blaðið - 11.04.2006, Page 14

blaðið - 11.04.2006, Page 14
blaðið______________________________________________ Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson. Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. SÝN TIL EVRÓPU Ymsir leggja stórpólitíska ef ekki beinlínis menningarlega merk- ingu í þau umskipti sem orðið hafa á sviði íslenskra öryggis- og varnarmála. Því er haldið fram að sú ákvörðun Bandaríkjamanna að flytja á brott frá íslandi björgunarþyrlur og orrustuþotur færi „Island nær Evrópu'. Einhverjir telja að þessi umskipti feli í sér að varnir íslands beri að tengja vörnum aðildarríkja Evrópusambandsins. Þetta er afar óljós nálgun og erfitt að ímynda sér að fullnægjandi tryggingar megi knýja fram á þann veg. Vitanlega hafa íslendingar „nálgast" Evrópuþjóðir með ýmsum móti á undanliðnum árum. Þar ber hæst EES-samninginn sem hefur reynst Is- lendingum afar vel. Mikil framsýni einkenndi framgöngu þeirra stjórn- málamanna sem knúðu fram samþykki við samninginn. Það var ekki létt verk og hlýtur að teljast einn merkasti sigur síðari ára á afturhaldsöflunum í samfélaginu. Ákveðin þáttaskil verða í varnarsamstarfinu við Bandaríkin þegar varn- arliðið hverfur af landi brott í haust. Þetta samstarf verður ekki sem áður en ástæðulaust er með öllu að gráta þá stöðu mála. En þessi umskipti fela ekki í sér brey tta stöðu íslands gagnvart umheiminum. Hún er skýr; íslend- ingar eru Evrópuþjóð sem á sívaxandi samstarf við nágranna sína. Sú hugsun að Islendingar fjarlægist Bandaríkin og hljóti þar með að nálg- ast Evrópu vegna þess að nokkrar þotur og þyrlur eru fluttar á brott felur á hinn bóginn í sér verulega einföldun. Staðreyndin er sú að á síðustu árum hafa Bandaríkin fjarlægst Evrópu. Framganga Bandaríkjamanna á alþjóða- vettvangi hefur verið með slíkum ólíkindum í forsetatíð George W. Bush að óhjákvæmilegt er að stjórnvöld vestra einangrist. Og vilji þeirra virðist einmitt vera þessi. Völdin í Bandaríkjunum eru nú í höndum kristinna hreintrúarmanna sem hafna kenningum um stjórnmál raunsæisins. Þessi nálgun er afar langt frá hinum evrópska hugmyndaheimi. En Bush verður ekki á forsetastóli til allrar framtiðar. Hvað sjálf varnarmálin varðar sýnist ástæða til að halda því til skila að það voru Bandaríkjamenn sem bókstaflega fluttu Island og íslendinga til Evrópu. Það var gert með einhliða ákvörðun árið 2002 þegar varnir íslands voru færðar undir hina risastóru Evrópuherstjórn Bandaríkjamanna. ís- lendingar komu hvergi nærri þeirri ákvörðun eins stórundarlegt og það nú annars er. íslendingar tilheyra öryggissamfélagi Evrópu og Bandaríkjanna sem hvað varnir varðar birtist í aðildinni að Atlantshafsbandalaginu. I pólit- ísku, efnahagslegu og menningarlegu tilliti fer samstarf við Evrópuþjóðir vaxandi. Sú þróun er jákvæð. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aöalsími: 5103700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf áauglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. möor ^ UPPÞVOTTAVÉL Verð kr. 59.900 Áður kr. 79.900 RONNING Borgartúni 24 / Reykiavík / Sími: 562 4011 • Óseyri 2 / Akureyri / Sfmi: 460 0800 Hatnargata 52 / Reykjanesbæ / Sfmi: 420 7200 14 I ÁLIT 'ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 blaðið JUWfiBUk, flMplíK. tfEWf MWtí! kE7T4 VfiR VÍST T6MUR. MtSSKIWwW. JNGÍFJÖR.G S6LtwM SnW m loks á að leysa vandann Fyrir nokkrum árum kynntist ég manni sem olli mér talsverðum heilabrotum. Sá hafði lent í erfiðum og alvarlegum veikindum og varð eftir þau heldur minna heill en hann hafði verið áður. Þessi ágæti maður hafði verið bóndi og kunnað vel til verks fyrir veikindin, en neyddist vegna þeirra að flytja úr sveitasæl- unni í þéttbýlið. Maðurinn gat hins- vegar ekki hugsað sér líf án þess að hugsa um einhverjar skepnur og því var hann fljótlega eftir flutning- inn búinn að koma sér upp ágætis hestastóði, auk þess sem hann fékk að „geyma“ nokkrar rolluskjátur á nálægum sveitabæ. Það kom hinsvegar fjótlega í ljós að maðurinn hafði ekki lengur burði eða getu til að hugsa um dýrin sín. Hann heimsótti rollurnar sínar reyndar öðru hvoru, en vandinn var að það gátu liðið vikur milli þeirra heimsókna. Bóndinn sem geymdi rollurnar gafst upp á því fljótlega að þurfa að mestu að sinna skepnunum sem að lokum enduðu í sláturhúsinu. Maðurinn var miður sín. Hestur í ókunnugu húsi Frammistaða mannsins að halda hross gekk litlu betur. Hann átti víst ekki i nein hús að vernda með blessuð dýrin og tók því á það ráð að lauma einum og einum hesti inn í hesthús annarra, svona eins og hann ætti von á að