blaðið - 11.04.2006, Side 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 blaðiö
blaðiðflai
Baejarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
íbúðalán auk-
ast til muna
fbúðalánasjóður lánaði alls um
4,5 milljarða króna í síðasta mán-
uði, sem er tæplega 50% hærri
upphæð en mánuðinn áður.
Þar af námu leiguíbúðalán um
einum milljarði króna. Þetta
kemur fram í mánaðarskýrslu
sjóðsins sem birt var í gær.
„Ný útlán á fýrsta ársfjórðungi
námu því alls um 10,1 milljarði
króna sem verður að teljast
gott þar sem merki voru um
minnkandi umsvif á fasteigna-
markaði á fýrstu tveimur mán-
uðum ársins. f endurskoðuðum
áætlunum sjóðsins er gert ráð
fyrir að ný útlán yrðu 9 -10 millj-
arðar á fjórðungnum og eru því
útlánin í takt við áætlanir,“ segir
í skýrslunni.
Þar kemur ennfremur fram
að ýmsar vísbendingar hafi
gefið til kynna að umfang fast-
eignaviðskipta sé að aukast eftir
að rólegt hafi verið yfir þessum
markaði í janúar og febrúar.
„Samhliða því að útlán fbúða-
lánasjóðs hafi aukist jókst velta á
fasteignamarkaði á höfuðborgar-
svæðinu frá síðasta mánuði skv.
tölum frá Fateignamati ríkisins.
Jafnframt jókst fjöldi kaupsamn-
inga frá fyrra mánuði,“ segir enn-
fremur í skýrslunni.
Herinn byrjaður að pakka niður
Starfsfólk á dvalarheimilum aldr-
aðra hefur boðað til setuverkfalls
frá og með 21. apríl næstkomandi.
Þetta kom fram á fjölmennum
fundi starfsfólksins í Kiwanishús-
inu við Engjateig í gær. Gert er ráð
fyrir því að verkfallið muni standa
í viku en eftir það mun koma til
fjöldauppsagna frá og með næstu
mánaðamótum verði ekki búið að
finna lausn á deilunni.
f ályktun fundarins segir m.a. að
ekki sé ásættanlegt að ríkið hafi fjár-
hagslegan ávinning af því að greiða
starfsmönnum sínum skammarlega
lág laun. í ályktuninni kemur einnig
fram að starfsfólk umræddra heim-
ila muni ekki sætta sig við að verða
aftur bundið kjarasamningum sem
eru án endurskoðunarákvæða hvað
varðar launabreytingar hjá sambæri-
legum hópum.
Boðað hefur verið til fundar þann
19. apríl næstkomandi milli forsvar-
manna Eflingar, dvalarheimila og
fulltrúa starfsfólks.
fjoldauppsagnir
Stýrivextir
gætu far-
ið í 16%
Mbl.is | Seðlabanki íslands er
tilbúinn að hækka stýrivexti
sína enn frekar, og jafnvel alveg
upp í 16% til að koma í veg fyrir
frakari aukningu á verðbólgu í
landinu. Þetta kom fram í máli
Davíðs Oddsonar, í viðtali við
Bloomberg fréttastofuna í gær.
Davíð segir að ef ekkert annað
dugi til að halda verðbólgunni í
skefjum verði um frekari vaxta-
hækkanir að ræða.
f greininni kemur fram að
Davíð sé að berjast við aukinn
verðbólguhraða sem Seðla-
bankastjóri en á morgun, mið-
vikudag muni koma í ljós hver
verðbólgan sé í apríl.
Davíð Oddsson segist í viðtal-
inu trúa á opinn markað og ef
við viljum búa við frjálst samfé-
lag þá verði íslendingar að geta
tekið við getgátum. Ef hlutirnir
eru gerðir rétt í íslensku efna-
hagslífi, þá ættu getgátur fjár-
festa ekki að vera hættulegar
fyrir fsland.
Undirbúningur að brottför varnar-
liðsins á Miðnesheiði er nú kominn
á fullt skrið. Auglýst hefur verið eftir
mannskap til að vinna að pökkun bú-
slóða. Framkvæmdastjóri flutninga-
fyrirtækisins Pökkun og flutningar
ehf. segist búast við því að flutning-
arnir hefjist fljótlega eftir páska.
Auglýst eftir verktökum
Utanríkisráðuneytið auglýsti um
helgina eftir verktökum til að sinna
frágangi á búslóðum varnarliðsins.
f auglýsingunni kemur fram að gert
sé ráð fyrir því að unnið verði alla
virka daga auk vinnu um helgar og
á almennum frídögum. Þá kemur
fram í auglýsingunni að umsóknum
verði að skila ekki seinna en 25. apríl
næstkomandi.
Að sögn heimildarmanns Blaðsins
Bandaríkjamenn undirbúa nú brottflutning sinn frá Miðnesheiði.
á varnarsvæðinu á Miðnesheiði er
nokkuð síðan herinn hóf undirbún-
ing að brottflutningi. Um er að ræða
búslóðir fjölskyldna hermanna en
einnig er herinn byrjaður að pakka
niður vopnum sem flytja á til banda-
rískrar herstöðvar á Sikiley.
Töluverðir flutningar
Þrjú fyrirtæki hafa séð um flutninga
fyrir varnarliðið á undanförnum
árum. Þetta eru fyrirtækin P.Árna-
son hf., íslenska pökkunarfélagið
ehf. og Pökkun og flutningar ehf.
Að sögn Viðars Péturssonar, fram-
kvæmdastjóra Pökkunar og flutn-
inga, settu fulltrúar varnarliðsins sig
í samband við hann skömmu eftir
að Bandaríkjamenn höfðu tilkynnt
um brottför hersins. „Við vorum
boðaðir á fund til þess að ræða þessi
mál. En þeir tilkynntu okkur einnig
að nákvæmari útlistanir lægju ekki
fyrir fyrr en eftir að viðræðum við
íslensk stjórnvöld væri lokið.“
Viðar segist gera ráð fyrir því að
um töluverða flutninga verði að
ræða og að þeir muni hefjast fljót-
lega eftir páska. „Við búumst við því
að þetta verði töluverðir flutningar
en við höfum ekki fengið ákveðin
svör frá varnarliðinu. Allt sem fer
til Bandaríkjanna þarf að fara í
sérstaka búslóða trékassa. Fyrst
pökkum við öllu niður í pappakassa
og síðan í þessa trékassa. Þeir eru
síðan færði í vöruhús á vellinum þar
sem hver einasti kassi er vigtaður og
loks vírbundinn og merktur. Loks
eru þeir fluttir í þar til gerða gáma
og eftir það tekur varnarliðið við.“
O Heiðskírt (3 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað ✓ ^ Rigning, lítilsháttar Rlgning 9 9 Súld sjc ^ Snjókoma r-^7 Slydda r^7 Snjóél r—y Skú
_________’ *__________V V v
*
^'1' 0" ^
Algarve 20
Amsterdam 09
Barcelona 15
Berlín 08
Chicago 07
Oublin 10
Frankfurt 09
Glasgow 07
Hamborg 07
Helsinki 01
Kaupmannahöfn 06
London 09
Madrld 16
Mallorka 18
Montreal 04
New York 08
Orlando 18
Osló 04
París 10
Stokkhólmur 04
Vín 06
Þórshöfn 06
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 302 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
A morgun