrækt þessi mál og
áttar sig ekki á þvi að heimur-
inn er allur á hreyfmgu, nema
hann,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
Nánar á blaðsíðu 6.
Reuters
Leirker til sölu
Indversk kona raðar leirkerjum í
verslun við þjóðveginn í nágrenni
borgarinnar Chandigarh á norður
Indlandi. Leirker sem þessi eiga sér
langa hefð í menningarsögunni og
hafa í þúsundir ára verið notuð til
þess að geyma mat og drykk víðast
í byggðu bóli. Ekki er vitað hvaðan
tæknin er upprunnin en áður en
hjólið kom til sögunnar voru leirker
sett saman með því að rúlla leirnum
í lengjur og hringja svo lengjurnar
saman eins og snák. Þá var leirinn
klappaður og svo brenndur. Með
tilkomu hjólsins varð leirkerasmíð
öllu auðveldari en hún skipti miklu
máli fyrir geymslu matvæla. Þrátt
fyrir að flest menningarsamfélög
hafi framleitt keimlík leirker eru
skreytingar þeirra víða um heim-
inn afar ólíkar, einkennandi fyrir
margvíslega menningarheima.
Mikill meirihluti sóknarbarna mót-
mælir vali á nýjum sóknarpresti
Um 75% sóknarbarna, sextán ára og eldri, í Keflavíkurprestakalli hafa skrifað undir lista til að mótmæla ákvörðun
valnefndar sóknarinnar. Listinn var sendur kirkjumálaráðherra í gœr, en lokaákvörðun er í hans höndum
Rúmlega 4 þúsund manns í Keflavík-
urprestakalli höfðu skrifaði undir
stuðningslista með séra Sigfúsi
B. Ingvasyni í gær. Mikil óánægja
er með niðurstöðu meirihluta val-
nefndar í Keflavíkursókn á vali
sóknarprests. Listinn var sendur
biskupi íslands og dóms- og kirkju-
málaráðherra í gær. Er þess krafist
að ráðherra skipi séra Sigfús í stöðu
sóknarprests en valnefnd hafði
mælt með séra Skúla Sigurði Ólafs-
syni í starfið. Ráðherra hefur aldrei
áður sniðgengið tilmæli valnefndar
í svona tilvikum.
Féll í grýttan jarðveg
Eins og greint var frá í Blaðinu í gær
ríkir töluverð óánægja meðal sókn-
arbarna í Keflavíkurprestakalli með
niðurstöðu meirihluta valnefndar
um val á sóknarpresti. Tíu umsækj-
endur sóttu um embætti sóknar-
prests í Keflavíkurprestakalli þar á
meðal séra Skúli Sigurður Ólafsson,
sóknarprestur í Isafjarðarpresta-
kalli, og séra Sigfús B. Ingvason, sem
starfað hefur sem prestur í Keflavík-
urprestakalli í fjöldamörg ár.
Valnefnd ákvað í síðustu viku að
mæla með séra Skúla í embættið og
hefur sú ákvörðun fallið í grýttan
jarðveg hjá stórum hluta sóknar-
barna. Telja þau eðlilegra að séra Sig-
fús fái embættið sökum margra ára
starfs innan sóknarinnar.
Á föstudag var komið upp undir-
skriftarlista á Netinu til að mótmæla
ákvörðun valnefndar sem og hvetja
til þess að séra Sigfús verði skipaður
í embættið. í gær höfðu rúmlega
fjögur þúsund manns skráð sig á list-
ann eða vel yfir 75% sóknarbarna 16
ára og eldri.
Listinn var sendur biskupi
íslands og dóms- og kirkjumála-
ráðherra í gær en ráðherra mun
skipa í embættið frá og með 1. maí
næstkomandi.
Ráðherra ekki skuldbundinn
Að sögn Steinunnar Arnþrúðar
Björnsdóttur.verkefnisstjórahjábisk-
upsstofu, er ákvörðun valnefndar að-
eins bindandi fyrir ráðherra þegar
hún er einróma. í þessu tilviki hafi
meirihluti ráðið úrslitum og því sé
ráðherra ekki skuldbundinn til að
fara eftir tilmælum hennar.
Steinunn bendir þó á að engin for-
dæmi séu fyrir þvi að ráðherra hafi
farið gegn tilmælum valnefndar.
„Svipaður ágreiningur hefur tvisvar
sinnum áður átt sér stað eftir að
ný lög um val á sóknarpresti tóku
gildi árið 1998. 1 bæði skiptin fór
ráðherra eftir tilmælum meirihluta
valnefndar."
Þá segir Steinunn að samkvæmt
gömlu lögunum sem voru í gildi
fyrir 1998 hafi sóknarbörn geta
knúið fram prestkosningar. Þau
ákvæði séu hins vegar fallin úr gildi
og því sé málið núna algerlega í
höndum ráðherra. „Þegar ekki næst
einróma samstaða í valnefnd þá er
málinu vísað til biskups sem síðan
gerir tillögu til ráðherra. Það er
biskup búinn að gera og því er málið
algerlega í höndum ráðherra."
Blaðið/Steinar Hugi
Fögur er hlíóin
Maður á gangi í Elliðarárdag horfir upp í hlíðina og virðir fyrir sér vaxandi byggð.