enginn tæki eftir því að einn hestur hefði bæst við og gæfi honum þvi að éta. Tilraun hans til hestamennsku í þéttbýli varð því lítið langlífari en rollubúskapurinn. Um það leyti sem allt þetta gekk á var maðurinn hinsvegar gerður það sem kallað er „forðagæslumaður". Sá einstaklingur á að gæta þess að aðrir hestamenn og bændur sinni skepnum sínum nægilega vel og að allar fái þær nú réttan skammt af heyi og fóðri á degi hverjum. Með öðrum orðum - maðurinn sem ekki stóð sig í dýrahaldinu var nú Aðalbjörn Sigurðsson kominn með eftirlitshlutverk með öðrum hestamönnum og bændum. Það þarf vart að fjölyrða hversu mikið mark var tekið á blessuðum kappanum þar sem hann fór á milli bæja og hesthúsa í viðleitni sinni við að sinna skyldum sínum, sem hann engu að síður tók ákaflega alvarlega. Ódýr kosningabrella Þessi maður hefur komið upp í huga minn reglulega að undanförnu, reyndar í sambandi við allt annan og óskyldan hlut. íslendingar eru nefnilega að vakna upp við þann vonda draum um þessar mundir að kannski sé nú hægt að hugsa betur um gamla fólkið en nú er gert. Staðreyndin er að þeir sem starfa við að sinna þessum hópi eru með óskaplega lág laun fyrir erfiða vinnu - með öðrum orðum þá er ekki nógu vel búið að starfsmönnum í þessum geira. Hinsvegar er það gamla fólkið sjálft sem lendir á biðlistum eftir að komast inn á stofnanir sem ekki fæst á starfsfólk af ofannefndum ástæðum. Lausnin er einföld og blasir við - það þarf einfaldlega meiri peninga til að standa almenni- lega að málum. Það var síðan um helgina að Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson kom fram eins og frelsandi engill og sagði að gera þyrfti eitthvað í málinu. Ég verð að viðurkenna að það var þá sem maðurinn í sögunni hér að ofan kom upp í huga mér, þvi það er vart hægt að taka mark á sjálfstæðismönnum í þessum efnum. Ríkisstjórnin, með sjálfstæðisflokkinn við stjórnvölinn, hefur ráðið ríkjum hér á landi um það langt skeið að hæg hefðu heima- tökin verið fyrir flokkinn að gera eitthvað í málinu fyrir lifandi löngu síðan. Það er ekki fyrr en nokkrir mánuðir eru til kosninga að einum sjálfstæðismanni dettur til hugar að segja upphátt að leysa þurfi brýnt vandamál - sem flokksfélagar hans hafa hunsað á annan áratug. Er von að mér finnist slikur boðskapur á við ódýra kosningabrellu og finnist hann ekki trúverðugur. Höfundur erfréttaritstjóri Blaðsins Klippt & skorið klipptogskorid@vbl.is Framsóknarmenn i Reykjavik hafa tekið af skarið f kosningabaráttunni og kynnt stefnuskrá sína, enda varla seinna vænna miðað við dauflegar undirtektir við framboðið í skoðanakönnunum að undan- förnu. I stefnuskránni, sem lesa má á vefnum (www.framsokn.is) kennir margra ágætra hug- mynda, sem til framfara horfa, en eitt er það þó sem lesandinn tekur öðru fremur eftir. Sumsé að þar er aðeins einu sinni minnst á Framsóknarflokk- inn. Að öðru leyti er aðeins talað um B-listann og helsta kosningaslagorðið mun vera Exbé! Telja fróðir menn að Birni Inga Hrafnssyni hafi verið ráðlagt af auglýs- ingasérfræðingum að minnast sem minnst á flokkinn, sem að baki býr. eiðarahöfundur Morgunblaðsins (gær má vart vatni halda yfir dásemdum sjálfstæðismanna, en af forystugreininni má helst skilja að þeir séu öðrum mönnum snjallari, skorinorð- ari, viðbragðsskjótari og Klipp- ari veit ekki hvað. Tilefnið er ræða Vilhjálms Þ. Vilhjálms- sonar á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn var á Akureyri um helgina. Þar fjallaði hann um málefni aldraðra og hikaði ekki við að taka eigin flokkssystkin til bæna i þeim efnum. Og svo tók Árni Matthiesen svona Ijómandi undir þessi orð og hét úrbótum. Já, þetta er nú alveg frábært og einstakt... eða hitt þó heldur: Sveitarstjórnarmaður grenjar undan því i aðdraganda kosninga að sig vanti meiri pening frá ríkinu og flokksbróðir hans i fjármálaráðuneytinu segir honum blessuðum að koma til að sækja sér hnefa í gullkistur skatt- borgara. Einhverntíman hefði verið talað um ódýran kosningavixil og kjósendur fá að borga. m Iþessum dálki í gær var skensast með það að Fréttablaðið hefði alveg misst af veigamiklu „ekki" í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á flokksstjórnarfundi Samfylk- ingarinnar, en fyrir vikið var það ranglega eftir henni haft áforsíðu blaðsins, að allt væri að fara fjandans til í íslensku efnahagslífi. [ gær var úr þessu bætt með burðarfrétt á síðu tvö líkt og fréttin væri ennþá ylvolg. Það hlýtur að vera lengsta leiðrétting í íslensku dagblaði án und- angengins dómsúrskurðar.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.