blaðið - 11.04.2006, Qupperneq 20
oÍÁAjt/i
BARNAVÖRUVERSLUN • GLÆSIBÆ
simi 553 3386 - vww.oo.ís
Hættulegar
blöðrur
Fyrir skömmu fór ég á mynd-
arlega sýningu á höfuðborgar-
svæðinu en þar voru ýmis fyr-
irtæki að kynna vörur sínar.
Mörg fyrirtækjanna voru að
dreifa óuppblásnum blöðrum
til lítilla barna.
Börn undir 3 ára aldri setja
allt í munninn og hættan við
blöðruna er sú að hún vöðlast
í munni barnsins og ef barnið
gleypir hana óvart er mikil
hætta á að hún rati í öndunarveg-
inn. Það sem er hættulegt þegar
blaðra stendur í barni er hversu
erfitt það er að ná henni upp,
þrátt fyrir að nærstaddir kunni
skyndihjáp. Það er því afar mik-
ilvægt að gefa litlum börnum
aldrei óuppblásnar blöðrur. Fyr-
irtæki sem ætla að gefa börnum
blöðru ættu alltaf að gefa upp-
blásnar blöðrur. Eins er mikil-
vægt að börn séu ekki ein að leik
með blöðrur þar sem það er mik-
ilvægt að fjarlægja þær sem fyrst
ef þær springa til að koma í veg
fyrir köfnunarslys.
Páskaegg
Framleiðendur sælgætis eru
vandvirkir þegar kemur að því
að velja sælgæti inn í eggin en
mikilvægt er að foreldrar að-
stoði yngstu börnin. Það þarf
til dæmis að kanna hvort það
kunni að leynast sælgæti í egg-
inu sem erfitt er fyrir barnið að
tyggja eða er of stórt.
Á hverju ári er tilkynnt um
slys af völdum páskaeggja þar
sem staðið hefur í barni og er
því ástæða til að fara varlega.
Gleðilega páska
HerdísL. Storgaard
herdis@lydheilsustod.is
20 I FIÖLSKYLDAN þriðjudagur 11. apríl 2006 blaöiö
Nútímaleg og falleg eldhúsinnrétting með háglans-hurðum. Svartur litur hefur ekki verið algengur í eldhúsum en á þessu má sjá að hann á fullt erindi þar inn. Nero innréttingin án
heimilistækja og blöndunartækja kostar 426,115 kr
Eldhús nútímans snýst í meira mæli um samveru fjölskyldunnar og Kvik vinnur út frá því. Stórglæsileg Antracit baðinnrétting sem færir baðherbergið inn í nútímann. Skáparnir
Bianco elhúsið er fallegt í útliti og þar er nægilegt pláss fyrir allt og alla. Án heimilis- og vaskurinn kostar alls 58,009 kr.
tækja og blöndunartækja kostar Bianco innréttingin 318,229 kr.
Miðvikudagur 12. apríl
Greinar • Viðtöl • Fræðsla • og margt fleira
blaöið
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Magnús Gautí Hauksson • Sími 510 3723 • Gsm 691 2209 • maggi@vbl.ís
Gæðahönnun
lítinn pening
Á dögunum opnaði glæsileg Kvik
verslun í Skútuvogi en þar má finna
margvíslegt úrval af innréttingum,
heimilistækjum, blöndunartækjum
og fleiru. Kvik er þekkt danskt
merki en búðirnar eru alls orðnar
um 80 á Norðurlöndunum, Hol-
landi, Belgíu og nú síðast á íslandi.
Kvik sérhæfir sig í gæðahönnun úr
góðu efni og verðinu er haldið niðri
fyrir
með fjöldaframleiðslu. Enda er kjör-
orð Kvik að allir eigi rétt á fallegu
eldhúsi fyrir litið fé.
Atli Þór Alfreðsson, verslunar-
stjóri Kvik, segir að viðtökurnar
hafi verið ótrúlegar og starfsfólkið
hafi vart undan. „Hér er hægt að
kaupa innréttingar og setja þær
saman sjálfur eða fá þær saman-
settar, hvort sem maður vill.“ Sam-
kvæmt Atla er ekki mikið mál að
setja innréttingarnar saman enda
fylgjaleiðbeiningar með. Aðspurður
hvaða innréttingar séu vinsælar
segir hann að höldulausar innrétt-
ingar séu mjög vinsælar um þessar
mundir. „Háglans innréttingar hafa
einnig verið vinsælar um nokkurt
skeið, hvort sem þær eru hvítar eða
svartar. Eikin er líka að koma sterk
inn. Auk þess er vinsælt að hafa tvö-
faldar borðplötur, plötur sem eru um
6 cm á þykkt.“ Samkvæmt Atla Þór
leggur fólk orðið meira upp úr inn-
réttingum og er tilbúið að eyða pen-
ingum í góðar innréttingar og tæki.
Hér að ofan má sjá hluta af úrvali
Kvik. Innifalið í verði er borðplata,
höldur, skápar og sökkull.
svanhvit@bladid. net