blaðið - 11.04.2006, Side 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 blaðið
Konunglegur tölvu-
póstur sendur 1976
Elísabet II Bretadrottning sendi
sinn fyrsta tölvupóst árið 1976,
löngu fyrir daga Netsins. Þetta
er ein af 80 staðreyndum um lífs-
hlaup hennar sem afhjúpaðar voru
af bresku krúnunni á dögunum
í tilefni þess að drottningin mun
fagna áttræðisafmæli sínu 21. apríl
næstkomandi. Meðal annara hluta
sem koma fram um líf drottningar
er að hún fór fyrst í neðanjarðarlest
árið 1939 og sá bikarúrslitaleik í fót-
bolta árið 1953. Henni hefur greini-
lega ekki þótt mikið til neðanjarð-
arlesta koma þar sem að þetta er
eina skiptið sem
hún notaði slíkt
farartæki. Hún
fór ekki heldur á
knattspyrnuleik
aftur. Með und-
arlegri gjöfum
sem drottningin
hefur fengið í 256
opinberum heim-
sóknum sínum
um heiminn
gegnum tíðina
eru 7 kg. af rækjum, brasilísk leti-
dýr og svartir bjórar frá Kanada.
Drottningin er
stoltur eigandi
brasilísks letidýrs.
Úr vöndu að ráða.George Bush, forseti Bandaríkjanna, vill koma í vegfyrir að (ranirkoma sér upp kjarnavopnum.
Reuters
www.zoppini.com
Meba - Kringlunni
Rhodium - Kringlunni
Meba Rhodium - Smáralind
Úr & Gull - Firði Hafnarfirði
Georg V. Hannah - Keflavík
Guðmundur B. Hannah - Akranesi
Karl R. Guðmundsson - Selfossi
Klassík - Egilsstöðum
Arás á Iran ekki yfirvofandi
Stjórnvöld í Washington vilja koma í vegfyrir að íranir komi sér
upp kjarnavopnum með samningum en útiloka ekki önnur úrrœði.
Bandarísk stjórnvöld neituðu því
í gær að þau íhuguðu beitingu
kjarnavopna á skotmörk í íran
fallist stjórnvöld í Teheran á
kröfur öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna um að þeir láti af
auðgun úrans. George Bush, for-
seti Bandaríkjanna, sagði í gær að
Bandaríkjamenn vildu fyrst og
fremst fara samningaleiðina í deil-
unni um kjarnorkuáætlun írana
en tók það samt fram að stjórn-
völd útiloki enga valmöguíeika
þegar kemur að því að stöðva
áætlanir írana um að koma sér
upp kjarnaorkuvopnum.
Um helgina birtist grein eftir
bandaríska rannsóknarblaðamann-
inn Seymour Hersh þar sem höf-
undur fullyrðir að undirbúningur
loftárása á íran sé vel á veg kominn.
Hersh heldur því fram í greininni
að bandarísk hernaðaryfirvöld úti-
loki ekki beitingu kjarnavopna í því
samhengi. Ennfremur heldur hann
því fram að bandarískir sérsveitar-
menn séu nú þegar staddir í Iran
og séu að undirbúa jarðveginn fyrir
loftárásirnar - meðal annars með
því að miða út skotmörk og koma
á tengslum við minnihlutahópa
innan landsins sem eru á móti ríkj-
andi valdhöfum í Teheran. Greinin
hefur vakið mikla athygli og hörð
viðbrögð meðal stjórnmálamanna
annarra ríkja. Jack Straw, utanrík-
isráðherra Bretlands, sagði á sunnu-
dag að það væri fáránlegt að beita
litlum kjarnavopnum á skotmörk í
íran.
í gær köstuðu talsmenn Hvíta
hússins rýrð á grein Hersh, og
meðal annars sagði Dan Bartlett,
háttsettur ráðgjafi George Bush, í
fjölmiðlum að greinin væri ekki vel
unnin. Hann gagnrýndi Hersh fyrir
að lesa of mikið út í það sem kallast
gæti eðlilegur undirbúningur undir
hugsanlegar hættur í framtíðinni.
Ennfremur ítrekaði Bartlett að Ge-
orge Bush leggur mégináherslu á að
leysa kjarnorkudeiluna við Irani við
samningaborðið. Scott McClellan,
talsmaður Hvíta hússins, tók í sama
streng í gær en vildi hvorki neita
því né játa að stjórnvöld íhuguðu
beitingu kjarnorkuvopna til þess
að granda neðanjarðarkjarnorku-
stöðvum í fran.
Ólíklegt að kjarnavopnum
verði beitt
Stjórnmálaskýrendur telja afar ólík-
legt að bandarísk stjórnvöld íhugi í
alvöru að beita kjarnorkuvopnum
gegn kjarnorkustöðvum írana.
Hinar pólitísku afleiðingar slíkrar
árásar yrðu of dýrkeyptar fyrir
Bandaríkin. Talið erlíklegt að Banda-
ríkin séu i raun að undirbúa árás
eins og fram kemur i grein Hersh.
Hinsvegar þýði sá undirbúningur
ekki endilega að Bandaríkjamenn
láti til að skarar skríða. Hugsanlegt
er að með því að láta það spyrjast út
að undirbúningur loftárása sé vel á
veg kominn séu stjórnvöld í Wash-
ington að auka þrýstinginn á írani
og senda þau skilaboð til Rússa og
Kínverja að gripið verði til einhliða
hernaðaraðgerða náist ekki sam-
staða inna öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Rússar og Kínverjar hafa
neitunarvald innan öryggisráðsins
og ólíklegt þykir að þeir samþykki
harðar viðskiptaþvinganir á írani.
Iranir hafa frest til lok þessa mán-
aðar að hætta auðgun úrans og fall-
ast á kröfur alþjóðakjarnorkumála-
stofnunarinnar (IAEA) um eftirlit
með kjarnorkuáætlun stjórnvalda
í Teheran. Fallist þeir ekki á það
er líklegt að gripið verði til harðari
þvingana gegn Irönum náist sam-
staða um það innan öryggisráðsins.
I gær lýsti Javier Solana, utanríkis-
málastjóri Evrópusambandsins, að
Evrópusambandið ætti að styðja
slíkar þvinganir en útilokaði að
ESB myndi styðja hernaðaraðgerðir
gegn Irönum skili þvinganir ekki til-
ætluðum árangri.
Innrás óhugsandi
Náist ekki samstaða innan öryggis-
ráðsins um að þvinga írani til þess
að láta af kjarnorkuáætlun sinni er
talið víst að Bandaríkjamenn ráðist
í einhverskonar hernaðaraðgerðir.
Deilt er um hverju þau muni skila.
Kjarnorkustöðvar Irana eru grafnar
djúpt í jörðu og skiptar skoðanir eru
á því hvort Bandaríkjamenn ráði
yfir sprengjum sem geta grandað
þeim. Hefðbundin innrás er talin
óhugsandi sökum þess hve stór
liðsafli Bandaríkjanna er bundinn
í Irak og Afganistan. Þrátt fyrri að
íranski herinn sé ekki mjög þróaður
er talið líklegt að íranir geti veitt
hagsmunum Bandarikjanna mik-
inn skaða gegnum alþjóðlegt net
hryðjuverkamanna og skæruárásir
á olíflutningaskip sem fara gegnum
Persaflóa.
Sumardekk
Öryggi bílsins byggist
á góðum hjólbörðum
GUMMIVINNUSTOFAN
SP dekk
Skipholti 35. 105 RVK
Sírrii: 553 1055