blaðið

Ulloq

blaðið - 11.04.2006, Qupperneq 32

blaðið - 11.04.2006, Qupperneq 32
32 I MENMIMG ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 blaðiö Eftirlætisskáldsögur breskra í Bretlandi var nýlega gerð könnun á því hvaða skáldsögur heilluðu breska karlmenn mest. Niðurstaðan er sú að karlmenn eru hrifnastir af skáldsögum sem lýsa skeytingarleysi, einangrun og skorti á tilfinningasam- böndum. Tvær konur, prófessorar í Queen Mary College, tóku viðtöl við 500 karlmenn, sem margir hverjir tengjast bókmenntaheim- inum á einhvern hátt, og spurðu þá um skáldsögur sem hefðu breytt lífi þeirra. Bókin sem flestir nefndu er Útlendingurinn eftir Albert Camus en þar á eftir komu Bjargvætturinn í grasinu eftir JD Salinger og Sláturhús 5 eftir Kurt Vonnegut. Fyrir rúmu ári var gerð svipuð könnun um eftirlætisskáldsögur breskra kvenna og þar lenti Hroki og hleypidómar eftir Jane Austen í fyrsta sæti og þar á eftir komu To Kill a Mickingbird eftir Harper Lee og Jane Eyre eftir Charlotte Bronte. Ein kona á verk meðal tuttugu eft- irlætisskáldsagna breska karla, en það er Harper Lee. Listi kvennanna er fjölbreyttari en karlanna en þeir völdu aðallega bækur sem þeir höfðu lesið sem unglingar. I viðtöl- unum kom fram að karlmenn milli karla Albert Camus. Skáldsaga hans Útiending- urinn er eftirlæti breskra karlmanna. tvítugs og fimmtugs gera lítið af því að lesa skáldsögur. Listinn yfir eftirlætisskáldsögur breskra karlmanna fer hér á eftir. Verkin eru sett í stafrófsröð sam- kvæmt eftirnöfnum höfundanna. • Útlendingurinn. Albert Camus • Innstu myrkur. Joseph Conrad • Glæpur og refsins. Foydor Dostójevskí • Gatsby hinn mikli. F.S. Fitzgerald • Brighton Rock. Graham Greene • Catch 22. Joseph Heller • High Fidelity. Nick Hornby • Ulysses. James Joyce • Metamorphosis. Frank Kafka • Bókin um hlátur og gleymsku. Milan Kundera • To Kill a Mockingbird. Harper Lee • Hundrað ára einsemd. Gabriel Garcia Marquez • Lolita. Vladimir Nabokov • 1984. George Orwell • Bjargvætturinn í grasinu. JD Salinger • Þrúgur reiðinnar. John Steinbeck • Hobbitinn. JRRTolkien • Hringadróttinssaga. JRR Tolkien • Ævintýri Stikilsberja Finns. Mark Twain • Sláturhús 5. Kurt Vonnegut Ljósmynd/Friörik Rafnsíon aturog gleymsku. Milan Kundera. Breskir karlmenn hafa dálæti á verki hans Bókin um mKEÍS ^ ■ Sótt í smiðju Maugham Sögur Somerset Maugham hafa margoft verið kvikmyndaðar. Skemmst er að minnast Being Julia þar sem Annette Bening fór með aðalhlutverkið og hreppti Óskarsverðlaunatilnefningu. Nú hafa þrjár af þekktustu leik- konum Hollywood sýnt áhuga á taka að sér hlutverk í myndum sem gerðar eru eftir sögum Maugham. Naomi Watts, stjarnan úr King Kong, hyggst leika í The Painted Veil sem fjallar um aðalskonu sem friðþægir fyrir syndir sínar með því að fara til Kína og líkna kólerusjúk- lingum. Greta Garbo lék þetta sama hlutverk á sínum tíma. Leikkonan Meg Ryan hefur áhuga á að leika í endurgerð kvikmyndarinnar The Letter en Bette Davis átti einn sinn stærsta leiksigur í því hlutverki. Og Halle Berry íhugar að taka að sér hlutverk í Rain, sem er ein frægasta smásaga Maugham. Joan Crawford og Rita Hayworth léku áður sama hlutverk á hvíta tjaldinu. Annette Bening. Hún fékk Óskarsverðlaunatilnefningu fyrir hlutverk sitt í Being Julia eftir sögu Somerset Maugham. Sýnt á NASA við Austurvöll Miðvikudagur 12. april Laugardagur 15. apríl Miðvikudagur 19. apríl . Miðasala í síma 575 1550, verslunum Skífunnar og www.midi.is Sœnsk ísprinsessa Ari útgáfa hefur skáldsöguna eftir Camillu inguÖnnuRagnhildar dóttur. Sagan gerist um vetur í Fjállbacka. Kona finnst látin í haðkarinu á æskuheimili sínu, sem orðið er að sumardval- arstað fjölskyldunnar, og virðist í fyrstu um sjálfsvíg að ræða. I ljós kemur að svo er ekki. Kemur þá til kasta lögreglunnar og böndin berast að bæjarbúum sem vita ým- islegt hver um annan og viðkvæm Camilla Lackberg. Lesendur SKTF-blaðsins I Svlþjóð kusu hana höfund ársins 2005. leyndarmál koma í ljós. Mest mæðir á Patrik Hedström lögreglumanni og hann kemst varla hjá þvi að not- færa sér upplýsingar sem vinkona hans, rithöfundurinn Erica Falck, kemst yfir á harla vafasaman hátt. Lesendur SKTF-blaðsins í Svíþjóð kusu Camillu Láckberg höfund ársins 2005. Sænska rílcissjónvarpið hefur keypt kvikmyndaréttinn af tveimur íyrstu sögum hennar og mun gera tvo sjónvarpsþætti eftir hvorri bók. Tökur hefjast í haust og munu verða i stíl bresku „Inspector Morse“ þáttanna. Sitenging Út er komin ljóðabókin Sítenging eftir Sigurbjörn Þorkelsson. Um er að ræða 90 ljóð sem flest ef ekki öll hafa einhvern trúarlegan tón. Síteng- ing er fjórtánda bók Sigurbjörns Þor- kelssonar og jafnframt hans þriðja ljóðabók. Áður hafa komið út eftir hann ljóðabækurnar Aðeins eitt líf árið 2000 og Lífið heldur áfram 2002. SU DOKU talnaþrautir Su Doku þrautin snýst um aö raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóörétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins 3 8 2 9 4 3 2 5 8 1 4 9 2 8 7 3 6 7 4 9 6 1 3 6 9 4 7 4 2 3 1 5 6 BUOOKL SHOP IS (©6610015 Lausn siðustu gátu 1 3 8 4 6 2 5 7 9 9 4 7 5 3 1 8 6 2 5 6 2 7 8 9 1 3 4 2 1 6 3 4 7 9 5 8 7 5 9 6 1 8 2 4 3 3 8 4 9 2 5 6 1 7 6 2 1 8 7 4 3 9 5 4 9 3 2 5 6 7 8 1 8 7 5 1 9 3 4 2 6

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.