blaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 26
26'I BÍLAR
PRIÐJUBAGUR 11. APRÍln2D06 bláöið
Mustang
með blœju
ÞegarFordkynntinýjaútgáfuafMu- uskerrum. Nýi Mustanginn hefur
stang vissu menn ekíci alveg hvaðan enda haft víðtæk áhrif, því fleiri bíla-
á sig stóð veðrið, en það er óhætt framleiðendur vestanhafs eru búnir
að segja að markaðurinn hafi tekið að kynna nýjar útgáfur af gömlum
við sér, ekki síst bílaáhugamenn á vöðvabílum sjöunda og áttunda
miðjum aldri, sem láta loks eftir áratugarins. En Ford lætur ekki að
sér að komast yfir draumabíl æsku sér hæða og er nú búinn að setja á
sinnar. Hjá Brimborg hefur talsvert markað þessa blæjubíls-útgáfu af
verið selt af þessum bandarísku lúx- Mustang.
Páskar 2006
Þriggja rétta kvöldverður að hætti meistarans
Gisting ásamt morgunverði
Sumarhúsgögnin komin á sundlaugarsvæðið
Sundlaug, jarðgufubað og heitir pottar
Ein nótt: 7.450, krónur (á mann í tvíbýli)
Tvær nætur: 13.900,- krónur (á mann 1 tvíbýli)
Nánari upplýsingar og pantanir í síma 4834700
Fundir - Námskeið - Ráðstefnur
Hótel Örk býður upp á fullkomna aðstöðu til fundarhalda,
námskeiða og ráðstefnuhalds í næsta nágrenni Reykjavíkur
(aðeins rúmlega hálftíma akstur), þar sem stutt er í margar
helstu náttúruperlur íslands. Hér er að finna öll þau þægindi og
þjónustu sem vænta má af fyrsta flokks hóteli.
Að loknum árangursríkum fundi er góð tilfinning að stinga sér í
laugina eða slaka á í pottunum áður en sest er að gómsætum
réttum í notalegum veitingasalnum.
Gestir Hótels Arkar geta spilað frítt á tveimur níu holu
golfvöllum í Hveragerði. Vellimir em við hlið hótelsins og 2 km
norðan við hótelið, í Gufudal.
Hótel Örk
Breiðumörk 1
Hveragerði
info@hotel-ork.is
www.hotel-ork.is
Sími: 483 4700
Fax: 483 4775 JHU 1 H/L UKlv
Fyrsta vél-
hjólakeppni
ársins hald-
in á skírdag
Á skírdag, fimmtudaginn i3.apríl,
mun Vélhjólaíþróttaklúbburinn
halda fyrstu keppni ársins 2006 og
fer hún fram í hinum gömlu kart-
öflugörðum Reykjavíkurborgar
við Korpúlfsstaði. Keppnin hefst
kl. 13.00. Keppnin er opin öllum
torfærumótorhjólamönnum og
kallast því þjála nafni Páska-end-
uro-skemmti-keppni, en keppninni
verður svo hagað, að tveir eru í
hverju liði og skiptast á að aka. Hlut-
kesti ræður liðsskipan en þó þannig
að í hverju liði er annar reyndur og
hinn byrjandi. Ráðgert er að aka í 3-
4 klukkutíma svo sem veður leyfir.
Keppnin er haldin til styrktar um-
hverfisverkefnis klúbbsins á nýút-
hlutuðu æfingasvæði hans og Lands-
ambandi Vélsleðamanna í minni
Jósepsdals í Ölfusi, en þar á að bæta
aðstöðu og þjónustu fyrir torfæru
og fjórhjólaunnendur.
Keppnin mun fara fram í hluta af
nýúthlutaðri lóð BYKO, Rúmfatalag-
ersins og fleiri að Blikastaðavegi 2-8
og hyggjast bifhjólakeppendur taka
ómakið af byggingaraðilunum og
taka óformlega fyrstu skóflustung-
una þegar ræst verður til keppni
með svokölluðu hlaupastartikl.13.00
með tilheyrandi látum.
Þar sem að reiðgata liggur við
hliðina á keppnissvæðinu vill keppn-
isstjórn beina því til hestamanna á
þessum slóðum, að ráðlegt er að
teyma hestana eftir reiðgötunni
fram hjá kartöflugörðunum meðan
á keppni stendur.
Nánar má lesa um tilhögun keppn-
innar og sjá loftmynd af keppnis-
svæðinu á vefsíðu Vélhjólaíþrótta-
klúbbsins (www.motocross.is).