blaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 28
28 I ÝMISLEGT
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 blaðiö
Góð útstilling eykur sölu
í Iðnskólanum í Hafnarfirði er hœgt að lœra útstillingu og hámið tekur tvö ár.
Iðnskólinn í Hafnarfirði býður
upp á nám í útstillingum en
námið er bæði verklegt og
bóklegt og tekur tvö ár. Þetta
er áttunda árið sem Iðnskólinn
býður upp á útstillingarnám og
20 nemendur eru teknir inn hvert
haust.
Margrét Ingólfsdóttir, deildarstjóri
útstillingarbrautar í Iðnskólanum
í Hafnarfirði segir að í náminu sé
vöruframsetning kennd. „Mark-
miðið er að þjálfa nemendur til
sjálfstæðra vinnubragða og að þeir
séu færir að vinna með vörur, sjón-
gripi, liti, form og annað það sem
máli skiptir þegar þarf að stilla upp
vörum. Einnig er lögð áhersla á að
nemendur öðlist hagnýta og fag-
urfræðilega þekkingu í að stilla út
vörum eða munum á faglegan og list-
rænan hátt.“
Athygli beint að vörunni
,Það eru til dæmi um ioo% aukn-
ingu á sölu,“ segir Margrét kímin
„Það eru til dæmi um 100% aukningu á sölu," segir Margrét Ingólfsdóttir, deildarstjóri
útstillingarbrautar I Iðnskólanum í Hafnarfirði.
þegar hún er innt eftir því hve mikil-
vægt það sé fyrir búðir að hafa góða
útstillingu. „Góð útstilling selur vör-
una, það er ekkert flóknara en það.
Útstillarar þurfa að hafa skilning á
því hverjum á að selja vöruna. Eins
er mikilvægt að kunna að beina at-
hyglinni að vörunni, til dæmis upp-
röðun, hvernig litir og birta er notuð,
rýmið sjálft og margt fleira. Það sem
. .
„Vildi ná tvöföldun á lestrarhraða en
margfaldaði það.“
Þorvaldur Kristinsson, 32 ára prentari.
Sumarnámskeið hefst 15. maí og 1. júní
Sumarnámskeið Akureyri hefst 17. maí og 26. júní
Skráning hafin á www.h.is og í síma 586-9400
HRAÐLESTRARSKÓUNN
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu
er notað aukalega með útstillingu
er kallað sjóngrip sem er það sem
grípur athygli viðskiptavinarins en
það getur til dæmis verið hreyfing,
hallandi línur og endurtekning. Það
eru ótal hlutir sem útstillarar læra
að verða meðvitaðir um.“
Ekki ný starfsgrein
Þrátt fyrir að útstilling sé frekar
óþekkt fag segir Margrét að það sé
langt í frá að vera ný starfsgrein.
„Fólk á íslandi hefur stillt út frá alda-
mótum og þetta er því ekki ný starfs-
grein. Þegar eyðimerkursalarnir röð-
uðu á teppin sín þá röðuðu sumir
betur en aðrir. Framsetning hefur
alltaf verið til en það varð lægð í grein-
inni þegar viðskiptafræðingar urðu
til. Þeir höfðu kannski ekki skiln-
ing á að það þurfti að gera eitthvað
í gluggunum til þess að auka sölu.
Núna er aukinn skilningur á því að
ef útstillingin er góð þá eykst salan
enda má sjá að það er mjög markviss
framsetning á vöru í stórum verslun-
arkeðjum á Islandi," segir Margrét
og bætir við að útstilling sé ekki ein-
ungis útstilling í glugga heldur fram-
setning á vöru. „Þetta snýst um að
meðhöndla vöruna og koma henni
fram á skemmtilegan hátt. Þetta er
líka spurning um að augað geti lesið
það sem það sér.“
svanhvit@bladid.net
BlaM/Steinar Hugi
Guðbjörg Jónsdóttir:„Ferlið er ekki þannig að ég sest niður og þá koma hugmyndirnar
allt f einu heldur er ég með hugann við þetta allan sólarhringinn."
Hugmyndin þarí að
vera framkvœmanleg
Útstillinger andlit verslunarinnar ogfyrirtœki leggja sífellt
meira upp úrfallegri útstillingu sem laðar að.
Það er ekkert vafamál að útstill-
ing búða geta gert úrslitamuninn
og ákvarðað hvort viðskiptavinur
gengur inn í búðina eða ekki. Það
er að mörgu að huga þegar útstill-
ing er valin og ekki er nægilegt að
fá góða hugmynd, því hugmyndin
þarf að vera framkvæmanleg og
ekki má hún vera of dýr heldur.
Guðbjörg Jónsdóttir er útstillari
hjá Hagkaup í Kringlunni og
féllst á að spjalla við Blaðið um
starfið og mikilvægi útstillinga.
