blaðið - 11.04.2006, Qupperneq 8
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 blaðið
8 í ERLEMDi
Dominique de Villapin Reuten
Franska stjórn-
in lætur und-
an þrýstingi
Jacques Chirac, forseti Frakklands,
lýsti því yfir í gær að ríkisstjórn
landsins muni draga til baka um-
deilt lagafrumvarp um atvinnurétt-
indi ungmenna. Frumvarpinu hefur
verið mótmælt harðlega af háskóla-
stúdentum og af verkalýðsfélögum
undanfarnar vikur. í stað frumvarps-
ins munu stjórnvöld kynna nýjar og
sértækar leiðir til að fjölga atvinnu-
tækifærum ungmenna í landinu.
Ákvörðunin er reiðarslag fýrir
Dominique de Villapin, forsætis-
ráðherra Frakklands og tilvonandi
forsetaframbjóðanda. Hann barðist
ötullega fyrir því að frumvarpið
yrði samþykkt þrátt fyrir hin miklu
mótmæli sem hefur orðið til þess
að vinsældir hans hafa hrunið. f
sjónvarpsávarpi í gær harmaði hann
mótmælin og skilningsleysið á laga-
frumvarpinu en boðaði nánara sam-
ráð við hagsmunaaðila við setningu
nýrra laga um atvinnu ungmenna.
KOKOS-SISAL TEPPI
Stefndi í stjórnarkreppu
eftir tvísýnar kosningar
Útlit var fyrir að ríkis-
stjórn Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra Ítalíu, hafi tapað
þingkosningunum miðað við
fyrstu útgönguspár á Ítalíu í gær.
En útlit var fyrir æsispennandi
kosninganótt. Svo mjótt var á
munum.
Útgönguspár sem teknar voru
eftir að kjörstöðum lokaði í
gær bentu til þess að bandalag
vinstri- og miðjuflokka, undir
forystu Romano Prodis, hafi
sigrað í þingkosningunum. Sam-
kvæmt fyrstu útgönguspám var
bandalag Prodi með á bilinu
50-54% atkvæða. Hægribanda-
lag Silvio Berlusconi, forsætis-
ráðherra, fær á bilinu 45-49%
atkvæða. Hugsanlegt að hvorugt
bandalagið vinni meirihluta í
báðum deildum þingsins. Sú
staða myndi hugsanlega leiða til
stjórnarkreppu.
Staða Berlusconis hefur veikst
undanfarin ár. Efnahagsstefna ríkis-
stjórnar hans þykir hafa mislukkast
og hagvöxtur hefur verið lítill i
landinu í stjórnartíð hans. Aukþess
hefur Berlusconi verið viðriðinn
ýmis spillingarmál og sakaður um
að nota stöðu sína í ríkisstjórn til
þess að hygla eigin viðskiptaveldi.
Hefur það átt þátt í að grafa undan
stöðu hans.
Gerbreytt stefna ríkisins
Ef útgönguspár reynast réttar og
vinstri- og miðjuflokkarnir myndi
ríkisstjórn er ljóst að Romano Prodi
bíður erfitt verkefni. Það gæti reynst
honum erfitt að halda stjórn sinni
saman. Prodi sigraði í þingkosn-
ingum árið 1996 en stjórn hans féll
tveimur árum síðar vegna óánægju
kommúnista innan stjórnarinnar. I
kjölfarið komst Berlusconi til valda
og er það talið helsta afrek hans í
stjórnmálum að hafa verið fyrsti
ítalski forsætisráðherrann sem hefur
setið út heilt kjörtímabil. Margir
kjósendur óttast að stjórn Prodi
verði óstöðug og falli á endanum
sökum þess hversu ólík stefnumál
flokkanna innan bandalagsins eru.
Prodi hefur svarað þessari gagnrýni
með því að benda á að vinstri- og
miðjuflokkarnir hafi samþykkt 298
blaðsíðna stjórnarsattmála sem inni-
heldur nákvæma lýsingu á áherslum
og þeim stefnumálum sem stjórnin
hyggst hrinda í framkvæmd. Meðal
stefnumála í sáttmálanum er að
Romano Prodi verður að ölium líkindum næsti forsætisráðherra ftalíu.
Reuters
hækka barnabætur, taka aftur upp
erfðaskatt, hætta við áform um að
hækka ellilífeyrisaldur upp í 60 ára
og ráðast í aðgerðir gegn skattsvikum.
f utanríkismálum hefur bandalagið
lýst því yfir að ítalskir hermenn verði
undir eins kallaðir heim frá frak og
er talið að stjórn Prodi snúi baki við
þeirri stefnu Berlusconi um að leggja
meira upp úr nánum samskiptum
við Bandaríkin en Evrópu.
Ljóst er að Romano Prodi mun
ekki hafa mikið svigrúm til þess að
leggja miklar áherslur á félagslegar
umbætur á ftalíu. Hagvöxtur í land-
inu hefur aðeins verið að meðaltali
0.6% ári í stjórnartíð Berlusconis og
skufdir þjóðarbúsins er ákaflega háar.
Talið er að brýnasta verkefni nýrrar
stjórnar verði að rétta fjármál ríkis-
ins við en stjórnmálaskýrendur telja
að erfitt verði fyrir Prodi að skera
niður í fjármálum ríkisins og halda
stjórn sinni saman á sama tíma.
Vonbrigöi. Ailt útlit er fyrir að Silvio Berlusconi verði brátt fyrrverandi forsætisráðherra
ftalíu
Reuters
Alexander Lukashenko, forseti Hvfta-
Rússlands, mun ekki komast á HM í Þýska-
landi í sumar vegna ferðabanns ESB.
Ferðabann á
Hvít-rússneska
stjórnmálamenn
Evrópusambandið hefur samþykkt
þvinganir gegn stjórnvöldum í
Hvíta-Rússlandi vegna þess hvernig
staðið var að forsetakosningunum í
landinu í síðasta mánuði. Evrópskir
kosningaeftirlitsmenn lýstu því yfir
að þær hafi ekki uppfyllt skilyrði um
frjálsar og heiðarlegar kosningar.
Felast þvinganirnar meðal annars
í því að Alexander Lukashenko, for-
seti Hvíta-Rússlands, og öðrum hátt-
settum embættismönnum verður
meinað að ferðast til aðildarrikja
ESB.
Sértækar viðskiptaþvinganir
Fleiri aðgerðir hafa verið boðaðar
af hálfu ESB og er meðal annars
rætt um að frysta eigur ráðamanna
í Minsk í evrópskum bönkum og
fjármálastofnunum og sértækar við-
skiptaþvinganir á vopnaútflutning
frá landinu.
Sendiherra Rússa í Hvít-Rúss-
landi fordæmdi þvinganirnar harð-
lega í fjölmiðlum í gær og sagði þær
móðgun við hina Hvít-Rússnesku
þjóð.
Leiðtogi þýskra
jafnaðarmanna
Matthias Platzeck, formaður þýska
Jafnaðarmannaflokksins.hefurlátið
af embætti fimm mánuðum eftir
að hann var valinn eftirmaður Ger-
hards Schröders, fyrrum kanslara
Þýskalands. Platzeck, sem er 52 ára,
segir af sér af heilsufarsástæðum.
Kurt Beck, fylkisstjóri Rínarhér-
aða, mun taka við formennsku í
flokknum. Jafnaðarmenn fengu
46% fylgi í fylkiskosningum í mars
og eru í fyrsta sinn í sögunni með
meirihluta á fylkisþinginu.