Guðbjörg segir að útstillingin sé
andlitið á búðinni en það á ekki
einungis við gluggana. „Þetta snýst
líka um heildarútlitið inni í búðinni.
Búðin sjálf er deildarskipt en það er
viss hugsun á bak við uppröðunina
og ytra útlitið."
Heildarútlit tengt árstíðum
Guðbjörg segir að útstillingin sé
að jafnaði vel skipulögð. „Varan
er mjög breytileg og við breytum
kannski um heildarútlit 4-6 sinnum
á ári. Heildarútlitið fylgir þá yfirleitt
árstíðum, sumar, vetur, vor og haust.
Þess á milli erum við endalaust að
skipta um fatnað, aukahluti eða
bæta einhverju inn í,“ segir Guðbjörg
sem hefur unnið við
enn meira um þetta erlendis. „Mörg
erlend fyrirtæki eru með hóp af fólki
sem gera ekkert annað en að skipu-
leggja gluggaútstillingar. Hér á landi
fá sum alþjóðleg fyrirtæki sendar
hannaðar útstillingar erlendis frá
enda er þá ákveðin samræming á
milli landa. I Hagkaup spilum við
þetta af fingrum fram. Ég og önnur
kona sem vinnur í Smáralind sam-
ræmum okkur um heildarrammann,
við setjumst niður, lítum í kringum
okkur og komumst að einhverri nið-
urstöðu. En það er ekki nóg að fá
hugmynd, það þarf líka að útfæra
hana, hún þarf að vera framkvæm-
anleg og kostnaðurinn þarf að vera
innan hæfilegra marka.“
Þróuð hugmynd
Guðbjörg segist aldrei verða uppi-
skroppa með hugmyndir. „Það ger-
ist voðalega sjaldan. Ef það gerist
þá fer ég bara út, keyri einn hring
og kem fersk til baka. Það er ýmis-
legt sem ég hef til hliðsjónar þegar
ég stilli upp, eins og hvaða árstíð
er, hvaða litir eru í gangi og hvað
er í tísku. Það er misjafnt hvað það
tekur okkur langan tíma að ákveða
hvernig útstilling á að líta út. Ég
byrja kannski á einum punkti og svo
þróast hugmyndin.
Sumir sitja við borð
og teikna, ég geri það
reyndar ekki heldur
framkvæmi frekar.
Ferlið er ekki þannig
að ég sest niður og
þá koma hugmynd-
irnar allt í einu
heldur er ég með hug-
ann við þetta allan
sólarhringinn."
svanhvit@bladid.net
útstillingar í Hag-
kaup í níu ár og er
því ýmsu vön. „Ég
er blómaskreytir
og það má segja
að þetta sé svipað,
nema bara í stækk-
aðri mynd.“
Hæfilegur
kostnaður
Fyrirtæki leggja
orðið meira upp úr
fallegum gluggaút-
stillingum og sam-
kvæmt Guðbjörgu er
99............
En það er ekki
nóg að fá hug-
mynd, það þarf
líka að útfæra
hana, hún þarfað
vera framkvæm-
anleg og kostn-
aðurinn þarf
að vera innan
hæfilegra marka.
Garðahreinsun i Reykjavík
Vorhreinsun í görðum Reykjavikur
verður 21.-30. apríl nk. Þá munu
starfsmenn framkvæmdasviðs borg-
arinnar leggja garðeigendum lið og
fjarlægja greinaafklippur og annan
garðaúrgang sem settur hefur verið
út fyrir lóðamörk. Borgarbúar eru
hvattir til að taka til hendinni í sínu
nánasta umhverfi og efna til sameig-
inlegra hreinsunardaga í sinni götu
eða hverfi. Stofnanir og fyrirtæki eru
einnig hvött til að skapa stemningu
hjá sínu fólki fyrir þessum málum.
Sorpa mun á þessu tímabili kynna
þjónustu sína sérstaklega til að upp-
fræða borgarbúa til að auðvelda
þeim sundurgreiningú á sorpi og
hvernig best sé að koma því til förg-
unar. Umhverfis- og framkvæmda-
svið Reykjavíkurborgar stendur nú
fyrir vitundarvakningu í umhverf-
ismálum með áherslu á umgengni
og hreinsun borgarinnar undir yf-
irskriftinni „virkjum okkur“. Eitt
markmið vitundarvakningarinnar
er að vekja fólk til umhugsunar um
umhverfi sitt og umhverfi borgar-
innar og leggja hönd á plóginn.
------------,--------------------------------—-----------—---------------------
Vorhreinsun í görðum Reykjavíkur verður
21 .-30. apríl nk. og þá eru borgarbúar
hvattir til að taka til hendinni.